Faxi - 01.05.1982, Page 26
Framboð
til sveitarstjórnarkosninga í
Miðneshreppi þann
22. maí 1982
D. Listi Sjálfstæðisflokks
1. Jón H. Júliusson, vigtarmaður,
2. GunnarJ. Sigtryggsson, húsasmíðam.,
3. Sigurður Þ. Jóhannsson, fiskmatsm.,
4. Sigurður Bjamason, hafnarvörður,
5. Jón F. Friðriksson, verkstjóri,
6. Reynir Sveinsson, rafvirki,
7. Páiína J. Guðmundsdóttir, skrífstofustúlka,
8. Guðjón Þ. Ólafsson, sjómaður,
9. Erlingur Jónsson, verkstjóri,
10. Þórarinn Reynisson, skrifstofumaður,
11. Þorbjörg Tómasdóttir, verkakona,
12. Sæunn Sigurbjömsdóttir, verslunarkona,
13. Jón E. Clausen, verkamaður,
14. Svanbjörg Eiríksdóttir, verkakona.
í sýslunefnd:
Aðalmaður: Jón H. Júlíusson, vigtarmaður,
Varamaður: Kári Sæbjömsson, rafvirkjameistari.
H. Listi frjálslindra kjósenda
1. Magnús Sigfússon, húsasmíðameistari,
2. Elsa Krístjánsdóttir, gjaldkeri,
3. Jón Þórðarson, verkamaður,
4. Ómar Bjarnþórsson, kennari,
5. Unnur Guðjónsdóttir, húsmóðir,
6. Helga Karlsdóttir, kennari,
7. Kristján Gunnarsson, húsasmíðameistari,
8. Guðrún E. Guðnadóttir, húsmóðir,
9. Óskar Guðjónsson, málarameistari,
10. Steinunn B. Heiðmundsdóttir, húsmóðir,
11. Gunnnar Sigfússon, verkstjórí,
12. Sigurður Margeirsson, form. VSFM,
13. Gylfi Gunnlaugsson, gjaldkeri,
14. Sveinbjörn Berentsson, bifreiðastjóri.
í sýslunefnd:
Aðalmaður: Jón Ásmundsson, verkstjóri.
Varamaður: Gylfi Gunnlaugsson, gjaldkeri.
K. Listi Óháðra borgara og Alþýðuflokks
1. Jón Norðfjörð, framkvæmdastjóri,
2. Sigurður Friðriksson, rafvirki,
3. Jóhann G. Jónsson, skrifstofustjóri,
4. Grétar MarJónsson, skipstjóri,
5. Egill Ólafsson, skökkviliðsmaður,
6. Jórunn Guðmundsdóttir, húsmóðir,
7. Kristinn Lárusson, verkamaður,
8. Kolbrún Leifsdóttir, húsmóðir,
9. Brynjar Pétursson, verkstjóri,
10. Hörður Kristinsson, verkamaður,
11. Óskar Gunnarsson, húsasmiður,
12. Gunnar Guðbjörnsson, húsasmiður,
13. Elías Guðmundsson, verkamaður,
14. Sigríður Arnadóttir, húsmóðir.
í sýslunefnd:
Aðalmaður: Bergur Sigurðsson, verkstjóri.
Varamaður: Ólafur Gunnlaugsson, húsasmiður.
Kjörfundur í Miðneshreppi hefst kl. 10.00.
Kjörstjórn Miðnesshrepps:
Jón Frímannsson,
Halldóra Ingibjömsdóttir,
Brynjar Pétursson.
Hrefna Traustadóttir, Ingibjörg Guðnadóttir, Hjördís Ámadóttir og Helga Gunn-
ólfsdóttir i hlutverkum sínum I Saumastofunni.
LEIKFÉLAG KEFLAVÍKUR:
SAUMASTOFAN
Höfundur:
Kjartan Ragnarsson
Leikstjóri:
Þórir S teingrímsson
Leikfélag Keflavíkur frumsýndi
Saumastofuna föstudaginn 2.
apríl sl. í Félagshúsinu í Keflavík.
