Íslendingur - 21.12.1946, Page 11
1946 JÓLABLAÐ ÍSLENDINGS _______ 7
Sífdarverksmiðfan á Hjafteyri
Hlu.tfallslega mun íslendingar eiga fleiri og stœrri síldarverksmiðjur en nokkur önnur þjóð í
heimi. Síldariðnaðurinn er líka í rauninni eini iðnaðurinn, þar sem Islendingar lmfa verið sam
keppnisfœrir við aðrar þjóðir. Síldarverksmiðja Kveldúlfs á Hjalte.yri hefir til þessa verið
stœrsla og fullkomnasta síldarverksmiðja í landinu, en surnar nýju verksmiðjurnar munu nú
geta orðið lienni hœttulegur keppinautur.
Krossfararnir
vinna ferúsafem
Framh. aí 5. si<íu.
Klorindu cr stórkos'legt ævin-
týri út af íyrir sig.
Hún er dóttir kristinna kon-
ungslijóna í Blámannalandi.
Enda þótt drottningin, rnóðir
liennar, sé manni sínum trú og
dygg, ergir hann hana sífellt með
heimskulegri afbrýðissemi.
1 kvæði Tassos er sagt, að
konungiirinn liali jáfnvel verið
aibrýðissalnur við himininn af
]rví hann leit hana með hinni ó-
endanlegu augnamergð sinni,
stjörnunum.
Þegar hún játaði syndir sínar
og baðst fyrir, horfði hún jafn-
an á mynd hvítrar meyjar, sem
var ógnað af ægilegum dreka, en
spjót luigaðs riddara bjargaði
henni frá bráðum bana.
Þegar hún fæddi kónginum
dóttur var hún björt eins og hin
heilaga mær, enda þótt drottn-
ingin sjálf væri dökk á brún og
brá.
Hún varð nú skelfingu lostin
um að maðurinn myndi íor-
tryggja hana og sannfærast um
ótryggð hennar, og tekur því
dökkt barn í stað þess ljósa.
Barn sitt fær hún í hendur
dyggum þjóni, sem heitir henni
því, að ganga því í föður stað,
sem væri það hans eigið, barn.
Þegar þjónninn er á leiðinni
með barnið í körfu í gegnum
skóg nokkurn kemur öskrandi
tígrisdýr á móti honum.
Þjónninn klifrar upp í tré, en
skilur körfuna eftir á grundinni.
Tígrisdýrið finnur barnið, en í
stað þess að rífa það á hol sleik-
ir það barnið.
Móðurkenndin vaknar lijá
dýrinu, sem lætur barnið sjúga
sig.
Þjónninn heldur svo áfram
með barnið til Egyptalands, þar
sem barnið elst upp.
En enda þótt foreldrarnir séu
kristnir, og móðirin hafi lagt
svo fyrir þjóninn, að barnið
skuli skírt, lætur hann telpuna
alast upp í trú Múliameðs.
Er Klórinda komst á legg gat
hún ekki gefið sig að kvenlegri
sýslan, hún liafði drukkið blóð
tígrisdýrsins og kaus nú starf
hermannsins. í orustum sveifl-
aði hún sverðinu og vann sér
mikinn orðstír, og nú var hún
komin til Jerúsalem til að berj-
ast í liði Saladins konungs.
Þegar útrásirnar eru gerðar
til þess að lirekja krossfarana á
brott, þá stendur hún andspænis
einhverjum göfugastá riddaran-
um í liði krossfaranna, sem er
Tankred frá Brinisi, sonur
markgreifans í Odo.
í liita bardagans heppnast
Tankred, méð leiftursnöggu
bragði sverðs síns, að lyfta
hjálmi hennar, og sér til mikill-
ar undrunar sér hann fagra
konu með gullna lokka, og hann
hrífst þegar af fegurð hennar.
Ástin brennur í hjarta hans
og hann lætur sverðið síga.
Hann vill ekki ei’nu sinni lyfta
því í sjálfsvörn. Ef hún gimist
líf hans verður þar að skeika
að sköpuðu. En á næsta augna-
bliki eru þau horfin sjónum
hvors annars í hita orustunnar.
Á því augnabliki, sem turn
Gottfreds gin ógnandi rétt við
borgarmrn'ana dettur Klórindu í
hug að hún skuli, strax og myrkt
er orðið, kveikja í turnin-
um. Hún hættir sér með
einn liðsmann í hina hættulegu
för, sem þeim lánast fullkom-
lega. Þau hafa tekið með sér
brennistein, tjöru og glóðir í
eldfati og hinn þurri viður turns
ins fuðrar upp.
En á heimleiðinni er þeim
veitt eftirför, svo að þau verða
viðskila, og á því augnabliki,
þegar Klórinda ætlar að hlaupa
inn um borgarhliðið er því lok-
að með miklum gný, og þarna
stendur Iiún ein og yfirgefin um-
kring af óvinum. Hún vonar að
myrkrið skýli sér og reynir að
komast undan, en Tankred hefir
séð hana leggja til manna sinna,
og án þess hann viti hver þetta
er, veitir hann henni eftirför.
Það kemur til bardaga á ixiilli
þeirra og bæði særast alvarlega.
En að lokum særir Tankred
liana í hjartað með sverði sínu,
svo að hún hnígur við.
Deyjandi lier hún frani lión
við banamann sinn: Hún vill
taka skírn og deyja sem kristin
kona af því að foreldrar hennar
voru kristnir.
Tankred hleypur brott í
skyndi, fyllir lrjálm sinn vatni
og krýpur skömmu seinna við
hlið hennar.
Það er ekki fyrr en hann hefir
lyft hjálminum af höfði hennaí,
að hann þekkir hana, og þá verð
ur liann yfirkominn af sárum
harmi.
En hann lætur það ekki hindra
sig í athöfn þeirri, sem hann hef-
ir þegar hafið.
Hann mælir fyrir henni orð
hinar eilífu sáluhjálpar, og er
hann hefir lokið skírninni deyr
Klórinda.
Tankred er nú borinn til tjalds
síns, en hann er fjandsamlegur
því lífi, sem hann vaknar til,
svo að hann rífur bindið frá
sári sér til þess að fylgja Klór-
inndu í dauðanum. Gottfred ber
þar að, og fær talið liann á rétta
braut.
Hann brýnir fyrir honum heit
krossfarans og Tankred verður
rórri við og hverfur aftur til
skyldu sinnar. En Klorindu veit-
ir hann virðulega útför og ristir
henni eftirmæli á grafstein.
Onnur kona hafði einnig
mikla þýðingu fyrir örlög kross-
faranna, en henni var farið á
Framh. á 25. síðu.