Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1963, Page 57

Faxi - 01.12.1963, Page 57
vík, og þau eru í sama bókasafnshverfi. Framkvæmdastjórar sveitarfélaganna, Sveinn Jónsson bæjarstjóri og Jón Asgeirs- son sveitarstjóri, telja þó, að samstarfið gæti verið víðtækara, sérstaklega um allt það, sem til stórra átaka þarf. Tilfinnan- legur skortur á vinnuafli háir verklegum framkvæmdum, en samstarf um kaup og notkun þungavinnuvéla með sameiginleg- um vinnuflokkum gæti orðið til hagræðis. I sumar verður malbikuð 700—800 metra löng braut á Vatnsnesvegi í Keflavík og hafa Islenzkir aðalverktakar tekið að sér það verk. Forráðamenn kaupstaðarins hafa hug á að ráða bæjarverkfræðing og telja, að störf hans mundu nýtast betur, ef Njarðvíkurhreppur stæði einnig að ráðn ingu hans. Skipulagsstjóri ríkisins hefur gert heildaruppdrátt að hafnarsvæðinu og nágrenni, en skipulagsmál og byggingar- eftirlit sveitarfélaganna hefur verið aðskil- ið. Sú skoðun virðist útbreidd, að margvís- leg málefni eigi að vera sameiginleg til frambúðar, og þá sérstaklega með það fyr- ir augum að stuðla að hagkvæmari fjár- festingu en ella mundi verða. Myndarlegt félagsheimili er nærri fullgert í Njarðvík, en fyrirhugað er að reisa annað í Kefla- vík. Það hefur verið teiknað og því valinn staður í minna en kílómeters fjarlægð frá því fyrrnefnda. Ibúar Keflavíkur hafa af- not af mjög góðum íþróttaleikvangi í Njarðvík, en annar er í byggingu í Kefla- vík. A hinn bóginn nota Njarðvíkurbúar stóra sundhöll í Keflavík. Þessi mannvirki hvert á sínu sviði munu geta fullnægt þörfum allra íbúanna á næstu árum. — Barnaskólar eru eðlilega aðskildir, en unglingar úr Njarðvíkum stunda nám í efstu bekkjum gagnfræðaskólans í Kefla- vík, sem nú hefur fengið ný og fullkomin húsakynni. Keflavíkurbær hefur nýlega fest kaup á tveggja hæða húsi, sem er ætlað sem tómstundaheimili fyrir starfsemi æskulýðsráðs, fyrir karlakór, fyrir lúðra- sveit og tónlistarskóla. I ráði er að reisa hús fyrir slökkviliðsáhöld og verður það staðsett með tilliti til sameiginlegra nota, og reyndar er það kallað til starfa um öll Suðurnes, þegar með þarf. Hvað landrými snertir, þá er nú svo komið, að Keflavík hefur ekki til umráða oema takmarkað byggingarsvæði og á ekki landið, sem kaupstaðurinn stendur á. Njarðvíkurhreppur og landshafnarstjórn hafa hins vegar til umráða landrými og ^rist það í vöxt, að menn búsettir í Kefla- vík, reki fyrirtæki staðsett í Njarðvíkur- hreppi. Enda þótt álagningarreglur og út- svarsstigar hafi verið samræmdir í sveitar- félögunum, veldur þessi þróun mála tals- verðum kvíða, einkum þó stjórnendum Keflavíkurkaupstaðar. Landfræðilega séð eru Keflavík og Ytri- Njarðvík eitt byggðarlag. Hins vegar stendur Innri-Njarðvík með 240 íbúum nokkuð frá. Hvort þetta byggðarlag á að vera eitt eða tvö sveitarfélög, er á valdi íbúanna, viðkomandi sveitarstjórna og Al- þingis. Astæðan til aðskilnaðarins á árinu 1942 var sú, að íbúum Njarðvíkur þótti að byggðin þar væri hornreka um fram- kvæmdir og afskipt um þjónustu, og er þetta sama ástæðan og ráðið hefur mestu um skiptingu margra sveitarfélaga á liðn- um árum. Svo virðist sem flestir geri ráð fyrir, að byggðin umhverfis landshöfnina verði eitt sveitarfélag í framtíðinni. Það væri ekki óeðlilegt. Ef menn telja æskilegt, að sam- eining sveitarfélaganna eigi sér stað, væri rétt að taka til athugunar, hvort ekki mundi heppilegra að það yrði heldur fyrr en síðar. Sé talið of langt gengið með al- gerri sameiningu, væri þá ekki þörf á að finna skipulegt form fyrir náið samstarf á ýmsum sviðum milli sveitarfélaganna? Engar ákveðnar tillögur eru þó á lofti í þessum efnum, en nauðsynlegt er, að menn geri sér grein fyrir því, hvernig farsælast sé að haga framkvæmdastjórn byggðarinn- ar á hverjum tíma og að vinnubrögð dags- ins í dag séu einnig miðuð við þarfir fram- tíðarinnar. En þetta er hluti af stærra við- fangsefni, sem ekki verður lengra farið út í að sinni, en það er hin æskilega stærð sveitarstjórnarumdæmisins, en það er þó málefni, sem hollt er að hugleiða hverjum þeim, sem framkvæmdastjórn sveitarfélag- anna annast. Unnar Stefánsson. Slétthreppingar. Þegar jólin nálgast og menn taka að búa sig undir að senda kveðjur til vina og vanda- manna, er gott að muna eftir hinum fal- legu kortum, sem átthagafélag Sléttuhrepps gaf út til styrktar Söguskráningu sveitar- innar. Er þar um mikið og kostnaðarsamt verk að ræða og því nauðsynlegt að leggja því til nokkurn tekjustofn, enda sá tilgangur- inn einn með útgáfu fyrrnefndra jólakorta. Kortin eru hin smekklsgustu, skreytt myndum úr hinu tignarlega og ægifagra landslagi Hornstranda, — héraðsins, sem nú er að leggjast í auðn. Kort þessi eru til sölu í Kaupfélagi Suðurnesja og heima hjá Sig- urði Sturlusyni, Faxabraut 41D Keflavík. * Matarlegt og jólalegt í FAXABORG I i Hveiti í 25 kg. sekkjum og allt til bökunar. ★ Allar hreinlætisvörur. ★ Dilkakjöt I. og II. flokks í sk’ökkum og pörtum. Norðlenzkt hangikjöt. Gott saltkjöt. ★ Niðursoðnir ávextir. Allar tegundir. — Lágt verð. Þurrkaðir áveðtir í lausu. Sveskjur og Rúsínur með tollalækkun. j Delecios epli og Appelsínur með tollalækkun. ★ Jólakerti . Jólapappír Allskonar jólasælgæti. Konfektkassar til jólagjafa. ! ★ ! Japanskir Bangsa', stórir I Japanskir bangsar, stórir og myndarlegir, mjög ódýrir. ★ Verzlið tímanlega og pantið tíman- lega fyrir jólin. Vörusendingar um allan bæinn og nágrenni. Sérstakar jólasendingar verða sunnud. 22. des. FAXARORG Sími 1826. JAKOB SMÁRATÚNI i------------------ F A X I — 213

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.