Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 5

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 5
Þorvaldur Halldórsson skipstjóri og fjölskylda hans. Fremri röð: Ingibjörg Jóhannsdóttir, Vilberg Jóhann, Þorvaldur, Þorvald- ur Halldórsson. Aftari röð: Halldór Kristbjöm, Valgerður, IngimarJón. Mér er kunnugt um að bátur þinn var hætt kominn hér í höfn- inni í óveðrinu, sem geisaði að- taramótt annars jóladags. Segðu mér frá því og gangi ver- tíðarinnar. Já, það var núna um síðustu jól á jóladagskvöld. Veðurspáin var slæm og farið var að kalda á aust- an, suð-austan. Svo ég skrapp inn í bát í eftirlitsferð eins og ég er vanur að gera. Það var ekkert óveður komið þá, bara bræla. Ég bætti samt upp fleiri böndum og setti fleiri dekk á síðuna. Þau höföu verið fjögur, en ég fjölgaði þeim í tíu. Þótti það vissara ef veðrið skyldi versna eitthvað meira. Ég taldi bátinn vera á góð- um stað í höfninni. Hann var inni í Króknum, sem kallað er, þriðji bát- ur í röð og lá utan á Vatnsnesinu, en Hvalsnesið var næst garðinum. • röðinni fyrir framan lá Stafnes við garðinn og utan á því voru Heimir og Árni Geir. Seinni part nætur hvessir óskaplega mikið og hrað- aði ég mér þá inn í Keflavík. Þá var klukkan um sex og þegar ég kem hingað niður að höfn þá var ekki viðlit að komast um borð. Sjóirnir gengu alveg óbrotnir yfir garðinn °9 spýtnabrak úr Hafskipabryggj- unni hentist þarna yfir líka, en hún sópaðist burt í þessu óveðri, sem kunnugt er. Þegar þarna var kom- ið voru bátarnir í fremri röðinni óyrjaðir að slitna frá og lentu þeir á Gunnari og Vatnsnesinu, en sem betur fer var Oddur Sæmundsson um borð í bát sínum Vatnsnesinu ásamt einhverjum af sínum mönn- urn. Oddur hafði komist um borð upp úr miðnætti og |3egar hann sá hvað verða vildi þá bara keyrði hann á bátana fyrir framan til að reyna að halda þeim sem lengst frá, því annars hefðu báðar raðim- ar farið upp í fjöru ef þeir sem voru teknir að losna hefðu slitið aftari bátana frá. Bæði Heimir og Árni Geir lentu utan á Gunnari, en eins og þú veist er Gunnar sá eini þessara báta, sem er trébátur og lang minnstur þeirra og brutu þeir hann nokkuð mikið. Um tíma leit jafnvel út fyrir að þeir mundu sökkva honum. Eins og ég var búinn að segja var ekki viðlit fyrir mig að komast um borð í Gunnar, svo ég fór inn á radíóstöðina. Halldór Ibsen var á stöðinni og ég fékk að tala við Odd á Vatnsnesinu og bað hann um, ef mögulegt væri, að senda mann um borð í Gunnar, til að grennsl- ast eftir hvort leki væri kominn að honum. Oddur gerði þetta og sem betur fór var ekki um stórvægileg- an leka að ræða. Á meðan Oddur var að keyra fram í til að halda bátunum frá komu menn vír upp í garðinn úr Heimi. Var það mjög vel gert af þeim vösku drengjum, sem þar áttu hlut að máli í slíkum sjógangi og veðurham, sem þarna var. Eftir að þessu var lokið gátu þeir híft röðina aftur að garðinum og eftir það var Gunnar úr allri hættu. Svo komst ég nú um borð þegar byrjað var að falla út en stórsteymi var og háflæði því á milli kl. sex og sjö. Þá voru mestu ósköpin afstaðin. Það varekki um- talsverður sjór kominn í bátinn en hann var mikið brotinn. - Um þetta er svo ekkert fleira að segja. Við komum bátnum fljótlega í slipp í Njarðvík og það gekk alveg Ijóm- andi vel að gera við skemmdirnar, en m.a. voru 10 stutturstjómborðs- megin brotnar. Við gátum hafið vertíðina um mánaðamótin jan.- febr., þannig að við misstum ekki nema hálfan mánuð af vertíðinni því ekki var leyft að hefja róðra fyrr en 15. janúar. - Vertíðin hefurver- ið stormasöm og það hefur verið erfitt að stunda sjó í vetur. Okkur gekk ágætlega að fiska í mars. Marsaf linn okkar í ár var 100 tonn- um meiri en í sama mánuði í fyrra. En aftur á móti virðist aprilmánuð- Framhald á bls. 97 M/b Gunnar Hámundarson GK 357 í fangbrögðum við Ægi. Ljósm.: Snorri Snorrason. FAXI-77

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.