Fréttablaðið - 23.09.2011, Side 58
23. september 2011 FÖSTUDAGUR34
sport@frettabladid.is
–einfalt og ódýrt
Spönginni • Hólagarði • Skeifunni • Akureyri • Setbergi • www.apotekid.is
TILBOÐ MÁNAÐARINS
DANATEKT
30% AFSLÁTTUR
TILBOÐIÐ GILDIR ÚT SEPTEMBER
30%
AFSLÁTTUR AF
ALLRI LÍNUNNI
Heilnæmar vörur fyrir viðkvæma húð
Nettóvöllurinn
Keflavík KR
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–19 (3–7)
Varin skot Ómar 4 – Hannes Þór 1
Horn 0–11
Aukaspyrnur fengnar 8–9
Rangstöður 3–5
KR 4–3–3
Hannes Þór Halldórs. 6
Dofri Snorrason 7
Skúli Jón Friðgeirss. 6
(83., Aron Bjarki Jós. -)
Grétar Sigfinnur Sig. 6
Guðmundur Reynir 7
Baldur Sigurðsson 8
*Bjarni Guðjónss. 8
Viktor Bjarki Arnarss. 5
Egill Jónsson 5
(75., Gunnar Örn -)
Kjartan Henry Finnb. 7
Guðjón Baldvinsson 6
*Maður leiksins
KEFLAVÍK 4–4–2
Ómar Jóhannsson 5
Arnór Ingvi Traustas. 5
(76., Ómar Karl Sig. -)
Adam Larsson 7
Guðjón Árni Anton. 7
Viktor Smári Hafst. 4
Magnús Sverrir Þorst. 4
Andri Steinn Birgiss. 4
(68., Jóhann Birnir 6)
Frans Elvarsson 6
Magnús Þórir Matth. 6
Hilmar Geir Eiðsson 3
Guðmundur Steinars. 4
1-0 Frans Elvarsson (1.)
1-1 Baldur Sigurðsson (12.)
1-2 Baldur Sigurðsson (51.)
2-2 Magnús Þórir Matthíasson (81.)
2-3 Aron Bjarki Jósepsson (90.+3)
2-3
Erlendur Eiríksson (7)
FYLKIR hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni í N1-deild kvenna í handbolta í vetur en liðinu var spáð sjötta sætinu (af tíu) á
árlegum kynningarfundi deildarinnar. Ástæðan er sögð vera erfiðleikar við að finna styrktaraðila sem og að meistaraflokkurinn
missti nokkra sterka leikmenn eftir síðustu leiktíð og ekki tókst að styrkja hópinn eins mikið og vonir stóðu til. Fylkir stefnir
engu að síður á að senda lið til leiks á næsta tímabili. Sunna María Einarsdóttir, sjá mynd, gekk til liðs við Gróttu í gær.
HANDBOLTI Íslenska kvennalandsliðið er komið til
Póllands, þar sem stelpurnar taka þátt í æfingamóti.
Liðið mætir Hollandi í dag og spilar síðan einnig við
Pólland og Tékkland um helgina.
„Það er frábært að komast á svona mót og spila
á móti svona sterkum þjóðum. Við erum búin að
nýta tímann vel og ætlum að gera það enn betur á
komandi dögum. Vonandi náum við fínum úrslitum
en höfuðáherslan er að hreyfa aðeins liðið, skoða
leikmenn og reyna að vinna með okkar leikskipulag,“
sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari íslenska liðsins.
„Við höfum æft tvisvar á dag við mjög fínar
aðstæður í Póllandi og erum síðan að fara að spila
við sterka andstæðinga,“ segir Ágúst, en hann leggur
áherslu á að horfa ekki of langt. Liðið er þar með að
hefja undirbúning sinn fyrir undankeppni EM sem
hefst í október, sem og heimsmeistaramótið í Brasilíu
sem fer fram í desember.
„Það er gríðarlega mikilvægt að við höldum okkur
á jörðinni og einbeitum okkur að næsta verkefni, sem
er mjög mikilvægir leikir í Evrópukeppninni. Við
erum þar í riðli með Sviss, Úkraínu og Spáni og það
fara tvö lið áfram. Við eigum fína möguleika á því að
komast áfram en þurfum þá að halda rétt á spilunum.
Það er gríðarlega mikilvægt að vera einbeitt og taka
bara eitt skref í einu,“ segir Ágúst, sem er án lykil-
manna í mótinu í Póllandi.
„Anna Úrsúla (Guðmundsdóttir) kemur til móts
við hópinn í kvöld (í gær) og við verðum að sjá til
hversu mikið hún getur verið með því hún er búin
að vera veik. Rakel (Dögg Bragadóttir, fyrirliði) er
enn þá meidd og ég reikna ekki með henni í neinum
leikjanna nema kannski hugsanlega í síðasta leiknum.
