Faxi - 01.12.1963, Side 53
Hvassviðrið var hið sama, en nú var orð-
ið bjart til lofts.
Nú leið ekki á löngu, unz komið var
allnærri togurunum, og vildu þá sumir
af hásetum endilega leitast við að leggjast
að einhverjum þeirra í þeirri von að bjarg-
ast þar um borð og enda svo hina ægilegu
S1glingu, sem nú stóð yfir. En formaður-
mn, Sigurður Olafsson, kvaðst ekki vilja
hætta á það, þar sem sjór var svo úfinn
°g illur, að togararnir stungust nálega á
endann, er þeir andæfðu móti veðrinu, en
hins vegar sagðist hann treysta sér til að
lenda í Kirkjuvogi í Höfnum, því að þar
hafði hann róið áður á vertíðum og var
því vel kunnugur lendingunni. Réð hann
því af að sigla gegnum togaraþvöguna.
Það sáu þeir félagar og heyrðu, að stéttar-
bræður þeirra á togurunum höfðu orðið
þeirra varir, því þeir sáu viðbúnað um
borð til að taka á móti þeim, og einn tog-
arinn tók sig upp og fylgdi þeim drjúgan
spöl. Eftir skamma stund frá því, er þeir
sigldu gegnum togaraflotann, lentu þeir
heilu og höldnu í vörinni í Kirkjuvogi og
yar þá mjög liðið að óttu. Voru þá liðnar
16 klukkustundir frá því er sett voru upp
segl út við Eldey, og hafði alltaf verið
ofsaveður nema í hinu stutta hléi, meðan
skipti um áttir. Aldrei sleppti Sigurður
Olafsson hendi sinni af Stýrinu, fyrr en
skipið lenti.
Guðjón í Landlist hafði boðið Sigurði
að hvíla hann við stjórnina, en Sigurður
yildi það eigi. Þá settist Guðjón á „bit-
ann“ nálægt honum og kvað rímur öðru
hverju.
Er þeir voru að landi komnir, vildu há-
setar setja skipið frá sjó og láta það ekki
hrotna í flæðarmálinu, fyrst það kom heilt
að landi, því að ekkert áfall hafði það
kngið í ferðinni þrátt fyrir hamfarir
storms og sjávar, og bar þar einkum
tvennt til auk handleiðslu forsjónarinnar,
1 fyrsta lagi það, að ferð skipsins var svo
oúkil, að það hljóp af sér hvern sjó, og í
öðru lagi það, að snilld Sigurðar við stjórn
skipsins var með þeim ágætum, að há-
setar hans úr þessari ferð, þeir sem enn
hfa, sumir nær áttræðir, segjast aldrei hafa
reynt aðra eins á neinu skipi. En er há-
setar ræddu um að setja upp skipið, sagði
^'gurður, að þeir skyldu fara heim til
bæja 0g láta þá, sem í landi voru, bjarga
skipinu. Gengu þeir frá því, þar sem það
í fjörunni og fóru heim að Garðhúsum
þar í hverfinu og vöktu upp hjá Hjalta
lónssyni. Hann var þá ekki heima, en
kona hans og heimilisfólk veitti hinum
sjóhröktu mönnum ágætan beina.
Meðan skipverjar voru að hressa sig eft-
ir allt vosið og erfiðið, var þeim sagt, að
búið væri að setja skip þeirra upp í naust.
Höfðu Hafnamenn brugðið við skjótt,
þótt hánótt væri, og bjargað skipinu frá
sjó. Eftir dálitla hvíld í Garðhúsum voru
þrír af skipshöfninni sendir af stað heim
til að láta fólk þar vita, að skipið væri lent
með allri áhöfn við góða líðan. Gengu
þeir inn fyrir Osabotna, sem skerast inn
milli Hafna og Miðness, og svo út eftir
allri ströndinni. Voru þeir að líta eftir,
hvort nokkuð sæist, sem bent gæti á afdrif
skipsins, sem Páll Magnússon stýrði, en
um það vissu þeir ekkert frá því að aflíð-
andi nóni um daginn. Voru þeir mjög
hræddir um, að það hefði farizt, þar sem
það var fremur Htið skip. En þeir fundu
ekkert, sem bent gæti til þess, enda var
það ekki heldur von, því að það skip
skilaði líka allri sinni áhöfn óskaddaðri,
þótt ekki kæmi það heilt að landi. En það
er önnur saga.
Sendimenn komu inn í Hvalsneshverfi
laust fyrir miðjan morgun. Var þá liðinn
nálægt sólarhringur frá því, er skipin lögðu
úr vör í þessa minnisstæðu Eldeyjarferð.
Aðrir skipsmenn gengu heim til sín síðar
þann sama dag, og urðu þar fagnaðar-
fundir. Lýkur hér að segja frá ferð Sig-
urðar Ólafssonar og manna hans.
(Ofanrituð frásögn er skráð um 1940 eftir
frásögnum manna þeirra er þá voru enn á
lífi af skipshöfn Sigurðar Ólafssonar. Frásögn
af hrakningum Páls Magnússonar í þessari
sömu ferð, er að finna í Lesbók Morgunblaðs-
ins 1948 (jólablaði) eftir Magnús Þórarinsson,
er var einn af skipverjum Páls í þessari ferð).
TIL JÓLAGJAFA
MORGUNSLOPPAR
UNDIRF ATN AÐUR
PEYSUR . TÖSKUR
KJÓLAR . HANZKAR
DRENGJAFÖT
DRENGJASKYRTUR
DRENGJAVESKI
BARNA-NÁTTFÖT
UNGBARNAFATNAÐUR
PEYSUR í MIKLU ÚRVALI
HERRAFÖT OG FRAKKAR
SKYRTUR . BINDI . SOKKAR
HERRAVESTI . TREFLAR
OLD SPICE GJAFAVÖRUR
KVENKÁPUR
BLÚSSUR
FONS
F A X I — 209