Faxi - 01.09.1983, Síða 9
MINNING
PÁLL S. PÁLSSON
FÆDDUR 20. JANÚAR 1916
DÁINN 11. JÚLÍ 1983
Hinn 19. júlí s.l. var útför Páls
S. Pálssonar gerð frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík, en hann lést
eftir stutta legu, 11. sama mán-
aðar.
Páll Sigþór Pálsson, en svo hét
hann fullu nafni, fæddist 20. jan-
úar 1916 í Torfulækjarhreppi í
Austur - Húnavatnssýslu.
Foreldrar hans voru hjónin
Páll Jónsson og Sesselja Pórðar-
dóttir. Var faðir hans ættaður úr
Húnavatnssýslu, en móðirin úr
Svarfaðardalnum.
Páll S. Pálsson stundaði nám í
Héraðsskólanum í Reykholti
veturna 1933-35. Lauk kennara-
prófi frá Kennaraskóla íslands
1937. Stúdentsprófi lauk hann
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík vorið 1940. Undir prófið
hafði hann lesið utanskóla ásamt
Guðrúnu Stephensen, sem síðar
varð hans lífsförunautur. - Laga-
prófi lauk Páll frá Háskóla ís-
lands 1945 og varð hann héraðs-
dómslögmaður árið eftir, 1946.
Um Pál S. Pálsson, voru á út-
farardegi hans, ritaðar margar
minningargreinar, sem allar bera
vott um hvílíkur dugnaðar- og
mannkostamaður hann var.
Hann braust ungur til mennta,
las oft utanskóla og vann þá fyrir
sér meðan á náminu stóð.
Hér er ekki rúm til þess að
rekja starfssögu Páls, en hann
hefur komið víða við á starfs-
braut sinni, frá því hann var
barnakennari í Keflavík 1940-41,
til þess að verða eftirsóttur lög-
maður, þar sem honum voru fal-
in mikilvæg og vandasöm störf í
þágu lands og þjóðar, á hinum
ýmsu sviðum þjóðlífsins.
Við Keflvíkingar nutum oft
lögmannsstarfa hans. Til hans
var oft leitað, er vandasöm mál
bar að höndum og tókst honum
ávallt að leysa þau á farsælan
hátt. - Höfum við þá nokkru hér
við að bæta? Jú, svo sannarlega.
Hingað til Keflavíkur kom Páll
haustið 1940 og verður hér kenn-
ari við barnaskólann. Einnig
kenndi hann við unglingaskól-
ann hjá séra Eiríki Brynjólfssyni.
Málfundafélagið FAXI hafði
þá verið stofnað árið áður, 10.
okt. 1939 með 7 félögum, og
voru félagar orðnir 11 í lok starfs-
ársins. A fyrsta fundi félagsins
haustið 1940 gekk Páll í félagið
og varð þannig 12. félaginn, en
sú tala er síðan hin lögfesta há-
markstala félaga í MÁL-
FUNDAFÉLAGINU FAXA.
Á þessu sama hausti hóf blaðið
FAXI göngu sína og kom fyrsta
blaðið út 21. des. 1940. Par lagði
Páll sitt lóð á vogarskálina. Hann
skrifaði aðalgreinina í það blað,
sem hann nefndi „Eigum við að
stunda íþróttir?" Þar brýnir hann
Keflvíkinga til þess að stunda
íþróttir og hvetur þá til að stofna
íþróttafélag. í þriðja tölublaði
FAXA birtir Páll fróðlegt viðtal
við Bjarna Einarsson, skipa-
smíðameistara í Innri-Njarðvík.
Bjarni Einarsson er þá nýtekinn
við störfum framkvæmdastjóra
og yfirsmiðs stöðvarinnar. Er
Bjarni þarna að lengja vélbátinn
Birki frá Eskifirði og stækka
skipið, sem var 48 tonn, í 70
tonn. Er þetta samtal hið fróð-
legasta og gefur okkur glögga
innsýn í störf manna á þessu
sviði, og fleirum, er þá voru að-
steðjandi vegna styrjaldarinnar.
Nú líður nokkur tími. Páll er
fluttur frá Keflavík til Reykja-
víkur. Hann er nú í sveit stúdenta
að berjast fyrir byggingu nýs
stúdentagarðs í stað hins gamla,
sem herinn hafði þá tekið til
sinna nota. í maí-júní blaði
FAXA 1941, ritar hann grein,
þar sem hann skorar á Suður-
nesjamenn og þá sérstaklega
Keflvíkinga, að leggja máli stúd-
enta nú lið, að byggja nýjan stúd-
entagarð. í lok greinarinnar segir
Páll: „íslenskir stúdentar hafa
verið rændir heimili sínu,
GARÐI, og það er metnaðarmál
þeirra sjálfra og allrar þjóðarinn-
ar að reisa nýjan og veglegan
Garð, sem talandi tákn þess, að
þrátt fyrir allt ósjálfstæðið, ann
íslenska þjóðin enn menningu og
frelsi."
