Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1963, Qupperneq 23

Faxi - 01.12.1963, Qupperneq 23
3. Hökull af rauðu flöjeli með hvítum krossi og sirsfóðri, gefinn af sama, 4. Altarispípur af messing (frá sama) ljósa- söx fylgja, 5. Kaleikur af silfri með patínu, gylltur innan með útpríklaðri bryggju uppundir barmi, krotaðri að utan, og annarri á stéttinni. Þessi gersemi er og gefin af kaupm. Th. Jakobæus, 6. Klukka, gefin af sama, hún er á rambaldi í klukkna- portinu, 7. Korpóralklútur úr flöjeli með silkifóðri er brýzt upp á dúkinn, hann er með rós bróderaðri í miðju, lagður utan með vírsnúrum samt ásettum gulldopp- um, gefinn af bóndanum Mr. Erlendi á Stafnesi. Sá reikningur, sem bóndinn á Hvals- nesi, Mr. Tómas, er staðið hefur fyrir kirkjunnar byggingu, afleggur er þessi: Til undirgrindar af rekaviði 202 áln .......................... 194—36 Eftir framlögðum reikningi sé önnur byggingarefni.......... 463—80 Fyrir sögun viðarins .......... 7—80 I kost og kaup til smiðsins 180—80 845—20 Af þessari summu eftirgefur Mr. Tómas nú strax rekaviðarverðið af kostnaði .................. 194—36 Hefur fengið af sóknarmönnum 10—64 Af utansóknarmönnum gjafir: 1. Frá Brandi hreppstjóra í Kirkjuvogi ................ 8—64 2. Frá Jóni Snorrasyni í Njarð- vík .......................... 5—64 3. Af öðrum, hinum og þessum 10—64 228—04 Stendur því til kirkjunnar skuld nú 617d 16sk. Þess ber að geta að kirkjan hefur hingað til engar sínar tekjur fengið, því orsakast þar af að ekki er uppgjörður reikningur þeirrar fyrri kirkju, þó haldið se að skuld hennar sé rúmlega borguð. Prófasturinn hefur í áformi að spyrja stiftið að hreint allir bæir, sem -að lágu undri Hvalsneskirkju skuli tilheyra þess- ari nýju, þó allir bæir hafi ei sókt um leyfi til að byggja þá nýju, sömuleiðis með hvaða rétti þessi kirkja skuli framvegis svara, hvort með þeim sama og hin elldri kirkja. Ut supra. Á. Helgason. S. Einarsson. Tómas Jónsson.“ Tómas sá, sem stóð fyrir þessari kirkju- byggingu, var kallaður hinn ríki, og er sagt að hann hafi þá verið eigandi að Hvalsnesi. Eins og sagt er hér að framan, er kirkjuklukka meðal þeirra muna, sem Keflavíkur kaupmaður, 'hr. Jakobsen hafi gefið. Sú klukka er enn í turni þeirrar kirkju, sem við minnumst hér í dag og er nafn Tómasar Jónssonar letrað á hana ásamt heimilisfangi og ártali sem er 1820. Er það næsta einkennilegt að gefandi skuli hafa látið skrá nafn annars manns á þennan grip, gæti vel verið hér um vangá að ræða í skráningu vísitasíunnar og Tómas sé hinn rétti gefandi, en kaup- maðurinn haft milligöngu um útvegun klukkunnar og satt að segja hefi ég til- hneigingu til að álíta það, en bókstafur- inn „blífur" oftast. Af öðrum gripum, sem þessari nýju kirkju voru gefnir eru enn til kaleikur- inn, korpóralklúturinn og skírnarfontur, sem var gefinn skömmu síðar. Þessi kirkja, sem var timburkirkja eins og áður segir, stóð til 1864. Þá eru orðin eigendaskipti að Hvalsnestorfunni og er nú Ketill Ketilsson í Kotvogi í Höfnum, orðinn eigandi jarðarinnar og árið 1864 lætur hann hefja hér byggingu nýrrar kirkju á sinn kostnað. Var kirkja sú hin fyrri af tveim, sem Ketill lét reisa að Hvalsnesi. Munu þess fá dæmi að einn og sami maður safi sýnt slíkan stórhug og rausn og aðeins vegna þess að hann var eigandi kirkjujarðarinnar, þótt honum að öðru leyti væri enginn vandi á höndum viðkomandi söfnuðinum. Árið 1865 gerir prófastur yfirlit um hina nýbyggðu kirkju og muni hennar og fer það hér á eftir: „Ár 1865 þann 2. september, var prófast- urinn í Kjalarnesþingi staddur á Hvalsnesi til að aðgæta ástand kirkjunnar. Hún er alveg ný, byggð á næstliðnum vetri, veg- legt timburhús sett á staðgóðum grunni. Hið ytra þak kirkjunnar er af „Skifer“. Byggingu hennar er hagað þannig: Aðalkirkjan (miðhlutinn) er 14 álnir á lengd og 10 á breidd, öll með hvelfingu yfir, yfir fremri hluta hennar er loft með 4 bitum og 4 stólpum undir, fyrir loft- inu að innanverðu er grindverk af rennd- um pílárum póleruðum. Á þessum hluta ‘hússins eru hvers-vegar 9 stólpar með bakslám, innar af stólunum eru um kring fastir bekkir og samtals 4 lausabekkir. Hæð undir hvelfingu á þessum hluta húss- ins er sem næst 9 álnir. Innar af þessum hluta hússins er kór upphækkaður um 2 tröppur, 5 álnir á lengd og 6 á breidd með hvelfingu yfir. 1 honum er eitt gluggafag hvers-vegar, þar eru grátur af renndum pilárum með knéfalli allt um kring, altari og altaristafla er enn nú hið gamla, sem var í eldri kirkjunni en er pantað nýtt. Fram af aðalkirkjunni er forkirkja, innan þilja 3/i alin á hvern veg (enn nú ekki alþiljuð innan) og upp af henni turn, sem endar í áttstrendu „spíir“ með sinkþaki á, hæðin af grunni upp á turninn er 17 álnir. Framan á turninum er eitt gluggafag með 16 rúðum og þar upp af dyr með vængja- hurðum fyrir. Stigar ganga úr forkirkjunni upp á loftið og þaðan upp í turninn. Hurð fyrir kirkjunni er enn né hin eldri en önnur ný er í smíðum. Milli forkirkju og aðal- kirkju er þil og á því miðju opnar dyr með boga uppaf, milli kórs og aðalkirkju eru hliðarstafir fóðraðir og þar uppaf bogi. Ornamenta eru, auk áður talins: Pré- dikunarstóll með tröppum uppí, innst að sunnanverðu í aðalkirkjunni, hann er sá F A X I — 179
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.