Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 24

Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 24
Hátíðisdagur skátanna og sjálfsagt allra fslendinga rann upp heiður og bjartur - örlítið föl á jörðu, sem benti til þess að saman hafi frosið vetur og sumar en það hefur jafnan þótt heillamerki. Um það bil er mjög fjölmenn skrúð- ganga hófst frá Skátahúsinu í Kefla- vík, gerði hriðjuhraglanda - en slíkt láta böm með skátauppeldi ekki á sig fá. Sjaldan hefur hópurinn verið jafn stór, sem staðföstum skrefum skundaði til árdegismessu í Keflavíkurkirkju. Þar flutti séra Ólafur Oddur Jónsson, skátaguðþjónustu fyrir troðfullu húsi. Fermingar bama í Hvalneskirkju: Nafn Víðis Jónssonar Suðurgötu 20 Sandgerði, féll niður af fermingarlista í síðasta blaði. Faxi biðst afsökunar á þessum mistökum. Aldrei hefur verið slegist jafn harkalega um sölukóngstitilinn eins og við sölu síð- asta Faxa. Tvö börn seldu 74 blöð; þau Kristín Erlendsdóttir og Jón Tóm- asson, sem varð sölukóngur í apríl, Kristín Björk Eriendsdóttir. tvær stúlkur seldu 73 blöð og mörg börn seldu um 50 blöð. Því miður, tókst ekki að koma öllu efni sem Faxa hefur borist fyrir í þessu blaði og verð- ur því að bíða næsta blaðs. SKOÐANAKÖNNUN varðandi áfengis og fikniefnamál í Keflavík, sem framkvæmd var af Fjölbrautaskóla Suðumesja í sam- Jón Tómasson. vinnu við Áfengisvamarnefnd Keflavíkur. Þú ert vinsamlega beðin(n) að svara eftirfarandi spurningum til að aðstoða við söfnun mikilvægra upplýsinga um skoðanir Keflvíkinga varðandi áfeng- is- og fíkniefnamál hér í Keflavík. I. Telur þú að fræðsla í skólum um skaðsemi áfengisneyslu ætti að: a) minnka................... 3 b) haldast óbreytt......... 16 c) aukast?................ 180 Á hvaða skólastigi? 2. ÞESSI SPURNING ER EINUNGIS FYRIR ÞÁ SEM ERU ÞRÍTUGIR OG ELDRI. Telur þú að síðan áfengisútsalan var opnuð í Keflavík 1967 hafi áfengisvandamál í Keflavík: a) minnkað................... 4 b) haldist óbreytt.......... 70 c) aukist?.................. 72 3. Hverja af eftirtöldum leiðum myndir þú telja árangursríkasta til að draga úr áfengisvandamálum í Keflavík? a) aukin fræðsla í skólum, eingöngu .............. 128 b) lokun áfengisútsölunnar, eingöngu ................ 6 c) bæði aukin fræðsla í skól- um og lokun áfengisút- sölunnar................ 38 d) Aðrarleiðir:........... 4. Hefur þú persónulega orðið var/ vör við neyslu fíkniefna? Já......................... 69 Nei....................... 133 5. Telur þú að veita ætti fræðslu í skólum um skaðsemi fíkniefna? Já........................ 179 Nei......................... 7 Ef já, á hvaða skólstigi? . Svarandi er: Karlkyns ..................... 84 Kvenkyns..................... 114 15-20ára...................... 30 21-30 ára..................... 47 31 -40ára..................... 44 41-50 ára..................... 32 51—60 ára..................... 29 61 - 70 ára................... 17 Yfir 70 ára ................... 