Faxi - 01.05.1982, Qupperneq 10
Frá byggðasafni Suðumesja, Vatnsnesi
Sunnudaginn 18. aprílsl. barstsafninu kærkom-
in gjöf, en það var falleg gína íklædd upphlut
ásamt tilheyrandi skarti og mötli. Með gjöfina kom
Theodór Nóason ásamt konu sinni, Edel Madsen,
en þau eru búsett í Reykjavík. Móðir Theodórs,
Anna Ágústsdóttir, erlést 17. júní 1980, hafðimælt
svo fyrir að sparíbúningur hennar, upphlutur,
skyldi ganga til byggðasafnsins hér syðra. Anna
var dóttir hjónanna Ágústs Jónssonar hreppstjóra
og Guðleifar Ársælsdóttur, er bjuggu í Höskuldar-
koti Ytrí-Njarðvík 1893 til 1910, enþá fíuttustþau til
Kefíavíkurog bjuggu fyrstá Sunnuhvoli (nú Suður-
gata 11) en siðar að Suðurgötu 17. Eftir að Ágúst
fluttist til Kefíavíkur var hann kennarí við bamaskól-
ann og síðast skólastjórí. Þau hjónin fluttust til
Reykjavíkur 1921. Þau voru sæmdarhjón, sem
eldri Keflvíingar minnast af öllu góðu. Ágúst var
stórgáfaður maður og fékkst við margt, meðal
annars var hann skáld gott og var látinn yrkja
mörg erfiljóð, eins og þá tíðkaðist, en þau vom
sungin við útför manna. Theodór færði safninu
ennfremur að gjöf Ijóðabókina „Áfangar“ eftir
föður sinn, einnig muni og myndir er tilheyrt höfðu
þeim hjónum, Ágústiog Önnu.
Byggðasafnsnefnd vill hér með færa gefendum
kærar þakkir fyrir höfðinglega gjöf, safninu til
handa og vill jafnframt láta í Ijós aðdáun sína á
tryggö Önnu Ágústsdóttur við æskustöðvarsinar.
Theodór Nóason er hér að afhenda formanni
byggðasafnsnefndar, Úlafi A. Þorsteinssyni, há-
tíðabúning móðursinnar.
HENTUGAR ÍBÚÐIR FYRIR ALDRAÐA
Fyrirhugað er að hefja nú í vor byggingu 8 íbúða í sambýlishúsi við Birkiteig nr. 4-6. fbúðirnarverðaca. 60 ferm.,
þ.e. svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og þvottahús, auk geymslu í kjallara. fbúðir þessareru sérstak-
lega hentugar fyrir fullorðið fólk.
Stærð og innri gerð íbúðanna er að ýmsu leyti lík þeim íbúðum sem byggðar hafa verið fyrir aldraða á vegum
Keflavíkurbæjar, við Suðurgötu. (búðum þessum verður skilað tilbúnum undirtréverk meðfullfrágenginni sam-
eign, eða fullgerðum, eftir nánara samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar gefa Björgvin Árnason félagsmálafulltrúi, sími 1555, og Hilmar Hafsteinsson, bygg-
ingameistari, sími 1303.
FAXI - 82