Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 13

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 13
nema í reknet. Viö veiddum 750 tunnur og þótti ágæt veiði. Það bætti kjörin líka mikið, hve hátt verð var borgað fyrir hverja tunnu saltaða. Þegar við komum í Faxa- flóann á heimleið að norðan, fannst okkur svo síldarlegt þar, að við lögðum netin og létum reka Morguninn eftir höluðum við inn 150 tunnur af stórri og feitri síld. Þegar heim kom, seldum við afÞ ann í frystihús ísfélagsins, þar sem síldin var frysti til beitu. Þegar ég kom heim í Litla bæ- inn, en svo hét húsið, sem ég bjó í, var manna mín orðin sárveik, en var þó á fótum. Hún var búin að finna fyrir þessu á aðra viku áður en ég kom, en leitaði ekki til lækn- is, Þegar svo læknirinn rannsak- aði hana, var hún með sprunginn botnlangann og með lífhimnu- bólgu. Að fáeinum dögum liðnum var hún dáin, 57 ára gömul. Við systkinin bjuggum áfram saman í bænum, Júlla, Tóta, Gummi, Nína og ég. En ég heltist úrlestinni 1928, þegaréggiftimig. Árið 1928 verður breyting á högum mínum til heilla í byrjun ársins 1928 kynntist ég ágætri stúlku, Kamillu Jónsdóttur, sem þá átti heima hjá foreldrum sínum á Tjarnargötu 2 í Keflavík. Hinn 11. nóvembersamaárgeng- um við Kamilla í hónaband og hóf- um búskap í helmingi hússins að Tjarnargötu 2. En þessa íbúð hafði ég keypt af foreldrum Kam- illu og bróður hennar, Guðmundi Marinó Jónssyni. Þau systkinin, Guðmundur og Kamilla ásamt móðursinni, Maríu Benediktsdótt- ur höfðu byggt þetta hús árið 1926. Áður en ég kom í spilið, var í húsinu matsala og sjóbúð. Þarna voru í fæði og húsnæði 10-12 sjó- og landmenn af ýmsum bátum, og herbergin voru full af kojum. Við hjónaefnin stóðum í heil- miklum framkvæmdum fyrir brúð- kaupið við að lagfæra íbúðina. Ég hafði þó nokkuð rúm peningaráð eftir þess tíma mælikvarða. Ég byrjaði með því að kaupa orgel og gefa unnustunni, sem þótti nokkur viðburður þá. Við máluðum og veggfóðruðum alla íbúðina. Kam- illa var bráðsnjöll að skipueggja allt og fegra. Ég dúklagði gólfin og þegar því var lokið, fór ég til Reykjavíkur og keypti heilt bíl- hlass af húsgögnum, allt sem þurfti í svefnherbergi og stofu. Þegar öllum húsgögnunum hafði verið komiðfyrir, voru þettaorðnar stórglæsilegar vistarverur. Ágæt búskaparbyrjun, sem við bjuggum M/b Bjami Ólafsson GK 509 við bryggju á Siglufirði. lengi að, er erfiðar tímar þrengdu að. ' Seinni part sumars árið eftir, lagði ég skolpleiðslu frá húsinu og vatnsleiðslu úr brunninum, sem var sunnan við Tjamargötuna og kallaður var Nástrandarbrunnur. Vatnsleiðslan var lögð inn í kjall- ara húsins og var þar tengd við hana handdæla. Þaðan var leiðsla upp á háaloft í 100 lítra vatnsdúnk. Einnig setti ég krana í kjallarann, svo nú var hægt að dæla beint á þvottinn. Við vorum ekki nema 5-6 mínútur að dæla vatnsdúnkinn fullan og hann entist í 1-2 sólar- hringa. Þetta voru geysileg við- brigði frá því, sem áður var, sér- staklega fyrir kvenfólkið. - Nokkru síðar komu á markaðinn raf- magnsdælur með þrýstikút. Þetta var tilvalið verkfæri til að dæla vatninu í húsið, en var nokkuð dýrt fyrir eitt hús að leggja í með þeim fjárhagsástæðum, sem við Guð- mundur Marinó mágur minn höfð- um þá. Við ákváðum þá að tala við nokkra nágranna okkar um sam- vinnu með vatnsleiðslu. Endirinn varð sá, að átta heimili tóku þátt í þessum framkvæmdum, að leggja leiðsluna og kaupa rafmagns- dælu. Dælan var sett niður í kjall- aranum hjá okkur voru allir þátt- takendur yfir sig hrifnir af þessum