Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 7

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 7
hraustlega undir að ekki mátti meira vera til þess að þakið fyki ekki af Samkomuhúsi þeirra Garðmanna. Að dagskránni lokinni var að- standendum hennaróspart klapp- að lof í lófa. Höfundi og leikstjóra voru færð blóm að sýningu lokinni. Auk þess var leikfélaginu færður blómvöndur. Með honum fylgdi kveðja, þar sem Litla leikfélaginu var óskað góðs gengis og langra lífdaga. Ekki vildu sendendur láta nafns síns getið, en kveðjan var undirrituð „Velunnararfélagsins”. Það var álit manna að sýningin lofaði góðu um framtíð Litla leikfé- lagsins. Hér fer á eftir kafli úr leikdómi um sýninguna: „Húsfyllir var og geröu menn góðan róm aö skemmtuninni. Litla leikfélagið fékk vind i seglin fyrsta éfangann, sem vonandi nægir þeim til brautargengis næstu árin i glímunni við stærri verkefni. Suðurnesjamenn og þá einkum Qarðbúar, mega vera þeim þakklát- ir fyrir framtakið og styðja við bakið á þeim þegar mikið ríður á á erfiðri og grýttri braut listtjáningar". (Faxi, 1. tbl. 1977, bls. 13). Alls var „Koppalognið” sýnt 14 sinnum, þar af 7 sinnum í Garðin- um. 800 manns sáu sýninguna þar, en það eru nærri allir íbúar byggðarlagsins. Auk þess var sýnt tvisvar sinnum í Keflavík og farið í leikferð alla leið vestur að Saur- t>æ. Á leiðinni þangað var stoppað og sýnt í Lyngbrekku á Stykkis- hólmi, en síðan haldið með pomp og pragt að Saurbæ. Þar var hald- io sýning og dansleikur á eftir henni. Einnig var farið að Félags- garði í Kjós og upp í Borgarfjörð. Leikfélagið fékk alls staðar góðar viðtökur og voru allir ánægðir með árangurinn af þessari frumraun Litla leikfélagsins. Aðalfundur Á leiklistarnámskeið í Tromsö Aðalfundur Litla leikfélagsins eru haldnir í lok hvers leikárs. Þá eru gerðir upp reikningar félags- 'os, lagabreytingar framkvæmdar ef þess er þörf og kosið í nýja stjórn. En þetta er aðeins það sem eru fastir liðir. Önnur brýn mál ber einnig nokkuð á góma, t.d. hús- næðismál. Fyrsti aðalfundur Litla leikfé- logsins var haldinn hinn 26. maí 1977. Þar kom meðal annars fram, að útkoma reikninga félags- ins hefði verið góð. Einnig var sagt frá því að leikfélaginu stæði til boöa að senda fólk til námskeiða í förðun, Ijós- og hljóðbeitingu og leikmyndagerð. Auk þess væri bægt að senda einn mann á 10 daga leiklistarnámskeið í Tromsö í Kjartan Asgeirsson i hlutverki síra Konráðs og Krístbjörg Hallsdóttir í hlutverki Kristínar i,, Drottins dýrðar koppalogn ’ ’. Höfundurinn sem kynntur var, Jónas Amason, tekur lagið á frumsýningunni, ásamt Bóthildar-tríóinu, en það skipuðu þeir Brynjar Guðmundsson, Hólmberg Magnússon og Guðmundur Óli. Noregi. (Það var ekki rætt nánar á fundinum, en seinna var ákveðið að Helga Ólafsdóttir og Sígríður Halldórsdóttir færu á förðunar- námskeiðið, Bergmann Þorleifs- son fór á námskeið í leiktjalda- smíð og Svavar Óskarsson fór á námskeið í Ijós- og hljóðbeitingu. Til Tromsö var sendur Hreinn Guðbjartsson). Síðan var kosið í stjórn. Torfi gaf ekki kost á sér aft- ur í formannsembættið, en í hans stað var kjörinn formaður Berg- mann Þorleifsson. Auk hans voru kosin í stjórn Ólafur Sigurðsson varaformaður, Einar Tryggvason gjaldkeri, Helga Ólafsdóttir citari, Kristbjörg Hallsdóttir meðstjórn- andi og Sigríður Halldórsdóttir og Hreinn Guðbjartsson varamenn. Gísli Eyjólfsson var kjörinn endur- skoðandi. Því næst var fundi slitið. II. LEIKÁR UTLA LEIKFÉLAGSINS „Hart í bak” við góðar undirtektir Annað leikár félagsins fór ró- lega af stað. Ákveðið var að taka til sýningar leikritið „Hart í bak” eftir Jökul Jakobsson. Leikstjóri var ráðinn, en það var Sævar Helga- son, sá hinn sami og leikstýrði „Koppalogninu”. Æfingar hófust í desember 1977. Leikendur voru 12. í aðalhlutverkum voru þau Ólafur Sigurðsson sem lék Jónat- an, Hólmberg Magnússon sem lék Láka og Ingibjörg Gestsdóttir sem lék Áróru. Aörir leikendur voru: Fimmbjörn, EinarTryggvason. Ár- dís, Inga Stefánsdóttir. Stígur, Svavar Óskarsson, Pétur, Unn- steinn Kristinsson. Gógó, Ingi- björg Eyjólfsdóttir, Sirrí, Þómý Jó- hannsdóttir. Rukkarinn, Hreinn Guðbjartsson. Tveir menn, Berg- mann Þorleifsson og Torfi Steins- son. Leikmyndin sem var notuð var upphaflega leikmyndin úr Iðnó. Hún hafði verið notuð víða um land og kom í Garðinn frá Leikfé- lagi Vestmannaeyja. „Hart í bak” var frumsýnt í Samkomuhúsinu í Garði hinn 29. janúar 1978, við góðar undirtektir áhorfenda. Leikritið fékk góða dóma í blöðum, eins og sjá má: „Litla leikfélaginu vil ég að lokum þakka ánægjulega kvöldstund og ég vil eindregið hvetja til þess að sækja þessa sýningu sem best". (Á.Á. Þjóðviljinn, 10. feb. 1978) „Sýningin varhonum og Litlá ieikféiaginu til sóma; skemmtilega og vel uppfærð. Leik- sviðið var gott - maður fann næstum þvi þara og tjörulyktina, með Jónatani, hinum blinda...” (Jón Tómasson, Faxi, 1. tbl. 1978) Þess skal getið hér, að með „honum” eins og stendur í leik- dómi Jóns Tómassonar er átt við leikstjórann Sævar Helgason. Hart í bak var ekki einungis sýnt í Garðinum. Sýnt var í Félagsbíói 10. febrúar 1978. Einnig var farið í Félagsgarð í Kjós og í leikferð til Selfoss og Hellu. Aðalfundur Á öðrum aðalfundi sem haldinn var hinn 25. maí 1978 voru eftir- taldir menn kosnir í stjórn: Torfi Steinsson formaður, varaformað- ur Unnsteinn Kristinsson, Krist- björg Hallsdóttir gjaldkeri, Ómar Jóhannsson ritari, meðstjórnandi Hólmberg Magnússon og vara- menn Svavar Óskarsson og Inga Stefánsdóttir. FAXI-79

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.