Faxi - 01.03.1983, Síða 19
«MS
á Islandi
- alþjóðleg
fræösla og
samskipti -
Kæri lesandi.
Okkur langar til að vekja athygli þína á félaginu
AFS á íslandi. AFS á Islandi er sjálfstœtt félagsem
leggur áherslu á menningárleg samskipti og tengsl
milli þjóða heims. Það vill auka skilning og virð-
ingu millifólks afólíkum uppruna og þannigstuðla
að friði í heiminum.
AFS á íslandi er aðili að alþjóðlegum samtökum
sem heita AFS International Intercultural Pro-
grams. Auk Islands, standa að þessum sæntökum
um 60 þjóðlönd í öllum heimsálfum. Til þess að
koma á auknum kynnum milli fólks afólíku þjóð-
erni, er ungu námsfólki gefinn kostur á að dvelja í
eitt ár, eða í 2 mánuði, hjá annarri fjölskyldu í öðru
landi. Ungt fólk hefur góða aðlögunarhœftleika, er
oftast fordómalausara en þeir fullorðnu og vill
gjarnan kanna nýjar slóðir, reyna eitthvað nýtt.
Með því aðfara sem skiptinemar, gefst því kostur
á að kynnast afeigin raun annarri menningu, öðr-
um siðum, venjum og lífsviðhorfum. Þau tengjast
varanlegum vináttuböndum og snúta heim margs
fróðari, víðsýnni og reynslunni ríkari. Augit þeirra
liafa opnast fyrir því sem er sameiginlegt öllum
mönnum, hverjar svo sem stjórnmálaskoðanir eru,
trúqrbrögð eða litarháttur.
Á hverju ári sendir AFS á Islandi mun fleiri
ungmenni til annarra landa en það tekur á móti.
Við menntum unga fólkið okkar, upplýsum þttð
um aðrar þjóðir og gefum því ómetanlegt tœkifœri
til aukins þroska, en þegar kemur að okkur að
gjalda líktt líkt og gefa erlendum ungmennum tceki-
fœri til að sœkja okkur heitn og frœðast wn íslenska
menningu og þjóð, þá er eins og áhuginn minnki.
Fólk hikar, telur sig illa í stakk búið til að taka við
erlendum nema inn á heimilið, telur það of mikla
fyrirhöfn o.fl. o.fl.
Þœr fjölskyldur sem þegar hafa reynt þetta og
opnað heimili sín fyrir ttngu og fróðleiksfúsu fólki
af öðru þjóðerni, hafa komist að raun um að þetta
er ekki svo vandasamt eða erfitt. Það er miklu
fremur einstaklega ánœgjuleg og sérstök lífs-
reynsla, sem það hefðisíst viljað vera án.
Góðir Suðurnesjamenn, látið ekki ykkar eftir
liggja. Gefið ungu áhugsömu fólki kost á að koma
til Islands og biía hjá ykkur í 2 mánuði í sumar eða
eitt ár og ganga í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Þannig leggið þið vkkar að mörkum til að auka
kynni og tengsl milli einstaklinga og þjóða ogstuðla
að auknum friði, skilningi og réttlœti í heiminwn.
f.h. AFS á íslandi,
Sólveig Karvelsdóttir,
framkvæmdastjóri.
isferð þarna úteftir og það hreif
mig þá, hvað fólkið þarna var kátt
og skemmtilegt og þess vegna
langaði mig til að fara að vinna
þarna í jólafríinu. Þegar ég var að
vinna urðu mér á mörg mistök,
t.d. missti ég bakka fullan af flök-
um á gólfið og í annað skipti
sprautaði ég alveg óvart vatni
beint framan í konuna sem er
verkstjóri, en hún bara hló og
sagði að þetta væri allt í lagi. En ég
hélt auðvitað að hún yrði vond og
ræki mig. Svo á jólunum fékk ég
jólapakka frá Baldvini og í honum
var jólasilfurskeið.
Hittir þú aðra skiptinema?
Fyrstu vikuna sem ég var hér
hittumst við allir skiptinemend-
urnir daglega í Reykjavík, þar sem
fólk frá AFS hafði námskeið fyrir
okkur, einkum í íslensku og AFS
reglunum. Við vorum þarna 12
skiptinemar, en eftir þessa viku
dreifðumst við um landið, og síðan
hittumst við 6-7, sem erum í
Reykjavík og nágrenni. í nóvem-
ber var svonefnd menningarhelgi
og þá hittumst við öll, líka krakk-
arnir utan af landi.
Hvað verður þú lengi hér og
hvað tekur við þegar þú kemur
heim?
Ég fer heim 5. júlí. Það mun
verða erfitt að slíta sig frá öllu hér
og ná aftur sambandi við foreldra
og vini. Ég byrja í skólanum heima
í september.
Hefurðu ákveðið framhalds-
nám?
Já, ég ætla í háskólanám. Ég
stefni að því að verða læknir.
Heldurðu að þú eigir eftir að
koma aftur til Islands.
Já, auðvitað kem ég aftur Þegar
unglingur er aðeins 17ára og fer að
heiman í eitt ár, þá mun honum
alltaf finnast að hann eigi tvennt af
öllu, tvö ættlönd og tvær fjölskyld-
ur. Helga S. Pétursdóttir.
Magnús Gíslason skrífar:
Hvergi veikan
hlekk aö finna
hjáLitía
leikfélaginu
Snemma í mars sýndi Litla leik-
félagið í Garðinum danska barna-
leikritið Hvað er í kassanum? Efn-
ið er í aðalatriðum það að nokkrir
krakkar stelast upp á háaloft og
komast þar í kistu með margs kon-
ar fatnaði sem gefur ímyndunarafl-
inu lausan tauminn, en svo illa eða
vel vill til að hurðin læsist og þau
komast ekki út og sofna. Þá fara á
kreik ýmsar furöuverur sem hús-
vörðurinn fær að kljást við rétt
eins og hinar ntennsku.
Alls stóðu að þessari ágætu sýn-
ingu og jafnframt 14. verkefni LL
á rúmunt fimm árum nærri 40
manns, allt frá leikstjórn til förö-
unar og var hvergi veikan hlekk að
finna. Með aðalhlutverkin, krakk-
ana, fóru Karl Finnbogason, Helgi
Steinsson, Eygló Eyjólfsdóttir,
Gunnrún Theódórsdóttir, Egill
Egilsson og Sigríður Brynjarsdótt-
ir, öll hin hressustu og lifðu sig vel
inn í hlutverkin. Rósir, jólasvein-
ar, indíánar, draugar og dans-
kennari ýmist liöu eða geystust unt
sviðið í viðeigandi klæðnaði en af
og til mundaði húsvörðurinn kúst-
inn, en hann var mjög skemmtileg-
ur í meðförum B jarna Kristinsson-
ar. emm.
FAXI - 75