Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 4

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 4
 Hafiðhugann dregur. Sú mun ein höfuðástæðan fyrir því að svo margir sem raun er á. leggja að staðaldri leið sína inn að Keflavík- urhöfn, ef þeir eru á skemmti- keyrslu eða göngu. Þeir sem ak- andi eru staðnæmast gjaman á bakkanum ofan við höfnina og fylgjast þaðan með því, sem fyrir augu ber. - Á sumardaginn fyrsta í vor, bar mig sem oftar að þessum vinsæla og ágæta útsýnisstað. Þetta var skömmu fyrir kvöldmat og það leyndi sér ekki að þennan dag voru fleiri þarna að forvitnast og fylgjast með en flesta aðra daga vertíðarinnar, enda er þessi dagur öðrum vertíðardögum ólík- ur fyrir marga hluta sakir. Á flest- um bátunum er fáni við hún, og fáir munu þeir sem gleðjast innilegar en sjómennirnir yfir því að sumar- ið er komið og váleg vetrarveður eru að baki. Þessa stundina skín sólin glatt, en áttin er vestlæg og allhvöss, þannig að sjóveður í dag hefur ekki verið eins og best verður á kosið. Bátarnir sem fyrstir hafa komið að landi eru nýbúnireða um það bil að Ijúka við að landa. Fiski- ríið er tregt í dag eins og verið hefur almennt í Keflavík þá róðra sem farnir hafa verið eftir veiði- bannið, sem var dymbilvikuna og fram yfir páska. - Eg er ekki lengi að gera mér grein fyrir því hvaða bátar eru í höfninni, því ég er að svipast um eftir ákveðnum bát. Hann er ókominn, en óskastund virðist í sjónmáli. Báturinn sem nú sést koma siglandi utan við hafnar- garðinn er sá, sem ég er að huga að. Þessi bátur á að baki 28 ára samfellda sögu í bátaflota þess- arar hafnar. Allan þann tíma eiga báturinn og skipstjóri hans sam- eiginlega sögu. Slíkt mun fátítt og er ugglaust einsdæmi í Keflavík- urflotanum. Báturinn er Gunnar Hámundar- son og ég hef hugsað mér að heilsa upp á skipstjórann Þon/ald Halldórsson, sem þekktur er undir nafninu Valdi í Vörum. Það er gaman að fylgjast með þegar bátnum er lagt að bryggju og þeg- ar uppskipunin hefst. Allt gengur án fums eða fálms og greinilegt að þama er samstillt skipshöfn að verki. Þorsteinn á Borg bróðir Valda og aðal meðeigandi í út- gerðinni er kominn á vörubílnum og rennir honum undir uppskipun- armálið fullt af fiski, en því miður eru fiskmálin í færra lagi í dag. Valdi bregður sér sem snöggvast inn í bíl til bróðursíns og þeir ræð- ast við litla stund. Síðan fer bíllinn og það er þá, sem ég gef mig á tal við Valda og eftir að við höfðum heilsast spyr ég hann: Hvað lengi ertu búinn að vera formaður og hvemig hefur starfsferli þínum verið háttað? Ég er búinn að vera formaður í 34 ár, en eiginleg sjómennska mín hófst skömmu eftir fermingu. Þá var ég með Gísla bóður mínum á síldveiðum í reknet. Það var á fyrsta dekkbátnum, sem bar nafn- ið Gunnar Hámundarson. Hann var 17 tonn. En áður átti faðir minn og stjórnaði átta manna fari og var það fyrsta skipið með þessu nafni. Bæði áður og síðar þegar ég var ekki á sjó vann ég svo í fiskverk- uninni hjá föður mínum Halldóri Þorsteinssyni. Það var aðgerð og saltfiskverkun á veturna og þurr- fiskverkun á sumrin. Við feðgarnir vorum alla tíð ákaflega samrýndir og samstarf okkar hélst, alla tíð náið og einlægt meðan hann lifði, en hann dó árið 1980 - 93 ára gamall. Árið 1939 fór ég í Sjó- mannaskólann og lauk minna fiskimannaprófinu vorið 1940. Eft- ir það gerðist ég stýrimaður hjá Gísla bróður mínum á sumrin og landformaður á vetuma. Þá rerum við úr Sandgerði og Gísli aflaði mikið eins og kunnugt er. Á þess- um árum þurftu landmennimir að slægja aflann auk þess að beita línuna, þannig að þetta var mikil vinna. 