Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1963, Side 36

Faxi - 01.12.1963, Side 36
r v Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. — Ritstjóri og afgreiðslumaður: 1li—' 1f Hallgrímur Th. Björnsson. Blaðstjórn: Hallgrímur Th. Björnsson. Margeir iL Æ JL Jónsson, Kristinn Reyr. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Auglýsingastj.: Gunnar Sveinsson. Verð blaðsins í lausasölu krónur 25,00. Alþýðuprentsmiðjan h.f. V__________________________________________________________________________________________________/ Aðalfundur Faxa Aðalfundur Faxa var haldinn þann 1. nóv. nú í haust að heimili Huxley Olafssonar for- stjóra. I skýrslu formanns, Jóhanns Péturssonar, var þetta helzt: A s.l. ári voru flutt framsöguerindi eða fundarefni sem hér segir: 1. Hallgrímur Th. Björnsson: Olnbogabörn. 2. Valtýr Guðjónsson: Oss vantar menn. 3. Kxistinn Reyr setti á svið blaðamanna- fund, þar sem 2 félagsmenn voru látnir Huxley Ólafsson. leika þá Krúsex og Kennedy, en aðrir 'félagsmenn léku blaðamenn, er lögðu stórpólitískar spurningar fyrir „toppana". — Var dregið um hlutverkin. Blaðamanna- fundur þessi var tekinn upp á segulband. 4. Guðni Magnússon: Geimferðir. 5. Margeir Jónsson: Vetrarsíldveiðarnar. 6. Spurningaþáttur í umsjá stjórnarinnar. 7. Ragnar Guðleifsson: Fyrir æskuna. 8. Gunnar Sveinsson: Afbrot. 9. Egill Þorfinnsson: Vísan: Margur fengi mcttan kosið o. s. frv. 10. Jón Tómasson: Reykjanesbrautin nýja. 11. Afmælisfundur. I stað Jóhanns Péturssonar, sem verið hefir formaður félagsins s.l. ár var nú Huxley Ólafsson kjörinn formaður, en það er föst regla í Faxa, að formaður sitji aðeins eitt ár í senn. Aðrir í stjórninni eru: Kristinn Reyr varaformaður, og gjaldkeri Margeir Jónsson. Á starfsárinu voru 6 félagsmenn með 100% mætingu á fundum félagsins. Farin var ein leikhúsferð og séð leikritið Pétur Gautur í Þjóðleikhúsinu. Skýrsla blaðstjórnar. Formaður, Hallgrimur Th. Björnsson, flutti skýrslu blaðstjórnar. Skýrði hann frá því, að blaðið hafi stækkað að blaðsíðufjölda með ári hverju, en væri þó með svipuðu sniði. Hann gat um vaxandi dýrtíð, sem mjög tor- veldaði útgáfustarfið, en þó væri reynt að halda í horfinu, enda virtust vinsældir Faxa aukast en ekki minnka, þótt verð blaðsins hækkaði nokkuð, svo og auglýsingar. Formaður þakkaði blaðstjórn og gjaldkera gott samstarf, einnig öðrum félagsmönnum. Á fundinum var blaðstjórn öll endurkjörin, Jóhann Pétursson. en hún er þannig skipuð: Formaður Hall- grimur Th. Björnsson, varaform. Margeir Jónsson og ritari Kristinn Reyr. Hin nýkjörna stjórn tekur að vanda við störfum um næstu áramót og mun þá á fyrsta fundi skipta með sér verkum. Ritstjóri er Hallgrímur Th. Björnsson, en Guðni Magnússon er gjaldkeri blaðstjórnar. Leiðrétting. í grein minni í októberblaði Faxa 1933 hafði mér orðið á sú skyssa, að segja rangt frá sakir misminnis. Hús Ólafs Jafetssonar var ekki byggt upp úr Báruhúsinu, heldur var Báruhúsið ennþá til uppúr 1920. Um það leyti kaupir Pétur Jónsson frá Blómsturvöllum í Grindavik, Báruhúsið, „sem er þá einn salur, skorsteins- laus, notaður undir þurrkaðan saltfisk. Samn- ingsaðilar f. h. Bárufélagsins voru: Árni Geir, Bjarni Ólafsson og Jónas í Njarðvík.“ Kristinn Reyr Pétursson skáld sendi mér þessa leiðréttingu og kann ég honum ágætar þakkir fyrir. Marta Valgerður Jónsdóttir. Nætur- og hclgidagalæknar í Keflavíkurhéraði. I desember: 12. Guðjón Klemenzson. 13. Jón K. Jóhannsson. 14. Kjartan Ólafsson. 15. Kjartan Ólafsson. 16. Arnbjörn Ólafsson. 17. Björn Sigurðsson. 18. Guðjón Klemenzson. 19. Jón K. Jóhannsson. 20. Kjartan Ólafsson. 21. Arnbjörn Ólafsson. 22. Arnbjörn Ólafsson. 23. Björn Sigurðsson. 24. Guðjón Klemenzson. 25. Jón K. Jóhannsson. 26. Kjartan Ólafsson. 27. Arnbjörn Ólafsson. 28. Björn Sigurðsson. 29. Björn Sigurðsson. 30. Guðjón Klemenzson. 31. Jón K. Jóhannsson. Athugasemd. Vegna fréttaklausu frá Jóni K. Jóhanns- syni sjúkrahúslækni á öðrum stað hér í blaðinu, um að hann muni ekki sinna nætur- né helgidagavörzlu eftir 15. þ. m„ en er samt talinn með út mánuðinn á listanum yfir nætur- og helgidagalækna, sneri blaðið sér til héraðslæknisins, Kjartans Ólafssonar, er læknalistann semur og bað um skýringu á því ósamræmi, sem þarna virtist koma fram, leyfði héraðslæknir blaðinu að hafa það eftir sér, að þar sem hann svo seint hefði fengið vitneskju um þessa ákvörðun læknisins, hafi ekki unnizt tími til að breyta læknalistan- um, né ákveða hverjir tæki upp vaktir Jóns. Útgcrð og aflabrögð I október. Frá Keflavík stunduðu 10 bátar dragnóta- veiðar í mánuðinum. Gæftir voru mjög stop- ular og afli fremur rýr, eða um 350 lestir á alla bátana. Síðast í mánuðinum hófu 12 bátar síld- veiðar með herpinót. Það sem af er nóvem- ber hefir sára lítið veiðst, enda áframhald- andi ógæftir. Frá Sandgerði stunduðu 3 bátar dragnóta- veiðar. Hefir afli þar einnig verið mjög rýr eða alls um 20 lestir I október. Gæftir voru mjög óhagstæðar. Til síldveiða þaðan og frá Garði bjuggust 12 bátar um þetta leyti og fleiri hafa bæzt við síðan. Gæftir og afla- brögð hafa verið svipuð og í Keflavík. Frá Grindavík stunduðu 3 bátar togveiðar í mánuðinum. Gæftir voru slæmar. Aflinn út októbermánuð varð alls 55 lestir. Þaðan hófu 7 bátar síldveiðar í mánuðinum með herpi- nót. Gæftir og aflabrögð léleg.. Frá Vogum stundaði einn bátur dragnóta- veiði í október og varð afli hans 20 lestir. Þaðan byrjaði einnig einn bátur þorskanetja- veiðar. Fékk hann 15 lestir í tveim fyrstu lögnunum, en síðan 200—300 kg. í lögn. Afmæli Rótarýklúbbs Keflavíkur. Rótarýklúbbur Keflavíkur hélt upp á 18 ára afmæli 2. nóv. s.l. Klúbburinn var stofn- 192 — F A X I

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.