Faxi - 01.05.1982, Qupperneq 18
KRISTINN REYR:
OGSENNÁAÐ
FARA AÐ KJÓSA
Svo kvaö vinur vor, Fuglinn, í gam-
anvísum fyrir margt löngu. Og söng
meira aö segja oftar en einu sinni fyrir
troðfullu húsi á fjölunum í Ungó.
þaö var nú þá, þegar Hafnargatan
minnti á þúsund vatna landið - segja
•elztu menn. Og hraðinn eftir því. Ef
marka má gamalkunn nöfn frambjóð-
enda og annað innræti vísnanna, þá
eru þær sennilega hraðsoönar á
haustmánuðum. Og tilefnið:
í hund-farandi hreppsnefndarkosn-
ingar í Keflavík á komandi þorra þeirra
tíma.
Var sá árstími valinn - segja elztu
menn, til þess að háttvirtir kjósendur
mættu slá tvær flugur í einu höggi:
Blóta þorra í brennivíni - og kross-
bölva pólitískum andstæðingi hressi-
lega í leiðinni.
Og þótti hvort tveggja yfirleitt takast
með ágætum. Jafnframt rámar elztu
menn í, að þá - einmitt þá hafi verið
öðruvísi um að litast á keflvísku plani
helduren nú.
Engin flóðlýst breiðstræti um pláss-
ið.
Engar uppljómaðar skrauthallir við
hliðina á - eða í keliríi við olíutanka
hersins.
Nei, þá var nú ekki Sogsrafmagnið
út um allar holtagrundir - segja elztu
menn. Bara Kalli á Stöðinni, sem
keyrði og keyrði díselrokkinn myrkr-
anna á milli og í myrkrinu líka.
Varla, að hann festi kríublund fyrr
en undir Jónsmessu.
Og svo fór að húma aftur.
Og peran, sem hékk niður úr stás-
stofuloftinu í bráðri lífshættu á ný
vegna lágspennu.
En þótt skammdegið grúfði einsog
biksvartur loðfeldur það haust, þá átti
sérhver frambjóðandi sitt flokkspóli-
tíska sumar innra fyrir andann, ef
anda skyldi kalla - segja elztu menn.
Og prédikaði samkvæmt því, fram-
bjóðandinn.
í Danívalsbúð var daglangt sungið
og kveðið á háa C-inu. Og heyrðust
orðaskil vestur í Slipp og inn undir
Gúanó.
En kaupandinn gleymdi að kaupa í
matinn og fékk bágt fyrir hjá konunni.
Kaupmaðurinn komst og að raun
um, að sér hafði láðst að selja vöru
sína, er hann taldi upp úr kassanum
að kvöldi.
Hins vegar ærðist enginn af hávað-
anum inni á Sjúkrasamlagi hjá Ragn-
ari. Og líkast sem þeir, er þaðan komu,
gengju fyrir róandi lyfjum.
Já, fyrr mátti nú rota ... segja elztu
menn.
Eða þá Sjálfstæðishetjurnar góðu
með Ólaf E. í fylkingarbrjósti. Öngluðu
saman fyrir elegant húsi með vel lukk-
aðri leiftursókn í eigin vasa.
Og Sigurður glímukóngur, já. Hann
bauð gladíatorum íhaldsins upp á
sósíalskan hælkrók, klofbragð eða
hnykk. Jafnvel hryggspennu eða
haustak, þryti þá ekki örendið í fyrstu
atrennu., Sló óhug á kjördæmi Ólafs
Thors, en atkvæðin signdu sig í bakog
fyrir. Og báðu þann Moskvukomma
aldrei þrífast- undir signingunni.
Nú loks má ekki gleyma garminum
honum Katli - B-listanum. Hann var
þá enn á dögum með óánægða Fram-
sóknar - og Ihaldsmenn innvortis.
Um höfundinn, vin vorn Fuglinn, er
ekkert vitað lengur - segja elztu
menn.
En handrit vísnanna Kolbikað
haust kom nýlega í leitirnar. Fannst á
milli laga í viðmótsþýðum brjóstahald-
ara með viðeigandi angan síns tíma.
Og hefur því verið borið fyrir brjósti,
handritið.
Ætti Byggðasafnið sem allra fyrst
að komast yfir nefnt brjóstahald, með
handritinu innan í, til fullrar eignar og
ábúðar. Og sanna þar með fyrir al-
heiminum, að ritlist hafi líka fest rætur
Suður með sjó.
Mætti síðan lána handritið á farand-
sýningu frá Kanada til Falklandseyja í
fylgd þeirra skinnbóka fornra, sem
virðast orðnar fyrir þeim þarna inni í
Handritastofnun.
ORLOFSHÚS VSFK
Dvalarleyfi
Frá og með mánudeginum 10. maí liggja umsóknareyðublöð frammiá
skrifstofu VSFK að Hafnargötu 80, um dvalarleyfi íorlofshúsum félags-
ins, sem eru sem hérsegir:
1 HÚS í ÖLFUSBORGUM
1 HÚS í SVIGNASKARÐI
1 HÚSíHRAUNBORGUM
Þeirsem ekkihafa dvalið sl. 5 áríorlofshúsum á tímabilinu frá 15. maí til
15. september, stija fyrir dvalarleyfum til 15. maín.k.
Leiga verðurkr. 700 áviku. Úthlutað verðureftirþeirriröðsem umsókn-
ir berast. Ekki verður tekið á móti umsóknum bréflega eða símleiðis.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis—
FAXI - 90