1941 fengum við nýjan Gunnar. Það var 27 tonna bátur smíðaður á Akranesi. Þrem árum síðar seldi pabbi okkur Gísla svo helminginn í bátnum. Skömmu síðar hætti Gísli formennsku á Gunnari og gerðist formaður á stærri bát hjá annari útgerð. Það var svo litlu síðar eða nánartiltekið sumarið 1948 sem ég lagði út í að taka við formennsku á bátnum og byrjaði ég með hann á reknetum, og var síðan með hann samfellt þar til sumarið 1950. En þá var hann sigldur niður af enskum tog- ara, sem sigldi okkur uppi og keyrði inn í bátinn að aftan. Þetta gerðist um 12 mílur vestur af Garðskaga þegar við vorum á landstími úr reknetaróðri. Litlu munaði að ég léti lífið í árekstrin- um, því stefni togarans kom inn úr bátnum í káetunni, örskammt frá kojunni sem ég svaf í. Sem betur fór björguðumst við allir, sjö að tölu, heilir á húfi, um borð í togar- ann og m/b Ingólf, sem kom þarna að skömmu eftir áreksturinn. Næstu fjögur árin eftir þetta áttum við engan bát. En ég og pabbi tók- um báta á leigu yfir reknetatímann og man ég að eitt þetta sumar gekk veiðin mjög vel og öfluðum við þá 5000 tunnur, sem var met- veiði. Þessar vetrarvertíðir var ég með báta sem aðrir áttu og gerðu út. Svo var það árið 1954, sem við létum smíða þennan bát. Hann er smíðaður í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og er 49 tonn. Þá kom Þorsteinn bróðir inn í útgerðarfé- lagið en Gísli hætti og þannig stóð sameign okkar þar til pabbi dó, en síðan eigum við Þorsteinn fyrir- tækið að öðru leyti en því, að Vil- hjálmur bróðir okkar á 1/36 hiuta en það er sem svarar föðurarfin- um, því 12 erum við systkinin. Á þessum bát höfum við stundað þorskveiðar með línu og þorska- netum á veturna. Fram til um 1960 vorum við á síldveiðum í reknet á sumrin og haustin, en þá tók alveg fyrir þá veiði og síðan höfum við einkum stundað handfæraveiðar þegar ekki hefur verið róið með línu eða net. Árshátið barnastúkunnar Nýjársstjörnunnar nr. 34 í Keflavík var haldin í Gagnfræðaskólanum föstudaginn 16. apríl. Flutt var heima- tilbúin dagskrá, m.a. tilkomumikil tískusýning. Um 250-260 börn og unglingar sóttu skemmtunina, sem með- fylgjandi myndir eru frá. Barnastúkan Nýjársstjarnan varstofnuð 1. janúar 1904 og erelsta starfandi félag i Keflavík. Yfir vetrartímann eru fundir á þriggja vikna fresti, auk grímuballs i nóvember og árshátíðar í apríl. í febrúar var efnt til iþróttamóts þar sem þrjár barnastúkur tóku þátt: Vinabandið úr Kópavogi, Örkin úr Reykjavík og Nýjársstjarnan. í sumar verður farið á vormót barnastúkna í Galtalæk um Jónsmessuna. í fyrra fóru 85 börn þangað. Gæslumaður Nýjársstjörnunnar er Hilmar Jónsson bókavörður. FAXI - 76

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.