Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1963, Page 63

Faxi - 01.12.1963, Page 63
Kristinn Reyr: SÖNGBOÐAR I upphafi voru útsynningur, austanvndur og norðan ásamt með undirleik öldu. Þq sögðu menn: Verði kór, og það varð Karlakór Keflavíkur. Og eftir œfingavetur kom ofurnýtt vor. Hvítur kollur á húfu, svo hvítur, og húfa við húfu á Hafnargötu, svo heilnótuhvítar í heiðríkjunni. En hjarta manns sló í spurn: Var hátíð í vœndum, himneskir söngvar í nánd? Og tilveran gekk í takt við tlhlökkun manns. (Flutt í v._______________________________ Nýjar bækur frá Ægisúf-gáfunni Út er komin hjá Ægisútgáfunni ný bók eftir Stefán Jónsson fréttamann. Heiti bókarinnar °r: „Þér að segja“ og er hér um að raeða ævi- sögu Péturs Hoffmanns Salómonssonar. Er Þetta þriðja bók Stefáns og stærst í sniðum. í’rásögnin er hröð og skemmtileg eins og í fyrri bókum Stefáns. Hispurslaus frásagnar- Sleði samfara góðlátlegri kímni gerir bókina lœsilega. Og ævintýri Péturs Hoffmanns svíkja engan. Bækur Stefáns, sem áður eru út komnar ®ru: Krossfiskar og Hrúðurkarlar, sem kom ut 1961 og seldist upp á skömmum tíma, og sama máli gegndi um bók Stefáns, „Mínir menn“, sem út kom í fyrra. Hún hvarf einnig Ur bókabúðum á fáum dögum. Ef þessi nýja bók Stefáns „Þér að segja“ fær eins góðar yiðtökur og fyrri bækur hans, og hver efast Urtl að svo verði, þá þarf útgefandinn heldur ekki að kvíða útkomunni. ®*á hefir hin mikilvirka Ægisútgáfa sent Gaman að hafa gengið til œfinga með gleði tónsins í huga. Gaman að ganga í guðmóði á svið með veitula söngva í vitund. Gaman að vera Guðmundur Norðdahl. I upphafi voru útsynningur, austanvindur og norðan ásamt með undirleik öldu. Síðan áratugs söngur, og sál manns á músísku plani. Því segja menn: Lifi kór, og það er Karlakór Keflavíkur. Auðgið enn mannlíf unaði söngsins. Upp með tenorinn, niður með bassann. Upp og niður með allar raddir, út og suður með programið vorsins, mosso, tempo di marcia, líka maestoso da capo al fine. Heillið sérhvern, er hefur eyru að heyri og njóti, verði að meiri unnandi Ijóða og œðri hljóma ár og vordaga. Syngið heilir. afmælishófi K. K. K., 30. nóvember 1963). frá sér eftirtaldar bækur, sem að dómi þeirra, sem hafa kynnt sér efni þeirra, eru hver um sig likleg til að geta orðið metsölubók. Fyrst skal þar nefna bókina „Töfrar íss og auðna“ eftir Ebbe Munch. í bók þessari lýsir höfundur ferðalögum ýmissa rannsóknar- leiðangra um hinar hrikalegu og lítt könn- uðu hálendisauðnir Grænlands. Bókin er í senn spennandi og ævintýraleg. Onnur bókin heitir „Undir fönn“ eftir Jónas Árnason. Fjallar hún um gleði og sorgir manna og dýra og um sambúð þeirra við móður náttúru. Engum leiðist, sem velur sér þá bók til lestrar, enda höfundurinn löngu orðinn þjóðkunnur af fyrri verkum sínum. Þriðja bók Ægisútgáfunnar nefnist „Hjúkr- unarneminn" og segir frá ungri og metnaðar- gjarnri forstöðukonu á sjúkrahúsi, sem er leynilega trúlofuð yfirlækninum. Er þetta mjög heillandi skáldsaga eftir Renée Shann. Fjórða bókin er einnig skáldsaga og ber nafnið „Ást og örlög“. Höfundur nefnir sig Jón Magnússon, sem er dulnefni. Það sem einkum er nýstárlegt við þessa bók er, að síðar verður e. t. v. stofnað til getraunar um hvert sé hið rétta nafn höfundar og svo mikið má víst segja, að hann er meðal þekktari ísl. rithöfunda. — Söguefnið er í slenzkt og spenn- andi. Undir Garðskagavita. Bókinni er skipt í tvo meginhluta. Hinn fyrri nefnist: Liðnar aldir líða hjá. I honum er rakin saga héraðsins, þ. e. hins forna Rosm- hvalaneshrepps og síðar Garðsins og Leir- unnar, allt frá Landnámstíð til vorra daga. Mun ekki vera margt eftir, er markvert get- ur talizt, úr þeirri byggðarsögu. Þar er rak- inn ferill margra manna, sagt frá sjávar- útvegi, verzlunarháttum og verzlunaránauð, Bessastaðavaldinu, „kóngsþrælnum“, 35 Út- skálaklerkum, vermannalífi, Kirkjubóls- brennu, drápi Kristjáns skrifara, ofviðrinu, þegar Bátsendakaupstaður sópaðist burt, frá vopnaburði Garðverja, hjáleigufólki, fjöl- kynngi, Skagagarðinum fræga, þjóðhátíðinni á Skagatá 1874, mönnum og atburðum á 19. öldinni, svo að nokkuð sé nefnt. Síðari hlutinn nefnist: Meðal samtíðar- manna. Hann er að mestu í samtalsformi. Höf- undur hefur hitt fjölda manna að máli á sögusviði bókarinnar, lýsir fólkinu, sem hann ræðir við, rekur atburði úr sögu einstakra manna og héraðsins í heild. Segir þar frá hinni miklu uppeldisstöð skipstjóra, sjósókn- ara og aflamanna, glímu þerira við Ægi, hrakningum, háskalegum minningum, veiði- þjófnaði, fyrstu landvörnum á íslandi, en þær hófu Garðverjar, fyrstir íslendinga. Þar er langt og ýtarlegt samtal við Eggert á Sigur- páli og sagt frá aflabrögðum hans, einnig rakinn skipstjórnarferill hans. Viðtöl eru þar við Guðmund á Rafnkelsstöðum, Halldór í Vörum, Jóhannes á Gauksstöðum, Gísla á sólbakka, Þorvald Þorvaldsson frá Kothús- um, Árna Boga, en þann kafla las höf. í út- varp fyrir nokkru, Sigurberg vitavörð og fjöl- marga aðra. Þar er kafli, sem nefnist: Kveðið á Skaga. Þar eru talin upp skáldin á Skaga, allt frá latínuskáldinu, séra Þorsteini hinum fjölkunnuga, til skáldkonunnar í vitanum, einnig birt margt af vísum og ljóðum. Bókin er á 4. hundrað blaðsiður að stærð, en myndir um 70 alls, margar þeirra fáséðar. Bókin er rituð að tilhlutan nokkurra Garð- verja, en Guðmundur Jakobsson, — Ægis- útgáfan, — gefur bókina út. Er vel til útgáf- unnar vandað, eins og allt, sem þaðan kemur. Þetta er sérstæð, lífleg og læsileg bók og ekki ólíklegt að Suðurnesjamenn geri hana að sinni jólabók, svo mjög er hún fyrir þá skrifuð. Höfundur bókarinnar er hinn þjóð- kunni rithöfundur, Gunnar M. Magnúss. Einu sinni var það í Grindavík, fyrir all- mörgum árum, að húsmóðir nokkur er Mar- grét hét, bað vinnukonu sína að skreppa upp að Krosshúsum og fá lánað nautið handa kúnni, það mætti ekki draga það lengur. Þegar vinnukonan kom að Krosshúsum og hafði fundið bóndann, bar hún upp erindið á þessa leið: — Ég átti að fá lánað nautið handa henni Margréti, hún er búin að liggja niðri í þrjár vikur. FAXI — 219

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.