Faxi - 01.03.1983, Qupperneq 15
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ
t’œr heita Lovísa Ólafsdóttir og Kristín
Margeirsdóttir og sýndu tnedal annars
nýjustu fötin frá Fatavali ásamt mörg-
um öðrum.
<Ljósm. Heiðar fíaldursson)
Glens og gaman var yfirskriftin á fjölskylduhátíðinni sem hand-
knattleiksfólk ÍBK gekkst fyrir undir forustu þeirra Magnúsar
Bjamasonar og Ragnars Marínóssonar, í íþróttahúsinu í Keflavík,
þann 6. mars s.l. Heppnaðist skemmtunin með fádæmum vel, nema
hvað þátttaka hefði mátt vera meiri, en góða veðrið úti dró marga burt
úr bænum, eftir mikla ótíð og svo var innanhúsmót í knattspyrnu í
Reykjavík, þar sem fjöldi Suðumesjaliða keppti og þar vom margir
meðal þátttakenda sem ella hefðu komiö á hátíðina.
Gimsteinn varmeð allan sinn útbúnað á fjölskylduhátíðinni og Þórir Baldursson þar
að auki. en hann sést í bakgrunni myndarinnar ásamt Hrólfi Gunnarssyni trommu-
leikara, en fremstur á myndinni er Laddi að flytja sín gamanmál. (Ljósm. Heiðar
Baldursson)
Þorgeir Ástvaldsson stjórnaði
hátíðinni og lagði líka sitt af mörk-
um af skemmtiefni í samvinnu við
Magnús Ólafsson hinn góðkunna
leikara. Ekki spilltu þeir Laddi og
Jörundur með sínum uppátækjum
og eftirhermum. Dansstúdió Sól-
eyjar og Júdófólkið sýndi listir sín-
ar við góðar undirtektir áhorf-
enda. Tískusýningin á vegum
Fatavals heppnaðist líka dávei og
sýndi eins og haft var við orð þegar
talað var um slíka sýningu að við
þyrftum ekkert að sækja slíkt fólk
út fyrir bæinn og það sannaðist
þarna. Hvert atriðið öðru betra og
flíkin annarri fallegri - og eigu-
legri.
Katla María söng nokkur lög
með sinni ágætu röddu og var al-
deilis ófeimin við hljóðnemann og
samkomugestina. Steinn Erlings-
son og Sverrir Guðmundsson tóku
lagið við undirleik Ragnheiðar
Skúladóttur. Haukur Morthens
kom svo í lokin, ásamt Eyþóri Þor-
lákssyni gítarleikara og Guðmundi
Steingrímssyni trommuleikara og
spiluðu þeir og sungu nokkur lög
af æskufjöri þótt þeir séu komnir
af allra léttasta skeiði.
Gimsteinninn á samkomunni
var svo Geimsteinn sem lék milli
atriða og við sáum ekki getur en að
tónsnillingurinn Þórir Baldursson
legði þar gjörva hönd á plóginn
líka.
Skipulagning og framkvæmd
dagskrárinnar tókst með afbrigð-
um vel, - allt gekk vel og liðugt
fyrir sig, - og meira að segja engin
bilun í hljóðflutningskerfi, sem er
viss fylgikvilli slíkra hátíða, úti
sem inni. Eiga þeir Ragnar og
Magnús og aðrir þeir sem stóðu að
hátíðinni, heiður skilið fyrir sín
störf.
emm.
,Tlf. . .
jermmgarajafa
Snjóboltinn frá
Kosta Boda
InnRömmun
SUÐURftCSJfl
Vatnsnesvegi 12 - Keflavík
Simi 3598
„Bögglaöi bréfpokinn"
Verð frá kr. 583,00
,,Koddinn“
Úrvals
postulínsvörur
frá
Rosenthal.
Sendum í póstkröfu um allt land.
Verð frá kr. 526,00
Vinsælar
fermingargjafir
fyrir stúlkur.
Verð kr. 166,00
FAXI - 71