Faxi - 01.05.1982, Blaðsíða 1
I
"S
Ljósm.: Ljósmyndaslola Suíkirneaja
Nytt glæsilegt fiskiskip sjósett
Það var tímamótadagur I sögu Skipasmíðastöðvar Njarðvikur hf. og suður-
nesjamanna 30. apríl sl., þegar nýtt glæsilegt fískiskip 280 rúmlesta rann af
stokkunum. Meðsmiðiþess varstigiðstórtskrefiþróunarsögustöðvarinnar, hafin
var raðsmiði stálfiskiskipa i samvinnu við norska skipasmiðastöð. Smíði á skrokk
skipsins hófstí Noregi í júlí sl., hingað var honum fieytt ijanúarbyrjun. Pegar hann
kom til S.N. 8. janúar varbúið að byggja þarþilfarog stýríshús. Síðan varunnið af
fullum krafti við að koma því fyrir á sirm stað. Pá hófst niðursetning vélar og
snnarra tækja.
Aflvélin er dönsk 800 ha af Callesen-gerð. Prófanir hafa faríð fram á öllum
tækjum og hafa þau reynst i besta lagi. Ibúðir áhafnar eru allar i afturskipi, mjög
vandaðar og hinarglæsilegustu. Skipiðerbyggtfyrirlinu-, neta-, nót- og trollveið-
arfæri. I skipinu er frystibúnaður og því hægt að fullvinna um borð t. d. rækju. Þá er
norsk beitingavél um borð og íkælilest eru einangraðir 800 lítra gámar tH að kæ/a
og geyma i físk. Þetta ernýjung, hönnuð afSæplastií Garðabæ og mun þetta vera
fyrsta skipið sem búið er þessum búnaði.
Þetta mun vera fyrsta stálskipið sem byggteri Skipasmiðastöð Njarðvikur.
Eigandi skipsins er Gauksstaðir hf. í Garði. Forstjóri og aðaleigandi Gauksstaða
er Þorsteinn Jóhannesson útgerðarmaður. Kona Þorsteins Kristín Ingimundar-
dóttir gaf skipinu nafn er það var sjósett og heitir það Gunnjón. Einkennisstafír eru
GK 506. Fyrst fer Gunnjón á linuveiðar. Skipstjóri verður dóttursonur Þorsteins og
nafni Þorsteinn Þórðarson og vélstjóri Jóhann Andersen.