Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1963, Page 37

Faxi - 01.12.1963, Page 37
aður 2. nóv. 1945. Til þessa hátíðafundar, sem haldinn var í Aðalveri, komu auk Rótarý- félaga úr Keflavík og kvenna þeirra, um- dæmisstjórinn Steingrímur Jónsson og kona hans, 17 Rótarýfélagar úr Kópavogi og konur þeirra, Kári Faaberg Rótarýfélagi frá Sel- fossi og kona hans. Forseti Rótarýklúbbs Keflavíkur, Jón Tómasson, mælti til gestanna og fagnaði . komu þeirra. Sérstaklega bauð hann velkomna Guðnýju Asberg, ekkju E. O. Asberg, sem var einn af fyrstu félögum í klúbbnum. Steingrímur Jónsson, umdæmisstjóri, flutti minni Rótarý, en Lára Arnadóttir kona hans minni Suðurnesja. Valtýr Guðjónsson, fyrrv. bæjarstj. flutti minni kvenna og séra Björn Jónsson minni Islands. Gísli Þorkelsson, verkfræðingur, varafor- seti Rótarýklúbbs Kópavogs flutti einnig ræðu og hvatti til aukinna kynna milli þessara byggðarlaga. Góður rómur var gerður að ræðum þeirra og undirtektir staðfestar með söng. Eftir að borð voru upp tekin, sá afmælis- nefndin um nokkur skemmtiatriði, síðan stíg- inn dans. Stallari klúbbsins, Kristján Guð- laugsson, hafði valið með sér til starfa í af- mælisnefnd þá Helga S. Jónsson og Kristján Höiriis og leystu þeir ágætlega sitt hlutverk. Eitt af stórmerkjum aldarinnar. Að morgni þess 14. nóv. s.l. hófst gífurlegt neðonsjávargos um 3 sjómílur suðvestur af Geirfuglaskeri við Vestmannaeyjar á 120 m djúpu vatni. Hefir gosmökkurinn risið í 6—8 km hæð, enda hefir til hans sézt víðs vegar að af landinu. Gosið hefir staðið linnulaust síðan það hófst og er nú risin þarna allmikil eyja, yfir 120 metra há og um 890 metrar á lengd. I þessum mikla gosmekki sjást annað veifið miklar eldglæringar og nokkurt ösku- fall hefir orðið í Eyjum af völdum gossins, en jarðskjálfta hefir ekki orðið vart. Að sögn þeirra er gerst þekkja, er þetta talið vera 5. gosið í hafi hér við land, sem er vitað og eru nú liðin 67 ár frá því síðasta sambæri- lega gosið átti sér stað. Telja fróðir menn fremur ólíklegt, að eyja þessi fái staðist átök úthafsöldunnar, nema skamma hríð, fremur en aðrar stöllur hennar frá liðnum tímum. Byggðasafn Keflavíkur var stofnað 17. júní 1944 á vegum Ung- mennafélagsins, sem kaus þá og jafnan síð- an sérstaka byggðasafnsnefnd úr sínum hópi til þess að vinna að tilorðningu safnsins. Engir sjóðir eða styrkir fylgdu byggðasafns- nefnd úr hlaði. En velvilji og skilningur bæj- arbúa á söfnunarstarfi nefndarmanna hefur mörgum góðum og fátækum grip bjargað frá glötun, eins og páskasýningin í glugga Bóka- búðarinnar í fyrra bar ljóslega vott um. Á yfirstandandi ári veitti bæjarstjórn Keflavíkur 50.000,00 króna styrk til safnsins og er sá skilningur á gildi safnsins þakkar- verður. Að ósk byggðasafnsnefndar hefur bæjarstjórn ennfremur tilnefnt tvo menn í nefndina. Geymsluhúsnæði er þegar fengið, upptökutæki á næstu grösum og sýning fyrir- huguð á næsta ári. Nefndin óskar enn sem fyrr, og þó í ríkara mæli en áður samstarfs við bæjarbúa um varðveizlu eða afhendingu gamalla bóka, mynda og muna. Kastið ekki gömlum grip. Brennið ekki gamlan grip. Hafið heldur samband við Byggðasafnsnefnd. Munið, að margt smátt gerir eitt stórt. Verum samtaka um að auka við muni safnsins. I byggðasafnsnefnd eru: Helgi S. Jónsson, form., Skafti Friðfinnsson, Olafur A. Þorsteinsson, Guðleifur Sigurjóns- son og Kristinn Reyr. Aðalstöðin h.f. 15 ára. Tíminn brunar áfram. Fyrir réttum 15 árum stofnuðu 12 bifreiðastjórar í Keflavík Aðalstöðina h.f.. Smátt var af stað farið. Húsa- kynnin lítil og hitað upp með einum olíu- ofni. Stöðin hóf starfsemi sína fyrst á Hafn- argötu 13, þar sem nú er eitt af útibúum félagsins, en aðal bækistöðin er nú á Hafnar- götu 86 og útibú á Keflavíkurflugvelli. Aðal- stöðvarbílar voru í fyrstu 12 en eru nú 51 og af þeim eru 38 með talstöðvar, sem er mikil öryggisbót og skapar viðskiptavinum stöðvarinnar mikil þæigndi. I fyrstu hafði stöðin aðeins 2 stúlkur í vinnu, en nú er starfsliðið fyrir utan bifreiða- stjóra um 20 manns. Fyrsta árið eru greidd vinnulaun um kr. 40 þúsund, en árið 1963 greiðir fyrirtækið starfsfólki sínu um 2 milljónir. Bensínsala á fyrsta starfsárinu var sem svarar til þess er félagið selur nú á 15—20 dögum. Ýmsir hafa verið í stjórn stöðvarinnar frá fyrstu tíð, en formaður félagsstjórnar hefir frá upphafi verið Haukur H. Magnússon, sem segja má að hafi ætíð verið hinn knýjandi kraftur þessa félagsskapar, enda sýnir hin langa stjórnarforusta hans, að félagsmenn hafa æ borið til hans mikið og verðskuldað traust. Með Konum í stjórn eru nú eftirtaldir menn: Ketill Jónsson, varaform., Leifur S. Einarsson, ritari, Einar Júlíusson og Gunnar Kristjánsson meðstjórnendur. Hin nýja eyja suðurvestur af Geirfuglaskeri. Gosið liggur mðri þessa stundina og gíg- urinn sést gi’einilega. F A X I — 193

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.