Leikurinn gerist á Saumastofunni
BAX. Þar vinna 6 saumakonur í
akkorði, einn meistari - afar kven-
legur karlfugl, sendill með mótor-
hjóladellu og svo auðvitað for-
stjórinn, ungur og óharðnaður pen-
ingafursti. Saumakonumar eru frá
táningsaldri að sjötugu. Sigga
gamla - leikin af Helgu Gunnólfs-
dóttur hafði einmitt átt sjötugsaf-
mæli daginn áður. Færri höfðu
heimsótt hana en hún hafði
vænst. Hún brá á það ráð að taka
með sér í vinnuna dálitla „brjóst-
birtu’” sem eftir var. Forstjórinn
ætlaði til Akureyrar í sölutúr. Til-
valið tækifæri til að viðra veraldleg
vandræði og andlega sút. Allar
féllust þær á tiltækið og lyftu glasi
til heiðurs afmælisbarninu. En
eins og jafnan var bætt í glösin þar
til áhrifin voru auðsæ. Tungutakið
örvaðist og nokkrar smellnar smá-
sögur voru sagðar, sem yfirleitt
komust vel til skila. Síðan opnuðust
flóðgáttir tilfinninga lífsins og út
streymdu leyndarmálin hvert af
öðru. Dramatískar frásagnir úr
einkalífinu. Lilla - táningur, leikin
af Unni Þórhallsdóttur, var ófrísk-
áður hafði hún látið framkvæma
hrottalega fóstureyðingu, og sá þá
fóstrið í vaskarfati. I bæði skiptin
hafði drykkja komið í veg fyrir að
hún vissi hver mótparturinn var.
Kvöl hennar var mikil. Hún átti erfitt
með að hugsa sér aðra fóstureyð-
ingu. Þá kom sendillinn Himmi -
leikinn af Óskari Nikulássyni, til
sögunnar og lofaði að gangast við
faðerninu. - Já, Himmi var besti
strákur þó að mótorhjólið ætti
bæði hug hans og hjarta. Didda 34
ára einstæð móðir - leikin af Ingi-
björgu Guðnadóttur, var svo ólán-
söm að hafa búið í óvígðri sam-
búð. Karlinn hafði allar eigumar á
sínu nafni og þegar hann fann sér
aðra konu stóð hún eftir slipp og
snauð, með tvo krakka - og sæmi-
legt rúm, sem hægt var að bjóða
uppí, ef buxurnar héngu ekki upp
um heimfylgdina úr partíinu.
Magga verkstjóri var leikin af
Hrefnu Traustadóttur. Hún var að
því leyti betur(??) sett að hún átti
mann, sem hélt sig við heimilið.
Hann hafði að vísu sólundað öll-
um eigum þeirra í drykkju og aum-
ingjaskap. Hún, sem áður var
pískuð í fínu hjónabandi var nú
útþrælkuð akkorðssaumakona og
vann fyrir manni og bömum. Ásu
lék Marta Haraldsdóttir. Hún taldi
sig hamingjusamlega gifta - en
kröfur þeirratil lífsgæðavoru mikl-
ar og kostnaðarsamar. Skulda-
súpan var beisk og brennivínið átti
að vera bragðbætir en kostaði
timburmenn og ólund, auk þess
gat staðfast hjarta hennar bráðn-
að fyrir gulli í höndum örláts for-
stjóra ef svo bar undir. Gunnu lék
Hjördís Ámadóttir. Hennar örlög
voru ömurlegust. Hennar ógæfa
var að eignast mongolíta, sem
hún taldi sér trú um að hafa orðið
að bana í fylleríi. Hún varð
drykkjusjúklingur með heimilis-
fang á Kleppi.
Þegar Sigga gamla var orðin
drukkin kom saga hennar um sjö-
FAXI - 98