Faxi - 01.06.1986, Page 16
hversu dregist hefur að hefja byggingu
þessa og koma málinu á einhvern rek-
spöl.
Við viljum byggja Dvalarheimili
fyrir aldraða. Það er verðugt verkefni
sveitarfélaganna 6 að sameina alla
krafta, sveitarfélög, verkalýðsfélög og
ýmis önnur félög og hópa — reyndar
bæjarbúa alla til þess að rífa hér upp
myndarlegt Dvalarheimili. Það má
standa að byggingu þess á svipaðan
hátt og Kópavogsbúar gerðu svo glæsi-
lega fyrir nokkru á ótrúlega skömmum
tíma með stórátaki.
Hér þarf að koma upp smábáta-
höfn fyrir þann stóra hóp fólks sem
stundar útgerð á litlum bátum en hafa
hér enga aðstöðu.
Bæjarfélagið á að leggja þeim lið
sem nú berjast gegn vímu- og eytur-
efnum sem nú flæða yfir landið og er
að verða einhver mesti bölvaldurinn í
samfélagi okkar.
Nýtt dagheimili verði byggt svo
fljótt sem kostur er. í dagheimilismálum
erum við langt á eftir mörgum öðrum
bæjarfélögum — og þarf ekki að fara
lengra en inn í Njarðvík til þess að sjá
hversu betur þeir hafa staðið sig í þess-
um málum.
Óháðir kjósendur leggja áherslu á að
byggður verði nýr skóli í Heiða-
byggð, enda býr þar yngsta fólkið. Það
er því ekki ástæða til að byggja við
Myllubakkaskóla.
Við leggjum einnig áherslu á að
salur Holtaskóla verði lengdur niður
að Sunnubraut og í þeirri viðbót verði
leiksvið ma. Við megum ekki gleyma
því að Holtaskóli er ekki aðeins skóli
fyrir elstu deildir Grunnskóla heldur er
hann einnig Æskulýðsheimili bæjarins.
Það er hins vegar Ijóst að rými þar er
orðið allt of lítið.
Listi óháðra kjósenda tekur ekki af-
stöðu til hvort skóli á að vera langskipt-
ur eða þverskiptur. Við teljum að það
sé á hendi fagfólks þ.e. kennara og
skólanefndar að ákveða slíkt. Við skipt-
um okkur ekki af innra starfi dag-
heimila, þ.e. hvernig þar er skipt í deild-
ir — og þá heldur ekki hvernig skipting
er í skólum. Þetta er, að okkar mati,
ekki pólitískt mál, heldur mál fyrir fag-
fólk.
Ég gæti haldið upptalningunni áfram
á þeim málum sem taka þarf á svo sem
umhverfismálum, umferð og nánasta
umverfi — en hér skal staðar numið og
litið á annað.
Óháðir kjósendur bjóða nú fram
hér í fyrsta skipti. Við viljum leggja
áherslu á að við bindum okkur ekki
innan flokka. Við teljum að það yrði
okkur fjötur um fót. Við teljum að
landsmálapólitík og bæjarmálapólitík
séu tveir aðskildir hlutir, óskyld mál.
Óháðir kjósendur er vettvangur fólks
sem hefur áhuga á bæjarmálum og
nánasta umhverfi sínu og vil fá að hafa
áhrif á það til góðs.
Við erum sannfærð um að Óháðir
kjósendur verði varanlegt afl í kefl-
vískri pólitík.
Við finnum alls staðar góðar undir-
tektir. Óháðir kjósendur munu sópa
að sér atkvæðum við þessar kosningar.
Straumurinn liggur til okkar.
X-M
Flokkur mannsins
KEFLAVÍK
NJARÐVÍK
LAUNAMÁL
ibúar bæjar- og sveitarfélaga eru at-
vinnurekendur og sem slíkir ættu þeir
ekki að borga starfsmönnum sínum
lúsalaun. Stefna FM er.
Lágmarkslaun bæja- og sveitarfé-
lagsstarfsmanna verði hækkuð þannig
að þeir geti lifað af 8 stunda vinnudegi.
Jón Á. Eyjólfsson, Keflavík
Hlynur Pálsson, Njarðvfk
ATVINNUMÁL
FM mun leggja mikla áherslu á að
halda uppi fullri atvinnu.
FM er algjörlega andvígur því að láta
loka frystihúsum og selja togara, stefna
FM í þessum málum er.
Öllum fyrirtækjum sem verða gjald-
þrota verði breytt í samvinnufélög
starfsmanna.
FÉLAGSMÁL
FM vill stuðla að því að bæjar- og
sveitarfélögin séu manneskjuleg, að
þau séu fyrir manninn en ekki maður-
inn bara þegn sem greiðir útsvar.
