Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 8

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 8
SVEPMYNDIR ÚR „HARTÍBAK” Svavar Úskarsson, (Stígur) og Ingibjörg Gestsdóttír (Áróra). Talið frá vinstri: Hólmberg Magnússon (Láki), Inga Stefánsdóttir (Árdís). Blindi kapteinninn Jónatan, Ólafur Sigurðsson og Láki, Hólmberg Magnússon. III. LEIKÁR UTLA LEIKFÉLAGSINS Þrjú verkefni þriðja árið Þetta leikár varö annasamt fyrir þá félaga í Litla leikfélaginu. Sett voru upp 3 verk, en þau voru: Kynning á Jóhanni Jónssyni, Del- eríum Búbónis eftir Jónas Áma- son og Sjö stelpur eftir Erik Thor- stensson. Sjö stelpur var fyrsta er- lenda verkiö sem Litla leikfélagiö sýndi. Höfundarkynningin Haustið 1978 varö einn af með- limum Litla leikfélagsins, Jóhann Jónsson sextugur. Jóhann (er skáld mikið), hefur samið talsvert af Ijóðum og einnig hefur hann samið leikþætti og smásögur. Hann hafði starfað mikið fyrir leik- félagið og var því ákveðið að heiðra hann með því að halda kynningu á verkum hans. Á kynningunni var sýndur leik- þátturinn „Knattspyrnumaður- inn”. Lesið úr Ijóðum og sungið. Leikendur í „Knattspyrnumannin- um” voru fjórir, Magnús Eyjólfs- son sem lék Magga miðherja, Dagný Hildisdóttii; sem lék Siggu konu Magga, Bragi Andrésson, sem lék Gussa og Herbert Guð- mundsson,sem lék Þórð þjálfara. Leikstjóri var Jóhannes Steins- son, en leikmynd hannaði Jóhann sjálfur. Fjórar konur sáu um upplestur úr Ijóðum Jóhanns, þær Guðný Helga Jóhannsdóttir, Guðrún Steinþórsdóttir, Kristbjörg Halls- dóttir og Sigríður Halldórsdóttir. Bergmann Þorleifsson flutti erindi um skáldið og seinast á dag- skránni var söngur. Sungin voru lög eftir Ómar Jóhannsson við Ijóð Jóhanns og tók hann sjálfur lagið. Um hljóðfæraleik sáu Torfi Steins- son, Ómar Jóhannsson og Hólm- berg Magnússon. Höfundarkynn- ingin var frumsýnd 24. október 1978, en hún var haldin alls þris- var sinnum. Deleríum Búbónis Deleríum var annað verkið sem Litla leikfélagið sýndi eftir Jónas Árnason. Flosi Ólafsson leikari, var ráðinn leikstjóri og hófust æf- ingar20. október 1978. í Deleríum Búbónis er mikið um söng og var Grettir Björnsson harmonikkuleik- ari fenginn til að sjá um undirleik. í Deleríum Búbónis voru 9 leik- arar. Aðalhlutverkin voru í hönd- um Hólmbergs Magnússonar, sem lék Ægi Ó. Ægis, forstjóra, Pálínu konu hans lék María Guð- finnsdóttir, dóttir þeirra, Guðrúnu lék Helga Ólafsdóttir. Önnur hlut- verk léku: Jafnvægismálaráðherr- ann bróður Pálínu, Ólafur Sig- urðsson, Leifur Róbertsson fóst- ursonur jafnvægismálaráðherr- ans var leikinn af Unnsteini Krist- inssyni. Sigga vinnukona, Margrét Sæbjörnsdóttir, Unndór Andmar, Ómar Jóhannsson. Einar í Eini- berjarunni, Torfi Steinsson og Gunnar Hámundarson leigubíl- stjóra, Svavar Óskarsson. Leikritið var frumsýnt 16. nóv- ember 1978. Húsfyllir var og voru undirtektir mjög