framkvæmdum. Þegar nábúarnir fréttu af þess- um framkvæmdum, bámst okkur margar beiðnir um að mega tengja leiðslur frá dælunni. Leyfð- um við þá nokkrum að tengja til viðbótar, en þegar komin vom 21 hús á leiðsluna, neituðum við al- gjörlega að bæta fleirum húsum á. Síðasta húsið, sem tengt var við var hús Þóris Jónssonar, við Hringbraut 96. Hér var um að ræða íbúaðrhúsið og auk þess fjós og fjárhús, þar sem hann hafði 6 kýr og nokkrar kindur. Eftir Jónsmessu árið 1927 hætti ég á sjónum og vann í landi það sem eftir var sumars hjá ísfélagi Keflavíkur, við að grafa fyrir og steypa upp fyrir vatnstjöm, sem nota átti til að taka ís af að vetrin- um, því mjög erfitt var oft að ná í ís til íshússins. Helstu fangaráð vom að sækja ísinn til Seltjarnar í Grindavíkurhrauni. Verkstjóri við verk þetta var Guðmundur Guð- mundsson, skólastjóri. Þessar framkvæmdir heppnuðust prýði- lega og náðist mikill ís næsta vet- ur, en samt ekki nægilegur, svo ákveðið var að byggja þró fyrir aðra tjörn næsta sumar. Við þetta verk var ég ráðinn verkstjóri og gekk verkið prýði- lega. Éinnig var þetta sumar fjar- lægður gamli ísgeymirinn, sem var fyrsta íshúsið á þessum stað. Var hann hlaðinn grjóti og torfi. Síðan var byggður nýr geymir úr steinsteypu, sem tók það mikið, að nægar birgðir voru allt árið, og tjarnirnar tvær fullnasgðu ísþörf- inni. Einnig var grafið eftir vatni til afnota í vatnsgeymana. Þetta var nokkuð djúpur bmnnur, og var véladæla sett ( hann nokkru fyrir ofan vatnsborð. Gekk þannig ágætlega að dæla í geymana. Etfiður sjúkdómur sækir mig heim Ég vann við ísgeyminn langt fram eftir hausti. Síðast var ég við að leggja loftið á geymana og ein- angra það með spónum. í einum eða tveimur pokunum vom spæn- irnir svo harðir, að þeir særðu báða úlnliði mína, þar sem vettl- ingarnir náðu ekki að hlífa. Vom þessi sár eftir spænina upphafið að afar svæsnum og langvinnum exemsjúkdómi, sem færðu mig úr skyrtunni efnalega hvað eftir ann- að, svo árum skipti, og er ég ekki laus við þann kvilla enn í dag. Þá eru þær ótaldar stundirnar, vik- urnar og mánuðimir, sem ég missti vegna þessa erfiða sjúk- dóms. Þær em margar áburðar- flöskurnar og túbumar, sem ég varð að leggja út peninga fyrir, án þess að fá nokkum styrk annars staðar frá, fyrr en sjúkrasamlagið kom til sögunnar og fór að greiða hluta af kostnaði. Útgerðin gekk vel og nýr bátur var keyptur Útgerðin gekk svo vel fyrsta kastið að ákveðið var að láta smíða nýjan og stærri bát í Reykjavík, 20 lesta skip. Norska furubátinn seldum við til Vest- mannaeyja. Nýi Bjarni var mikið meira og betra skip, sérstaklega voru vistarverur skipshafnar rýmri og vistlegri, og einnig var lítil káeta fyrir skipstjóra og vélamann. Ég var allar vetrarvertíðir land- formaður á Bjarna, einnig fór ég nokkrum sinnum til Siglufjarðar og var þá ýmist verið með reknet eða línu yfir sumarið. Þénustan var misjöfn, oft sæmileg, en aldrei mikil. Alltaf náðu þó endar saman þegar gert var upp i árslok. Mig minnir, að það hafi verið 1927, sem til þess vantaði 4.000 krónur. Þá varð hver hluthafi að lána fé- laginu kr. 670 af sínum hlut. Eftir 3 ár fékk ég það endurgreitt. Framhald í næsta blaði. Frá Sérleyfis- bifreiðum Kefiavíkur Frá og með 1. mai n.k. verður sú breyting á ferðaáætlun okkar, aðeftirgreind aukaferð á laugardagskvöldum fellur niður: FRÁ SANDGERÐIKL 22.00. FRÁ KEFLAVlK KL 22.30. FRÁ REYKJAVlKKL. 24.00. Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur. FAXI - 85

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.