Árið 1945 kvæntist Páll eftir-
lifandi konu sinni Guðrúnu
Stefaníu Stephensen. Varð þeim
átta barna auðið og eru þau öll á
lífi. Þau eru þessi: Stefán, hæsta-
réttarlögmaður í Reykjavík,
Sesselja, búsett í Bandaríkjun-
um, Páll Arnór, hæstaréttarlög-
maður í Reykjavík, Signý, leik-
hússtjóri á Akureyri, Þórunn,
kennari í Reykjavík, Sigþrúður,
vinnur að myndlist í Reykjavík,
Anna Heiða, við verslunarstörf í
Reykjavík, og ívar, sem stundar
nám í viðskiptafræðum við Há-
skóla íslands. Áður en Páll
kvæntist eignaðist hann einn son,
Gísla Hlöðver, sem búsettur er í
Bandaríkjunum. Hann erdoktor
í stjörnufræði og prófessor við
Michigan University. Móðir
hans er Kristín Gísladóttir frá
Keflavík, nú búsett í Bandaríkj-
unum.
Þótt Málfundafélagið FAXI
leggi ekki neinar kvaðir á félaga
sína, hvorki pólitískar eða trúar-
legar, þá hefur liðinn tími sýnt
okkur að vissar taugar tengja
Faxafélaga þótt leiðir skilji, og
menn flytji búferlum í önnur
byggðarlög eða segi sig úr félag-
inu af öðrum ástæðum. Þannig
■var því varið með Pál. Á fyrstu
árum FAXA voru árvissar
skemmtanir á vegum félagsins,
Miðsvetrarhóf og Sumarfagnað-
ur, voru þær nefndar. Páll og
kona hans komu þá stundum og
tóku þátt í þeim með okkur.
Á síðastliðnu sumri bar fund-
um okkar Páls skyndilega saman,
er ég mætti honum á götu í Kefla-
vík. Ég náði honum heim með
mér, þar sem við ræddum saman
um daginn og veginn, yfir kaffi-
bolla. Meðal annars ræddum við
um Faxafélagið, og ég minnti
hann á fyrsta fund félagsins á
komandi hausti, og var það þá
fastmælum bundið, að við hitt-
umst á afmælisfundinum 10.
október n.k.
„Maðurinn upphugsar sinn
veg, en drottinn stýrir hans
gangi.“ Páll er horfinn sjónum
okkar. Við söknum góðs félaga,
sem var sterk stoð á fyrstu árum
blaðsins FAXA, hans munum
við lengi minnast.
Með hluttekningarkveðju til
eftirlifandi konu og bama.
Ragnar Guðleifsson.
strandarhrepps gekk formlega í
Mjólkurfélag Reykjavíkur sem
Vatnsleysustrandardeild félagsins.
Verð á mjólk fór Iækkandi á
þessum árum, eftir því sem fram-
boð jókst fór meiri mjólk til
vinnslu. Var svo komið, að í mars
1926 var útborgað verð pr. lítra,
kr. 0,40, og átti þó eftir að lækka
meira.
Þessir voru þeir fastráðnu menn
sem óku mjólkurbílnum:
1. Eiríkur Þ. Sigurðsson (kallaður
Bergur) frá 1. okt. 1921 til 20.
okt. 1925. í 4 ár.
2. Jón Gestur Benediktsson frá
20. okt. 1925 til 1. okt. 1928. í 3
ár.
3. Sveinn Pálsson frá 1. okt. 1928
til 1. okt. 1934. í 6 ár.
4. Guðmundur Björgvin Jónsson
frá 1. okt. 1934 til 1. okt. 1939. í
5 ár.
5. Stefán Ingimundarson frá 1.
okt. 1939 til þess tíma er ferðir
bílsins lögðust niður 1959. f
20 ár.
Samtals óku þessir menn í 38 ár.
Þegar flutningar bflfélagsins á
mjólk lögðust niður var mjólkur-
salan orðin mjög lítil. Tók þá
Mjólkursamsalan að sér flutning-
ana þangað til mjólkursala lagðist
alveg niður.
Tekið saman árið 1983, af Jóni
G. Benediktssyni, Suðurkoti.
Heimildir: Fundagerðarbækur, Mjólk-
urfélags Vatnsleysustrandarhrepps,
Bifreiðafélags Vatnsleysustrandar-
hrepps og Mjólkurfélags Reykjavíkur.
FAXI-177