Faxi - 01.09.1983, Side 7
JÓN G. BENEDIKTSSON
anna var keyptur Ford vörubíll 3/4
tonn. Var hann keyptur af Eiríki
Þ. Sigurðssyni bílstjóra í Hafnar-
firði, var hann jafnframt ráðinn
bílstjóri frá 1. október 1921. Urðu
þá Vogarnir endastöð mjólkur-
flutninganna úr Vatnsleysustrand-
arhreppi til Reykjavíkur.
Pessi fyrsti bíll, H.F. 14, sem
kostaði um kr. 2,500.00, var með
venjulegu vörubílshúsi, í því var
eitt sæti fyrir farþega hjá öku-
manni. Við umskráningu hlaut
bíllinn einkennisstafina G.K. 9.
MJÓLKURFÉLAG VATNS-
LEYSUSTRANDARHREPPS
[>aö var árið 1920 þann 21. mars,
að níu bændur í Vatnsleysustrand-
arhreppi, nánar tilgreint frá Auðn-
um að Hvassahrauni, hófu mjólk-
ursölu til Hafnarfjarðar. Settu þeir
upp m jólkursölu í bænum og seldu
einnig í bakarí.
Flutning mjólkurinnar annaðist
Jón Ólafsson til heintilis að Bjargi.
Var mjólkin flutt á hestvagni. Var
þetta vísirinn að Mjólkurfélagi
Vatnsleysustrandarhrepps.
Á þessum tíma var verð mjólk-
urinnar hátt, útsöluverð pr. lítra
var kr. 1.00. Til glöggvunar má
geta þess, að tímakaup var kr.
0.75, sem jafngilti þremur pelum
af mjólk.
Árið 1921 komst mjólkursalan í
fastara form, var Mjólkurfélag
Vatnsleysustrandarhrepps þá
formlega stofnað. Stofnendur
voru 14 bændur frá Auðnum að
Hvassahrauni sem allir voru farnir
að selja mjólk. Með aukinni
mjólkursölu lækkaði verðið, var
það í ágúst komið niður í kr. 0.70.
Frá 21. mars til 30. september voru
seldir 23.271 lítri. Reyndist það
full mikið fyrir markaðinn í Hafn-
arfirði.
Þetta tímabil annaðist Bjöm
Jónsson í Norðurkoti flutningana
sem fram fóru á hestvagni. Ekki
þótti gerlegt, að flytja mjólkina
sunnar af Ströndinni en frá Auðn-
um með þessum hætti. Flutningar
með hestvagni lögðust því niður
30. september 1921. Hafði þá ver-
ið stofnað Bifreiðafélag Vatns-
leysustrandarhrepps með al-
mennri þátttöku mjólkurframleið-
enda í hreppnum.
Var þetta hlutafélag og var einn
hlutur fyrir hverja kú. Tilgangur
félagsins var að sjálfsögðu að flytja
mjólk fyrir bændur. Til flutning-
Gamli Ford 1926. Á myndinni eru Ámi Hallgrímsson, bóndi Austurkoti og
mæðgur úr Reykjavík.
Hér stendur Jón Benediktsson framan við mjólkurbílinn. Vinstramegin er
Magnea Jónsdóttir en hin er Halldóra Sigurðardóttir, sem báðar vom starfs-
stúlkur Mjólkurfélags Reykjavíkur.
Um haustið var sett tjald yfir vöru-
pallinn og bekkur fram við húsið
fyrir farþega. Næsta ár var byggt
nýtt hús á bílinn, svonefndur hálf
kassi. Voru þá sæti fyrir 6 farþega.
Þess skal getið að bíll bílfélags-
ins var fyrsti bíll sem flutti mjólk til
Reykjavíkur rekinn á félagslegum
grundvelli.
Petta framtak, að selja mjólkina
og hafa samgöngutæki til allra
flutninga, var ómetanleg búbót
fyrir hreppsbúa, sem þeir kunnu
vel að meta. Farið var daglega á
milli hvernig sem viðraði, nema
fjóra hátíðisdaga á ári. í snjókomu
og ófærð fóru bændur með bílnum
til að moka snjó og ýta bílnum
gegnum skaflana, fyrst og fremst
til að koma mjólkinni á sölustaði.
Pó gerðist það, í febrúar 1928,
að snjóþyngsli voru svo mikil, að
vegurinn lokaðist allri bflaumferð
frá Suðurnesjum. Var þá gripið til
þess ráðs að flytja mjólkina með
trillubáti til Hafnarfjarðar. Ingvar
Helgason á Neðri-Brunnastöðum
annaðist þessa flutninga á nýjum
trillubáti sem hann átti. Bfllinn
hafði teppst í Reykjavík í allri
ófærðinni, en var nú brotist á hon-
um til Hafnarfjarðar að sækja
mjólkina og flytja hana til Reykja-
víkur. í þessari ófærð, sem stóð í
eina viku, var lítið um að menn
reyndu að brjótast á bflum milli
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur,
enda stöðvuðust mannflutningar
bflastöðvanna Steindórs og BSR.
Mjólkurfélag Vatnsleysustrand-
arhrepps leigði búðir í Reykjavík
sem önnuðust sölu á mjólkinni
var þar ennfremur brauðsala.
Einnig seldi félagið mjólk í búðir
sem aðrir aðilar ráku. Þá var og
haldið áfram mjólkursölu í Hafn-
arfirði í sama formi og í upphafi
FAXI-175