Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 25

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 25
Að swnnan kom voríð sunnan kom vorið með sólskinið bjarta og ylinn, og söngfuglahóparnir dreifðust um rindana og gilin. Hreiður þeir gerðu sér flestir í grösugm móum. Afgleði við bömin þá dönsuðum sungum og hlógum. Þvi vorið lér bernskunnar björtu og glöðustu stundir. En blámi þess vekuri hjartanu þrá um þærmundir, og löngun þín býður að leggja út á veraldarstiginn. I lýsing með stafþinn þá vertu til ferðar tyginn. Þú leggur afstað með nestið og nýgerða skóna, þótt notalegt sé að hvíla við öskustóna. - Ef skapanornir þig skelfa á förnum vegi, er skylda þín maður að þrauka uns hallar degi. En þá máttu hvílastog hverfa i liðinn tima, og hvetja til dáða þá er við nornirnarglíma. Og reynsla þín kemur æskunni eflaust til góða, því ástin til vorsins hefur svo margt að bjóða. Hjarta mitt ennþá hrærist i bernskunnar vori, og hamingjan brosirþar við méri hverju spori. - Þá lífið á jörðinni leggurþér malinn á herðar, létturhann veróur ef býstu með gleði til ferðar. JóhannJónsson Vertíðarrabb... -----------------------Framhaldafbls. 77 ur ætla aö veröa lélegur og ekkert lát er á ótíðinni. Núna erum við búnir aö fá um 300 tonn. í vetur sem endranær hef ég haft meö mér góöa drengi á sjónum. Einn þeirra, sem með mér er nú, hefur verið hjá mér í 21 ár og tveir hafa veriðí 14-15 ár. Þegar þú lítur til baka yfir þinn sjómannsferil þá er þér sjálf- sagt margt minnisstætt. Mér er sérstaklega hugleikið allt það góða fólk sem ég hef átt sam- skipti við jafnt hér heima fyrir, sem annars staðar. Sjómannsferill minn er nú orðinn yfir 40 ár og hef ég alla tíð verið mjög heilsu- hraustur. Ég minnist þess ekki að hafa misst úr nema 4 róðra, en það var vegna smá meiðsla, sem ég varð fyrir. Ekkert umtalsvert óhapp hefur hent mig á skipstjórn- arferlinum utan það þegar bátur minn var sigldur niður, en þá lán- aðist sem betur fer að bjarga öll- um mönnunum. Að sjálfsögðu hef ég oft hreppt slæm sjóveður, en báturinn er úrvals sjóskip svo allt hefur endað vel. Við höfum yfirleitt aflað vel. Oft vorum við með hæstu bátum á reknetum og tvær vertíðir í röð fengum við t.d. yfir átta hundruð tonn og er það mjög gott fiskirí á ekki stærri bát. Ég hef fylgst með þegar gengið er frá bátnum. Honum er lagt að austanverðu við vestustu bryggj- una. Þar eru fyrir bátar tveggja gamalreyndra formanna m/b Þor- steinn KE 10 sem stjórnað er af Guðjóni Jóhannssyni og bátur Ingólfs R. Halldórssonar, Svanur- inn KE 90. Þessir þrír bátar eru allir af minni gerð vertíðarbáta, sem héðan róa í vetur. Utar við bryggjuna liggja þeir Ólafur Ingi og Pétur Ingi, sinn hvoru megin. Þeir bátar geta að hinu leytinu talist fulltrúar, stærri bátanna í flotanum og formenn þeirra góðir fulltrúar þeirra ungu formann, sem erfa skulu flotann. Áður en ég kveð Valda, hefur hann sagt mér með nokkru stolti að stýrimaðurinn um borð heiti Halldór og annar vélstjórinn Vil- berg og séu þeir synir hans. Frétt hef ég að í skipaskoðunar- Byggingaverkfræðingur Byggingatæknifræðingur óskast til starfa sem fyrst. Æskilegt að við- komandi hafi nokkra starfsreynslu. Upplýs- ingar veitir Guðmundur Björnsson í síma 1035. VERKFRÆÐISTOFA SUÐURNESJA Hafnargötu 32 - Keflavík bók Gunnars Hámundarsonar standi skráð viðurkenning skipa- skoðunarmanns þess efnis að öll umhirða og viðhald bátsins sé eig- endum hans til mikils sóma og sannrar fyrirmyndar og kemur slík viðurkenning engum þeim áóvart, sem til þekkir. Sögur herma að kappinn Gunn- ar á Hlíðarenda hafi haft fagurt og bjart yfirbragð, en um tryggð sumra við hann má deila, en full- yrða má að nafni hans m/b Gunn- ar Hámundarson GK 357 hafi hvort tveggja til að bera, bjart og fagurt yfirbragð og tryggð sinna. Valdi er léttur á fæti þegar hann hoppar upp á bryggju. Það er ekki að sjá neitt lát á þessum sægarpi, þó hann hafi nú tvó* ár um sextugt. Fyrr en varir er hann kominn upp í bíl sinn og lagður af stað heim til sín út í Garð. Án efa verður það honum kær- komið að njóta þessa fyrsta sum- arkvölds í faðmi fjölskyldu sinnar heima í Vörum. Kristján A. Jónsson. Úrval fúavarnarefna Nú eftir frosthörkur vetrarins - já, og sumarsins líka - fer að verða tímabært að fúaverja tréverkið á ný. FAXI - 97

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.