Faxi - 01.03.1983, Síða 14
ÞORRABLÓT STYRKTARFÉLAGS ALDRAÐRA Á SUÐURNESJUM:
„GLEÐUR MIG AÐ SJÁ
ÁRANG URSRÍKT STARF“
— sagði Vigdis Finnbogadóttir, forseti íslands, sem heiðraði samkomuna með
nærveru sinni
Styrktarfélag aldraðra á Suðumesjum hefur gengist
fyrir myndarlegri dagskrá fyrir fólk sitt í vetur. Kennir
þar margra grasa og hefur þátttaka verið með besta móti í
föndri og spilum, leirvinnu, smíðavinnu, sundi og leik-
fími, hárgreiðslu, fótsnyrtingu, í kirkjudegi aldraðra,
opnu húsi og verður vafalaust mikil á vorfagnaðinum
sem fyrirhugaður er í Festi í Grindavík 23. apríl.
Eins og ráða má af því sem að
framan er talið hefur starfið verið
fjölbreytilegt, en hápunkturinn
var þó þorrablótið í Stapa, sunnu-
daginn 20. febrúar, þegar forseti
íslands, Vigdís Finnbogadótti,
birtist í salnum og eyddi síðan deg-
inum með samkomugestum. Vakti
koma hennar og nærvera mikla
hrifningu enda blandaði hún geði
við svo að segja hvern og einn
hinna rúmlega 300 þátttakenda
Forsetinn í heimsókn hjá öldruðum á Suðurnesjum. Frá vinstri: Matti Ó. Áshjörnsson, formaður Styrktarfélaf’s aldraðra á
Suðurnesjum, Soffía Magnúsdóttir, urnsjónarkona með ibúðaheimili aldraðra við Suðurgötu í Keflavík, Vigdís Finnhogadóttir,
forseti og lengsl til hœgri Halldót Reynisson, forsetaritari.
---------------------------------------------------------------------------
Pakkarávarp
Eg þakka ykkur öllum, sem sýndu mér heiður og sœmd rneð nœrveru ykkar ú bókmenntakynningu,
sem haldin var í Keflavík, laugardaginn 5. rnars 1983.
Leikfélagi Keflavíkur, sem t sarnráði við bœjar- oghéraðsbókavörð Hilrnar Jónsson rithöfund hafði
forgöngu um þetta.
Andrési Kristjánssyni, sem flutti erindi um ritstörf rnín.
Karlakór Keflavíkur, sern söng hið ágæta kvœði eftir Olínu örnrnusystur rnína urn Suðurnesjamenn,
og öllum þeim er lásu upp úr verkurn rnínum.
Fulltrúum frá Sarnbandi sveitarfélaga á Suðurnesjurn er fluttu ávörp og fœrðu rnér Skarðsbók, og
gerðu mig að auki heiðursborgara í heimasveit rninni.
Fyrir stórkostlega gjöf ogmikinn heiður mérsýndan vil égaf hrœrðtt hjarta fxtkka öllu þessu indcela
fólki og stjrírnandanurn Hilmari Jónssyni rithöfundi.
Guð og gæfa fylgi ykkur öllurn.
Jón Thorarensen
V___________________________________________________________________________/
þorrablótsins, auk þess sem hún
ávarpaði samkomuna á sinn við-
felldna hátt og talaði m.a. um
þorrann og góuna.
Það voru þau Matti Ó. Ás-
björnsson formaður félagsins og
Soffía Magnúsdóttir formaður
skemmtinefndar sem tóku á móti
Vigdísi fyrir utan Stapann og
gengu með henni í salinn ásamt
Sigfúsi Kristjánssyni sem var sam-
komustjóri, en undir borðum lék
Baldur Þórir Guðmundsson. Sig-
fús bauð forsetann velkominn, eft-
ir að Matti Ó. Ásbjörnsson hafði
sett blótið með ávarpi. Síðan rak
hvert atriðið annað á milli þess
sem menn gæddu sér á þorramatn-
um frá Axeli í Veizluþjónustunni.
Gísli Sigurbjömsson, kenndur við
Grund, en hann var gestur blóts-
ins, ræddi um starfið á Suðurnesj-
um í málefnum aldraðra, sem
hann átti sinn þátt í að móta í upp-
hafi. Var Gísli mjög ánægður með
þann árangur sem náðst hefur og
lofaði Suðurnesjamenn fyrir dugn-
aðinn.
Leikarar úr Leikfélagi Reykja-
víkur skemmtu með gamanmálum
í bundnu og óbundnu máli, en það
voru þau Sigríður Hagalín, Hanna
María Karlsdóttir, Guðrún Ás-
mundsdóttir og Kjartan Ragnars-
son, en Einar Einarsson lék á gítar
sígild verk. Að lokum var stiginn
dans eftir hljómfalli harmoniku
Rúts Hannessonar og trommum
Jóhannesar Eggertssonar og voru
það ýmist polkar, rælar og valsar
og mátti sjá marga kasta ellibelgn-
um þegar þeir svifu út á gólfið og
tóku sporið.
En áður höfðu þau Steinn Erl-
ingsson, Sverrir Guðmundsson og
Ragnheiður Skúladóttir, skemmt
með söng og hljóðfæraslætti.
Vigdís Finnbogadóttir forseti
sagði áður en hún kvaddi í þorra-
blótslok, að það gleddi hana inni-
lega að sjá hve heillaríkt starf væri
unnið fyrir aldna á Suðumesjum
og þetta væri með ánægjulegustu
stundum sem hún hefði átt í sínu
starfi.
Skemmtikraftar og starfsfólk
Stapans gaf alla sína vinnu og lagði
því fram drjúgan skerf í þágu aldr-
aðra á Suðurnesjum. emm.