Hún verður ekki með á morgun og á laugardaginn.
Rut (Jónsdóttir) meiddist í leik með Tvis Holstebro
tveimur dögum áður en við fórum út. Hún er heldur
ekki hérna. Liðið er því breytt og það er um að gera
að nýta þessa leiki í að gefa öðrum tækifæri og skoða
fleiri leikmenn,“ segir Ágúst. - óój
Íslenska kvennalandsliðið verður án lykilmanna á æfingamótinu í Póllandi:
Anna Úrsúla veik og Rakel meidd
BIRNA BERG HARALDSDÓTTIR Spilar sína fyrstu landsleiki í
Póllandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson
atvinnukylfingur úr GKG byrj-
aði mjög vel á Opna austurríska
mótinu í golfi, sem tilheyrir Evr-
ópumótaröðinni og hófst í Atzen-
brugg í gær. Birgir lék fyrsta
hringinn á 69 höggum, þremur
höggum undir pari, sem skilar
honum upp í 6. sætið.
„Ég get ekki annað en verið
sáttur með þessa byrjun á mótinu.
Það er ekki búið að ganga neitt
spes upp á síðkastið og þetta er
því frábært fyrir sjálfstraustið,“
segir Birgir Leifur, sem hefur
lagt grunninn að því að ná
niðurskurðinum annað kvöld.
„Maður vill alltaf vera með um
helgina og þetta er góður
meðbyr fyrir það,“
segir Birgir Leifur,
sem fann sig á
flötunum og náði
meðal annars
fimm
fuglum á hringnum.
„Mér gekk best að
pútta og ég fann mig
gríðarlega vel á flötun-
um í dag. Ég var rosalega
ánægður með það. Púttin
hafa oft verið veiki hlekk-
urinn hjá mér,“ segir Birgir
Leifur og bætti við: „Flat-
irnar eru frábærar hérna úti,
þannig að það var ánægjulegt
að ná að rúlla nokkrum góðum
púttum í,“ sagði Birgir Leifur.
„Ég hef lítið spilað í ár og
þetta er búið að vera svolítið
pirrandi ár. Ég hef verið að
detta inn í mót á síðustu stundu og
svoleiðis en ég vissi það svo sem
fyrir. Það er búið að vera frekar
erfitt en ég vona að ég nái að bæta
stöðuna mína fyrir næsta ár og
reyni að keyra upp listann eins og
maður hefur verið að gera,“ sagði
Birgir Leifur, sem mun keppa á
úrtökumótum fyrir Evrópumóta-
röðina seinna í haust.
Hann var með Íranum Michael
McGeady og Ítalanum Alessio
Bruschi, sem höfðu ekki roð við
honum. „Írinn var þrjá yfir en
Ítalinn var tólf yfir. Það gekk því
best hjá mér en það er stutt á milli
í þessu. Það er lykilatriði að ná
góðum hringjum og fá móment-
ið með sér. Maður þarf að
vera jákvæður og þolin-
móður. Þetta er bara
slagur í hausn-
u m ,“ s e g i r
Birgir Leifur,
sem stefnir
á að halda
sér í topp-
slagnum,
en hann
er þremur
höggum á
eftir Liam
Bond frá Wales.
„Það er mark-
miðið fyrir hvert
mót að vera
meðal efstu
manna og eiga
möguleika
á að vinna.
Það er allt-
af markmið-
ið og maður
heldur sig við
það.“ - óój
Birgir Leifur Hafþórsson er í 6. sæti á Opna austurríska:
Þetta var frábært
fyrir sjálfstraustið
PEPSI-DEILD KARLA, STAÐAN
KR 20 12 7 1 41-20 43
ÍBV 20 12 4 4 35-21 40
FH 20 11 5 4 39-26 38
Valur 20 10 5 5 28-18 35
Stjarnan 20 9 7 4 43-31 34
Fylkir 20 7 4 9 29-36 25
Keflavík 20 6 3 11 24-29 21
Breiðablik 20 5 6 9 28-38 21
Þór 20 6 3 11 26-37 21
Grindavík 20 4 8 8 23-35 20
Fram 20 4 6 10 16-26 18
Víkingur R. 20 2 6 12 21-36 12
MARKAHÆSTIR
Garðar Jóhannsson, Stjörnunni 13
Kjartan Henry Finnbogason, KR 12
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 11
Tryggvi Guðmundsson, ÍBV 10
Kristinn Steindórsson, Breiðablik 10
FÓTBOLTI KR er komið með þriggja
stiga forystu á toppi Pepsi-deildar
karla þegar liðið vann nauman 3-2
sigur á Keflavík í frestuðum leik
úr 13. umferð deildarinnar í gær.
