Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 1

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 1
I "S Ljósm.: Ljósmyndaslola Suíkirneaja Nytt glæsilegt fiskiskip sjósett Það var tímamótadagur I sögu Skipasmíðastöðvar Njarðvikur hf. og suður- nesjamanna 30. apríl sl., þegar nýtt glæsilegt fískiskip 280 rúmlesta rann af stokkunum. Meðsmiðiþess varstigiðstórtskrefiþróunarsögustöðvarinnar, hafin var raðsmiði stálfiskiskipa i samvinnu við norska skipasmiðastöð. Smíði á skrokk skipsins hófstí Noregi í júlí sl., hingað var honum fieytt ijanúarbyrjun. Pegar hann kom til S.N. 8. janúar varbúið að byggja þarþilfarog stýríshús. Síðan varunnið af fullum krafti við að koma því fyrir á sirm stað. Pá hófst niðursetning vélar og snnarra tækja. Aflvélin er dönsk 800 ha af Callesen-gerð. Prófanir hafa faríð fram á öllum tækjum og hafa þau reynst i besta lagi. Ibúðir áhafnar eru allar i afturskipi, mjög vandaðar og hinarglæsilegustu. Skipiðerbyggtfyrirlinu-, neta-, nót- og trollveið- arfæri. I skipinu er frystibúnaður og því hægt að fullvinna um borð t. d. rækju. Þá er norsk beitingavél um borð og íkælilest eru einangraðir 800 lítra gámar tH að kæ/a og geyma i físk. Þetta ernýjung, hönnuð afSæplastií Garðabæ og mun þetta vera fyrsta skipið sem búið er þessum búnaði. Þetta mun vera fyrsta stálskipið sem byggteri Skipasmiðastöð Njarðvikur. Eigandi skipsins er Gauksstaðir hf. í Garði. Forstjóri og aðaleigandi Gauksstaða er Þorsteinn Jóhannesson útgerðarmaður. Kona Þorsteins Kristín Ingimundar- dóttir gaf skipinu nafn er það var sjósett og heitir það Gunnjón. Einkennisstafír eru GK 506. Fyrst fer Gunnjón á linuveiðar. Skipstjóri verður dóttursonur Þorsteins og nafni Þorsteinn Þórðarson og vélstjóri Jóhann Andersen.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.