5 FIMMTUGUR: Hilmar Jónsson STÓRTEMPLAR Um það bil sem þeitta tölublað Faxa kemur út, hinn 12. maí, verð- ur vinur minn, Hilmar Jónsson, fimmtugur. Á þessum tímamótum í lífi hans finnst mér eðlilegt að senda honum afmæliskveðju. Ekki ætla ég þó að fara út í ævi- söguritun, enda hefur hann sjálfur ritað um lífshlaup sitt í tveimur ágætum bókum, og get ég litlu við það bætt. Bókasöfn eru að því leyti eins og veitingahús, að þau draga menn að sér aftur og aftur, þó ólík- ar séu þær veigar sem í boði eru. ( dag þykir það ekki munaður aö geta lesið bækur heldursjálfsagð- ur hlutur. Svo er efnalegum fram- förum fyrir að þakka. Um leið hefur almenningsálitið breyst, og þarf nú enginn að vera talinn öðrum hysknari þó hann líti í bók. Hvort tveggja hefur síðan mótað þá lög- gjöf sem gildandi er í dag um al- menningsbókasöfn. Sjálfsnám er ekki síður mikilvægt en skólanám. Best fer á að eftir skólanám haldi fólk áfram sjálfsnámi enda eru bókasöfnin einn mikilvægasti áfanginn á leið til ævimenntunar. En það merkilega orð finnst ein- mitt í lögum um almenningsbóka- söfn. Fyrir fáum áratugum var það algjörlega óþekkt á opinberum gögnum og nánast ekki til nema hjá örfáum hugsjónamönnum. Sumir halda að starf bókavarð- ar sé aðeins það að sitja við púlt og afgreiða gestum bækur yfir borðið. En starfið er annað og meira. Þegar Hilmar tók við bókasafn- inu hér 1958 voru þar um eitt þús- und útlánshæfra bóka. Þá var það á hundrað og fimm fermetra gólf- fleti í íþróttahúsi bamaskólans. Árið 1974 þegar flutt var í þriggja hæða hús að Mánagötu 7, var bókaeign safnisins hátt á annan tug þúsunda bóka. Aukning því umtalsverð. Flestir bókatitlar í safni gamla Lestrarfélagsins voru skáldrit. Því þurfti að byrja frá grunni á söfnun annara rita. Tímaritasafn vantaði alveg, og t.d. var ekkert til af Suð- umesjablöðum. Erlendar bækur afarfáar og sérfræðirit ekki til. Það kom því í hlut Hilmars að byggja safnið upp, kaupa inn og bæta í skörðin. Við það starf hefur hann verið sívakinn. Einnig á verðinum gagnvart fjárveitingavaldinu, sem stundum vill klípa af krónur og Hilmar Jónsson stórtemplar setja einhver óskaverkefni, sem talin eru hafa forgang. Auk þess er önnur mikilvæg hlið á stafi bókavarðar - og raunar allra safnanna Í2 en það er mann- lega hliðin. Starf bókavarðar er þjónusta við notendur og upplýs- ingamiðlun. Að laða fólk að safni - og ekki síst börn. Óhætt er að segja, að Hilmari hefur tekist það vel, það sýna árlegar tölur um aukin útlán. Embættishroki finnst ekki í fari Hilmars, eins og því nið- ur vill brenna við í stofnunum sem kostaðar eru af almennafé. Öll störf fyrir safnið hefur Hilmar rækt af stökustu prýði. Aðstoðar- fólk hefur hann haft og bókasafns- nefnd kemur við sögu, sérstak- lega þegar ýmis veigameiri mál eru á ferð, eins og t.d. húsbyggingar- mál, sem eru til umræðu í dag. Þetta eru þau störf sem fyrst og fremst snúa að okkur bæjarbúum. En Hilmar á sér fleiri áhugamál. Hann er nú stórtemplar Góð- templara og hefur gengt því emb- ætti um skeið. Afskipti hans af starfi Reglunnar eru mikil enda hefur hann starfað þar árum saman. Rit- störfum hefur Hilmar sinnt og ná- lægt félags- og bæjarmálum hefur hann komið. Að geta nánast hvenær sem er komið í bókasafnið þegar á þarf að halda er mikilvægt fyrir fræði- mann. Sérstaklega ef hann er nú ofurlítið yngri en gengur og gerist. En einmitt þannig hófust kynni okkar Hilmars fyrir um sautján ár- um. Ég vil í lokin færa Hilmari ám- aðaróskir um leið og ég þakka honum og fjölskyldunni ótal marg- ar samverustundir á liðnum árum. Skúli Magnússon. FAXI - 96

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.