Varnarmaðurinn Aron Bjarki
Jóseps son var búinn að vera á vell-
inum í aðeins tíu mínútur er hann
skoraði sigurmark KR í uppbótar-
tíma með skalla eftir hornspyrnu.
KR mætir Fylki á heimavelli
sínum á sunnudaginn og getur með
sigri nánast tryggt sér Íslands-
meistaratitilinn í ár. KR verður þó
að stóla á hagstæð úrslit úr öðrum
leikjum til að svo verði.
Frans Elvarsson kom Kefla-
vík yfir í gær með marki eftir
aðeins 47 sekúndur en sú for-
ysta átti eftir að duga skammt.
Baldur Sigurðsson, fyrrverandi
leikmaður Keflavíkur, skoraði
tvívegis og kom KR-ingum sann-
gjarnt yfir en gestirnir úr Reykja-
vík höfðu lengst af talsverða yfir-
burði í leiknum.
Keflvíkingar sóttu þó í sig veðrið
á lokamínútunum eins og baráttu-
glöðum Suðurnesjamönnum einum
er lagið. Annar ungur Keflvíking-
ur, Magnús Þórir Matthíasson, var
þar að verki eftir sjaldséð mistök
Hannesar Þórs Halldórssonar í
marki KR.
En þá var komið að þætti Arons
Bjarka sem skoraði með skalla
eftir hnitmiðaða hornspyrnu
Bjarna Guðjónssonar á þriðju mín-
útu uppbótartímans og kom hann
þar með sínum mönnum í ansi
þægilega stöðu í titilbarátunni.
„Það þurfti einhver að gera þetta
fyrir okkur og ég er ánægður með
að það hafi verið ég,“ sagði Aron
Bjarki eftir leikinn. Rúnar Krist-
insson, þjálfari KR, segir að sig-
urinn hafi verið sanngjarn. „Við
áttum skilið að fá þrjú stig úr þess-
um leik. En ég var alltaf að bíða
eftir þriðja markinu þegar við
vorum 2-1 yfir. Það kom ekki og
Keflvíkingar gerðu sitt vel – þeir
ýttu liðinu sínu fram og uppskáru
jöfnunarmark. En við vildum ná í
öll stigin og sem betur fer náðum
við einu marki til viðbótar.“
Hann var ánægður með spila-
mennsku sinna manna. „Það hefur
verið stígandi í okkar leik. Við
vorum í lægð fyrir nokkrum vikum
en liðið er í mun betra standi í dag.
Við þurfum nú fjögur stig til við-
bótar til að vinna titilinn og ætlum
við ekki að treysta á neina aðra en
okkur sjálfa.“
Willum Þór Þórsson, þjálfari
Keflavíkur, neitar því ekki að það
hafi verið sárt að sjá KR-inga skora
sigurmark leiksins. „Einn punktur
hefði verið mjög góður fyrir okkur.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem
við þurfum að kyngja svona örlaga-
mörkum,“ sagði hann. „Það hefur
einkennt okkur í sumar að við erum
alltaf líklegir, svo lengi sem okkar
menn gefast aldrei upp rétt eins og
í dag. En því miður þurftum við að
taka enn eitt höggið á okkur.“
Skömmu fyrir jöfnunarmark
Keflavíkur var Willum duglegur
að öskra sína menn áfram. „Mér
fannst slokkna á ákveðnum mönn-
um sem eru alltaf líklegir og geta
breytt leikjum. Það eina sem við á
hliðarlínunni getum er að reyna að
kveikja í mönnum og ég vissi að þeir
ættu mikið inni.
Aron Bjarki tók þátt í upphitun
með byrjunarliðsmönnum KR og
hélt sér heitum allar 83 mínúturn-
ar áður en hann kom inn á. „Skúli
Jón var tæpur fyrir leikinn og því
þurfti ég bara að vera klár. Það er
bara í fínu lagi, sérstaklega þar sem
þetta gekk svona vel. Nú þurfum við
að klára Fylki á sunnudaginn og þá
getum við kannski fagnað aðeins
meira.“ eirikur@frettabladid.is
Bikarinn að nálgast vesturbæinn
Tuttugasti og fimmti Íslandsmeistaratitill KR er handan við hornið eftir dramatískan 3-2 sigur liðsins á
Keflavík í gær. Varamaðurinn Aron Bjarki Jósepsson skoraði sigurmarkið í uppbótartíma leiksins.
AÐALMENNIRNIR Í GÆR Baldur Sigurðsson og Bjarni Guðjónsson léku vel á miðjunni
hjá KR. Baldur skoraði tvö mörk og Bjarni átti tvær stoðsendingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það þurfti einhver að
gera þetta fyrir okkur
og ég er ánægður með að
það hafi verið ég.
ARON BJARKI JÓSEPSSON
HETJA KR-INGA Í KEFLAVÍK Í GÆR