góðar. Alls var leikritið sýnt 11 sinnum. Það fékk mjög góða dóma í blöðum. Segir meðal annars í leikdómi i Suður- nesjatíðindum.: „Ftosa Ólafssyni hefur tekist að fá lurðu mikið út úr sýningunni, enda gerþekkir hann verkið, orðinn hagvanur þar eins og segir i leikskránni. Margir leikenda eru lítt sviðs- vanir en hvergi ber sýningin nein merki um viðvaningshátt og er Flosa og Litla ieikfé- laginu titsóma". (Á., Suðumesjatíðindin 24. nóv. 1978) Og í Faxa: „Leikstjóranum, Flosa Ólafssyni, hefur tek- ist vel að gera braut leiksins greiðfæra óvönum leikurum. Einnig er sviðsmynd Sævars Helgasonar góð. Honum tekst alltafað stækka litla svið- ið i Samkomuhúsinu i Garðinum". (Jón Tómasson, Faxi, jólablað, 1978). Sjö stelpur Þó að Litla leikfélagið hefði þeg- ar sýnt tvö leikverk á sama leikári var ákveðið að taka eitt til viðbótar. Fyrir valinu varð leikritið „Sjö stelpur” eftir sænskan höfund, sem nefnir sig Erik Thorstenson. Leikritiðersannsögulegt. Höfund- ur skrifaði það eftir að hafa dvalið í 3 mánuði sem starfsmaður á upp- tökuheimili fyrir stúlkur í Svíþjóð. í leikritinu tekur hann fyrir ýmis vandamál sem unglingar nútím- ans eiga við að stríða, t.d. í sam- bandi við notkun eiturlyfja. Leikstjóri verksins var Sig- mundur Örn Amgrímsson. Hlut- verk í leiknum eru 12, og í aðal- hlutverkum voru Ásta Magnús- dóttir sem lék eiturlyfjasjúklinginn Barböru. Inga Stefánsdóttir, sem lék Maju og Þórarinn Eyfjörð sem lék Svein gæslumann. í öðrum hlutverkum voru: Ingibjörg Eyj- ólfsdóttir, Gunna. Kristín Eyjólfs- dóttir, Ása. Þórný Jóhannsdóttir, Elsa. Jóhanna Helgadóttir, María Lovísa. Guðný H. Jóhannsdóttir, Guðrún. Sigfús Dýrfjörð, yfirmað- urinn. Guðrún Steinþórsdóttir, Nilla. Sigurjón Kristjánsson Svegáas gæslumaður og Hólm- berg Magnússon, AlgotStensson. „Sjö stelpur” var frumsýnt í Samkomuhúsinu í Garði 8. apríl 1979 og sýnt alls tíu sinnum. Þai* af var sýnt í Félagsbíó í Keflavík 1. maí og á Seltjarnarnesi 4. maí. Dómarnir sem leikritið fékk voru mjög góðir eins og sjá má af eftir- farandi tilvitnun: „Undirritaður minnist þess ekki að hafa nokkurn tíma séð sýningu áhugaleikhúss sem kemst með tærnar þar sem þessi sýn- ing var með hælana. Leikstjórinn Sigmund- ur Öm Arngrimsson hefur greinilega unnið frábært starf, staðsetningar leikaranna, skipulagning á þessu litla sviði og hraði sýningarinnar var unnið afmikilli nákvæmni og vandvirkni". (A.Á., Þjóðviljinn, april 1979) Aðalfundur Á aðalfundi Litla leikfélagsins sem haldinn var 25. maí 1979 voru kosnir í stjórn: Sigfús Dýrfjörð formaður, Ómar Jóhannsson varaformaður, Svavar Óskarsson gjaldkeri, Sigurjón Kristjánsson ritari, Auður Sigurðardóttir með- stjórnandi og Guðrún Steinþórs- dóttir og Magnús Eyjólfsson vara- menn. Þar með var III. leikári Litla Leik- félagsins lokið. Framhald í næsta blaði.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.