Faxi - 01.12.1963, Side 3
to ®
4§
&
&
Svar Frelsarans
Jólahugleiðing eftir Asmund Guðmundsson fyrrv. biskup
Þegar jólin koma, færist undursamlegur, Ijiífur helgiblær
yfir himin og jörð. Bezt finna börnin til þess, en einnig vér,
sem fullorðin erum. Vér lifum aftur í anda bernskujólin og
sjáum fögnuð þeirra blika í barnsaugum. Vér gleðjumst með
þeim af jólaboðskapnum. Það er eins og yfir oss sé blakað
ósýnilegum vængjum og englaraddir kalli á það, sem vér eig-
um hreinast og fegurst, bjartast og bezt. Fyrir hugarsjónum
vorum blasir Betlehemsbarnið uppi við móðurbarminn. Og frá
því leggur geislastaf yfir mannheim allan, ófölnandi, því að
um eiltfð alla er þetta barn lífið og Ijós mannanna — Frels-
arinn.
Hvernig má það verða? Hann er orð Guðs, hann er allt það,
sem Guð þarf að segja oss til sáluhjálpar.
Án Frelsarans værum vér munaðarlaus í myrkri.
En hann er svar við mestu vandaspurningum lífsins, svo
að hjartað fær frið.
*
Vér spyrjum Frelsarann: Hvaðau er líf vort runnið?
Virðum fyrir oss ævi hans, allt frá jötunni og til upprisu-
dýrðar hans.
Til hvílíkrar blessunar varð þetta barn. Hveitikornið, sem
féll í jörðina og dó, bar mikinn ávöxt. Og af upprisu Frels-
arans spratt meiður kristninnar. Hvaðan kom Kristur? Við því
er aðeins eitt svar. Hann kom frá Guði. Hann sagði það ber-
um orðum. Hann sýndi það og sannaði: Hann var sonur
Guðs. Jafnframt ncfndi hann mennina börn Guðs, bræður
sína og systur. Þeir eru einnig frá Guði komnir og eiga hann
að föður. Við birtu jólanna sést, að þar er cnginn undan skil-
inn — ekki einu sinni sá, sem aumastur er og fáráðastur á
jörðu. Mennimir mega biðja, allir, allir: Faðir vor, þú, scm
ert á himnum. Guð faðir er upphaf Itfs vors í Frelsarans Jesú
nafni. Ást hans og friður sýnir oss föðurinn. Þrátt fyrir eigin-
girni vora og veikleika — já, allar syndir, elskar Guð oss
óumræðilega lieitt. Lífið er ævarandi kærleiksgjöf hans til vor.
Vér spyrjum Frelsarann einnig: Hvert er hlutverk lífs vors?
Það er æðra en virðist vera af skelfingum þeim og bræðra-
vígum, er yfir jörðina dynja. Hann, sem fæddist í Betlehem,
sýnir oss það. Hann nefndi sjálfan sig Manns-son, meðan hann
dvaldist hór á jörð, því að hann cr æðsla hugsjón mannanna,
fyrirmyndin, svo að vér fetum í fótspor hans. Sá er bezt krist-
inn, sem er líkastur Kristi, sól heimsins, er leggur smyrsl á
lífsins sár og læknar mein og þerrar tár.
Kristur boðar Guðs ríki á svo einföldu máli, að hvert barn
megi skilja. Fylgd við boðorð hans að elska Guð af öllu hjarta
og náungann eins og sjálfan sig myndi stöðva allar styrjaldir
til endimarka jarðar. Kristur er lifandi kærleikur Guðs á jörð-
inni. Kærleikurinn á að sigra. Fyrir hann kemur Guðs ríki
meðal mannanna, og einkum til minnstu bræðranna, sem
þarfnast hans mest.
Hlutverk vort er því það að stofna og efla Guðs ríki á jörðu
— ríki kærleikans, þar sem vilji hans ræður. Sönn jól, þar sem
hver um sig leitast við að verða öðrum góður, bregða Ijóma
yfir heimilin, svo að Guð er þar sjálfur gestur og heimilið
gróðurlundur í ríki hans. Þannig er unnt að eignast forsmekk
þeirrar sælu, er Frelsarinn veitir.
*
Og vér spyrjum: Hvað bíður vor framundan? Hvert leiðir
Guð líf vort að lokum?
I dýrð jólanna sjáum vér eilífðarbirtu fyrir stafni. Hann,
sem þá fæddist, sagði stðar: í húsi föðtir míns eru mörg htbýli.
Eg fer burt að búa yður stað. Þar sem eg er þar skuluð þér
og vera. Eg fer til föðurins. Eg er vegurinn, sannleikurinn og
lífið. Eins og hann kom frá Guði, þannig fer hann aftur til
Guðs. Svo er um líf vort. Það leiðir oss til Guðs að lokum, til
fullkomnunar í kærleika með honum. Fyrir því bauð Frelsar-
inn: Verið miskunnsamir, eins og faðir yðar á himnum er
miskunnsamur. Það er eiltfðar takmark vort. Frá Guði, fyrir
hann og til hans eru allir hlutir. Já, heimþrá vor til Guðs er
lífsins kjarni. Jólaboðskapur Guðs um Frelsara hljómar. Þegar
svar hans birtist, munum vér verða honum líkir, því að vér
munum sjá hann, eins og hann er.
*
Yður er Frelsari fæddur, hann sem veitir svar við dýpstu
spurningum lífsins, boðar oss það, er Guð vill birta oss og
gefur hjartanu fögttuð og ró — Orðið sem var í upphafi hjá
Guði — kærleikurinn.
Dýrð sé Guði í npphæðum og friður í sálum manna.
Gleðileg jól í Jcsú nafni.
(9 48