Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 9

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 9
Athugasemd 1 Ég vil gera þá athugasemd viö grein í síðasta tölubl. Faxa sem undirrituð er af Skúla Magn- ússyni, en þar segir að hætt hafi verið við byggingu byggðarsanfs á Vatnsnesi vegna vöntunar á lóð. Bærinn nýtti sér þann for- kaupsrétt er gjafabréf Bjamfríð- ar Sigurðardóttur veitti honum til uppbyggingar byggðasafns á Vatnsnesi og keypti rúma 5000 ferm. lands. Byggðasafnsnefnd lét gera tillöguuppdrátt að vænt- anlegu safnhúsi, ofan vert við Vatnsneshúsið, er Bjamfríður hafði gefið bænum, sem vísi að framtíðarsafni. Bæjarstjórn hafnaði þeirri tillögu 1980 á þeim forsendum að óþarflega væri lagt í bygginguna. Á sl. hausti fékk svo stjórn byggðasafnsins fund með bæjarráði og fór þá fram á við það að leyfi fengist til að byrja á 250 fm kassabygg- •ngu, sem yrði byrjun á væntan- legu safni og yrði áætlað að Ijúka þessum fyrsta áfanga á tveim- þrem árum. Byggðasafnsnefnd er Ijóst, að eigi að halda áfram að safna munum til varðveislu, þarf húsrými til að hafa munina til sýnis, ella hefur fólk ekki áhuga á að láta af hendi muni til safnsins. Bæjarráðsmenn sem mættir voru virtust jákvæðir varðandi þessa beiðni, en töldu sig þurfa að ræða þetta við Njarðvíkinga, sem væru meðaðilar að safninu og skyldi slíkt gert strax í næstu viku. Af því varð þó ekki, og þegar fjárhagsáætlun er afgreidd nokkru síðar er beiðninni hafn- að. Að mínu mati er nægjanlegt landrými á Vatnsnesi fyrir „Safnahús” vilji menn þeir, sem þessu ráða, heldur hafa þann háttinn á. Ólafur A. Þorsteinsson ..SAFNAHÚS” merkir hér sameigin- le9< hús fyrir byggðasafn, bókasafn °g Hstasafn. ÓI.A.Þ. MINNING: Bjami G. Sigurðsson Sandgerði Bjarni Guðmundur Sigurðsson, en svo hét hann fullu nafnirandaðist 6. febr. sl. og var jarðsunginn frá Hvalneskirkju 20. sm. Hann hafði verið sjúklingur undanfarin ár og óvinnufær síðustu mánuðina. Bjami var fæddur 22. sept. 1920, að Brekku- koti í Þingi í Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Bjama- son og Anna Sigurðardóttir, er bjuggu í Brekkukoti, en eru nú bæði látin. Systkini Bjarna vom sex, fimm bræður og ein systir og eru fimm þeirra á lífi. [ uppvextinum, fram yfir fermingu, vann Bjarni algeng sveitastörf heima hjá foreldmm sínum. En fór skömmu síðar til náms í Bænda- skólann á Hólum og útskrifaðist þaðan eftir tveggja vetra nám. Að námi loknu vann Bjarni nokkur sumúr við skurðgröft og jarðarbætur, en vann á vertíðum eftir 1948 í Sandgerði við ýmis störf hjá Garði hf., og var þar síðast viktarmaður. Þá vann hann lengi hjá Miðneshreppi og þar var síðasti vinnustaður hans. Bjarni var vel gefinn til sálar og líkama. Hann var bókhneigður mjög, sérstaklega var hann Ijóðelskur og átti gott bókasafn. Ég sem þessar línur rita, kynntist Bjarna í störfum hans að verkalýðsmálum. Þar var hann ávallt heill og óskiptur og skoraðist aldrei undan störfum á þeim vettvangi. Hann vald- ist snemma þar til starfa, var 26 ár í stjóm verkalýðsfélagsins og lengst af ritari. Þeir sem þekktu störf Bjama á því sviði, undra sig ekki á því, að honum hafi verið falinn sá starfi, því hvort tveggja var, að Bjami var fljótur að skrifa og var þó skrift hans áferðarfalleg, og svo var hitt, sem ekki var hvað minnst um vert, en það var, hve nákvæmlega hann náði að festa á blað það, sem mestu skipti í hverju máli. Árið 1952 kvæntist Bjarni eftirlifandi konu sinni, Bergey Jóhannesdóttur frá Hlíðarhúsum í Sandgerði. Þar hófu þau fyrst búskap, en síðar byggðu þau sér einbýlishús að Túngötu 23 í Sandgerði og bjuggu þar síðan. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: Ragn- heiður Hulda, gift og búsett í Reykjavík, Jó- hannes býr í Sandgerði, Anna á heima á Bíldu- dal og Sigurður, kvæntur og búsettur í Sand- gerði. Hann á son, sem ber nafn Bjarna afa síns. Bjarni var félagslyndur maður. Auk þess, sem hann sat í stjóm verkalýðsfélagsins, sem áður er getið, átti hann sæti í stjórn Kaupfé- lagsins Ingólfur og var siðast í varastjóm Sandgerðisdeildar Kaupfélags Suðurnesja. Með línum þessum flyt ég Bjama G. Sig- urðssyni mínar innilegustu þakkirfyriránægju- legt samstarf og góð kynni .um leið votta ég eftirlifandi konu hans, ættingjum öllum og öðr- um aðstandendum innilega samúð. Ragnar Guðleifsson. SANDGERÐI - MIÐNES Síðasti gjalddagi útsvars- og aðstöðu- gjalda er 1. júnín.k. Greiðið á gjalddögum og forðist óþarfa kostnað. Sveitarstjóri Miðneshrepps. FERMINGARMYNDA- TÖKURNAR ERU ENN í FULLUM GANGI LJÓSMYNDASTOFA SUÐURNESJA Hafnargötu 79 - Keflavik - Simi 2930 FAXI - 81

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.