Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1963, Blaðsíða 39

Faxi - 01.12.1963, Blaðsíða 39
Ný matvöruverzlun. Hinn gamalkunni verzlunarmaður Jakob Indriðason, sem um 20 ára skeið hefir starfað í verzlun Ingimundar Jónssonar, hefir nú opnað eigin verzlun í eigin húsnæði að Tjarnargötu 31 og hyggst hann verzla þar með matvörur. Er það áreiðanlega mikið hagræði fyrir hin nýju íbúðarhverfi á Tún- unum og í Holtunum. Ljóðfórnir. Sigurður frá Valbraut sendir Faxa eftirfar- andi vísur. — Eitt sinn í ágústmánuði nú í sumar í glaðasólskini, gekk Sigurður út á svalir Elliheimilisins og varð honum þá þessi vísa á munni: Það er blíða og blessuð sól, brosir tíðin víða. Gleður lýði geðs um ból. Greitt hér skríður lífsins hjól. Sigurði fellur illa hávaðinn, sem stafar af flugvélunum, sem koma og fara yfir bæinn: Fljúga um loftið flugvélar, fjarska leiður hvinur. Friðnum eyða alls staðar, aflið véla dynur. Um vindsveipinn „Flóru“ orti Sigurður: Nú er loftið nokkuð svart, nær oss veðratanginn. Þó Flóra blási fremur hart, fer ég út á ganginn. Ort nú á fyrsta vetrardag: Lýsir yfir land og sæ, lengi þar hann gisti. Vitjar nú um völl og sæ vetrardagur fyrsti. Sama dag og Bjarni Benediktsson tók við forsætisráðherraembættinu af Olafi Thors, barst um landið fregnin um nýtt eylendi, sem væri að rísa úr hafi 3 sjómílur suðvestur af Geirfuglaskeri. Gamansamur sjálfstæðismað- ur hér í bæ mun hafa látið þau orð falla, að ekki ætlaði Bjarni að láta standa á sér til framkvæmdanna. Væri hann nú þegar byrj- aður að stækka landið. Þetta frétti Sigurður Magnússon og orti um það eftirfarandi stöku: Geysi öflug glóð er sú, gneistar fljúga úr kafi. Er að stækka Island nú, eyja rís úr hafi. Jón K. Magnússon sjúkraliúslæknir hefur beðið blaðið að láta þess getið, að sökum annríkis við sérfræðistörf, hætti hann að gegna nætur- og helgidagavörzlu frá 15. þessa mánaðar. Vélbótur ferst með allri áhöfn Þau hörmulegu tíðindi hafa gerzt, að vél- báturinn Hólmar frá Sandgerði GK 546 hefir farizt með 5 vöskum sjómönnum. Síðast spurðist til bátsins á föstudagsmorgun þann 29. nóvember, er hann var staddur 10 sjó- Helgi Kristófersson. mílur austur af Alviðruhömrum á Mýrdals- sandi. Síðan þetta var hefir mikil leit verið gerð að bátnum bæði á sjó og landi og flug- vélar hafa tekið þátt í leitinni. Hefir þessi leit engan árangur borið utan þau, að leitar- sveitir úr Alftaveri, af Meðallandi og frá Vík í Mýrdal hafa fundið smávægilegt brak, stíu- fjalir og lestarhlera, sem ekki er vitað hvað- an sé komið. Talið er nú fullvíst að báturinn hafi farizt með allri áhöfn. Ahöfn Hólmars var þessi: Helgi Kristófersson, skipstjóri, Sandgerði, 27 óra gamall, kvæntur og 3ja barna faðir. Sigfús Agnarsson, stýrimaður frá Heiði í Gönguskörðum í Skagafirði, 21 árs, ókv. Guðmundur Stefánsson, vélstjóri. frá Gil- haga í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði, ókvæntur. Ingvar Gunnarsson, Laufási 4, Garðahreppi, 21 árs, ókvæntur. Gunnlaugur Sigurðsson, frá Vestmanna- eyjum, 46 ára, ekkjumaður, með 5 börn á framfæri. Blaðið vottar hinum syrgjandi ástvinum innilega hluttekningu í þeirra þunga harmi. Sigfús Agnarsson. Ingvar Gunnarsson. Guðmundur Stefánsson. Gunnlaugur Sigurðsson. F A X I — 195
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.