Stefna FM er því.
Nægileg dagvistun fyrir þá sem óska
þess, góð og aðgengileg heilbrigðis-
þjónusta og nægilegt húsnæði fyrir
alla.
ÚTGJÖLD
FM er á móti öllu bruðli í bæjar- og
sveitarmálum. Stefna FM er að bjæjar-
og sveitarstjórnarmenn hljóti ekki hærri
launagreiðslur en lægst launuðu opin-
berir starfsmenn bæjar- og sveitarfé-
lagsins. FM vill taka fyrir allskonar flott-
ræfilshátt á kostnað útsvars og skatt-
greiðenda.
Einnig munu útgjöld bæjar- og sveit-
arfélagsins lækka vegna þess að bak
við FM eru engir verktakar eða
umboðsmenn sem hagnast á út-
gjöldum bæjarins.
ÁBYRGÐ
Ábyrgð stjórnmálamanna og þátttaka
almennings í bæjar- og sveitarstjórnum.
FM vill gera stjórnmálamenn ábyrga
gjörða sinna, ekki bara á 4 ára fresti
heldur einnig á kjörtímabilinu. Einnig
mun FM notast mikið við skoðana-
kannanir og annað til þess að virkja
almenning til þátttöku.
Ef þú telur að það sem FM segir sé
rétt og sé eitthvað sem gæti komið frá
þínu eigin brjósti stattu þá fast á
skoðun þinni og vertu ekki huglaus.
Það borgar sig frekar að lifa upplits-
djarfur og með reisn heldur en að
beygja sig fyrir fordómum annarra.
NJARÐVÍK
X-A
Alþýðuflokkur
Ragnar Halldórsson
Við vinnslu fjárhagsáætlunar fyrir
sveitafélög er mikill hugur í
sveitarstjórnarfulltrúum að dreifingu
fjármagns til hinna ýmsu rekstrar og
þjónustuliða. i Njarðvík eru tekjur
miðaðar við 90% innheimtur og af því
fara ca. 73% í rekstrar og þjónustuliði,
eftir standa 27% til eignarbreytingar og
nýframkvæmda. Ef miðað er við
raunhæfa innheimtu sveitarsjóðsgjalda
síðustu ára í Njarðvík sem nærri er að
vera 80% þá er fljótséð að svigrúm til
nýframkvæmda er ekki mikið. Leggja
verður ríka áherslu á að vel sé staðið
að innheimtu sveitasjóðsgjalda og
jafnframt að spyrna við þegar
ríkisvaldið stórlega rýrir tekjur
sveitafélaga samanber síðustu aðfarir
ríkisvaldsins að jöfnunarsjóðsframlagi
fyrir þetta ár. í Njarðvík hefur
fjárhagsáætlun bæjarins verið
framreiknuð á áætlun síðasta árs sem
leiðir til skekkju sem er umtalsverð auk
breyttra forsenda til framreiknunar
hinna ýmsu gjaldaliða svo sem launa,
rafmagns og hita. Við fulltrúar Alþ.fl. í
bæjarstjórn átöldum þessi vinnubrögð
harðlega við 2. umræðu
fjárhagsáætlunar og lögðum til að hún
yrði endurunninn svo hún gæti talist
marktækt plagg, þessu hafnaði
meirihluti sjálfstæðismanna í Njarðvík á
þeirri forsendu að enginn gæti unnið
þetta verk vegna yfirvofandi sumarleyfis
bæjarstjóra. Svona vinnubrögðum höfn-
um við alþfl. menn og lofum breytingu
til betri vegar.
Fegrun byggðarlagsins verður að
vinnast skipulega, til að heildarmynd
bæjarins verði fallegur bær.
Samgöngur gangandi vegfarenda
milli hverfa og Njarðvíkur og Keflavíkur
eru algjörlega óviðunandi, lofum við
Alþ.fl. menn að þar verði bætt úr ef við
fáum styrk til í komandi kosningum.
Unnið verði að frekari uppbyggingu
iðnaðarhverfis og lögð áhersla á
iðngarða fyrir iðnað sem gæti skapað
aukna atvinnu í byggðalaginu og
stuðlað að hraðari uppbyggingu innra
hverfis.
Ágætu Njarðvíkingar, þessi
upptalning á nokkrum liðum sýnir
aðeins brot af áhuga okkar Alþ.fl.
manna til að láta gott af okkur leiða
fyrir bæinn okkar, og vonast g til að
sem flestir sjái sér hag í sterkri forystu
Alþflokksins í Njarðvík á komandi
kjörtímabili. Gefum áhugasömum lista
Alþ.flokksins stuðning til betra bæjarfé-
lags á komandi kjördag og setjum X-A
Frcmnhald
á
bls. 149
140 FAXI