Faxi - 01.11.1986, Page 12
á þessu málefni. Það er þó enn
óljóst hvemig byggingarmálum
grunnskólans verður háttað, eða
hvenær framkvæmdir hefjast.
Félagið stóð að sjálfsögðu fyrir
hinu hefðbundna jólaföndri sem
að þessu sinni var haldið 07.12.
eins og lög gera ráð fyrir. Eins og
áður, var heilmikið starf falið í
undirbúningi, og þurfti að þessu
sinni sérstök áhöld til að klippa
niður kaðalspotta, sem fóm í pok-
ana. Fengu sumir félagsmenn
talsverðar blöðrur í lófana við
þetta tækifæri. Þar sem töluvert af
pokunum varð afgangs, gátum við
orðið öðmm félögum að liði með
efhi til jólaföndurs. Þar sem jóla-
sveinar em töluvert dýrir í
rekstri, ákváðum við að vera án
þeirra að þessu sinni, en ég held
að það hafi verið röng ákvörðun.
Annars tókst þessi dagur með
ágætum.
Sl. vor stóðum við ásamt For-
eldra og kennarafélagi Holtaskóla
fyrir umræðukvöldi um vtmu-
lausa æsku. Nokkrir félagar sóttu
undirbúningsfund sem haldinn
var á vegum S.Á.Á. og Lions-
hreyfingarinnar um þessi mál-
efni. Var síðan ákveðið að félögin
stæðu fyrir sameiginlegum fundi
sem tileinkaður væri forvamar-
starfi. Við fengum til liðs við okk-
ur ágæta frummælendur, eins og
Boga Amar Finnbogason, for-
mann samtaka foreldrafélaga á
Reykjavíkursvæðinu, Þórarin
'iyrfingsson, yfirlækni S.Á.Á. og
Óskar Þórmundsson, lögrelgu-
fulltrúa. Þessi fundur var mjög vel
sóttur, enda vei auglýstur. Töiu-
vert snarpar umræður áttu sér
stað, eins og menn rámar eflaust í,
enda virðist manni máiefnið tölu-
vert viðkvæmt. Mönnum er von-
andi í fersku minni þær umræður
sem fóm fram samfara þessum
fundi — undirbúningsfundinum
sem var sjónvarpað. Það er
kannski vert að geta þess, að
undirritaður hefur verið valinn í
stjóm þessa félagsskapar sem
einn af fulltrúum landsbyggðar-
innar, sennilega í beinu framhaldi
af fundi þeim sem við stóðum að.
Að sjálfsögðu höfum við haldið
all marga félagsfundi eins og lög
gera ráð fyrir, og knúið á um þau
málefni sem við höfðum á stefnu-
skránni. Eg get ekki annað sagt en
að þau hafi fengið góðan hljóm-
gmnn eins og raun ber vitni. Við
vomm hér um daginn að gantast
með það að ef starfið gengi svona
vel, þá myndi verkefnaskráin
fljótlega tæmast. Sem betur fer, er
nú raunin önnur, annars hefði ný
stjóm kannski ekkert að gera.
Að sjálfsögðu ber okkur að
halda áfrarn að stuðla að frekari
tengslum foreldra við skólann.
Við getum svo sannarlega haldið
áffam okkar viðleitni þar að lút-
andi. Sjálfan dreymir mig um að
upplifa þann dag þegar skólasetn-
ing og skólaslit verða nokkurs
konar hátíðardagur í landinu.
Fánar blakta á hún, gefið verði frí
á hinum almenna vinnumarkaði
til að foreldrar geti safnast saman
kringum skólann og notið hátíðar
með börnum sínum. I þessu sam-
bandi vil ég benda á, að á hinum
Norðurlöndunum er það lenska
að ríkið bæti launþegum upp
tekjumissi þegar foreldrar fá frí
frá vinnu til að sækja skóla og
kennarafundi.
Landlæknisembættið hefur
nýlega sent frá sér álitsgerð varð-
andi hin tíðu slys á börnum á
heimilum og í umferðinni. Hefur
sérstaklega verið óskað eftir að
börnum verði gefin tækifæri til að
taka virkan þátt í umferðargæslu
félaga sinna. Er þess farið á leit
við forráðamenn skólanna að þeir
stuðli að því að börnum verði gert
kleift á skólatíma að sinna slíku
verkefni. Slíkt mætti gera á viss-
um dögum, eða stöðugt eftir því
sem henta þykir. Vona ég að skól-
amir ljái máls á þessu.
Okkur sem störfum í stjóm
þessa félagsskapar hefur orðið
tíðrætt um það skarð sem skapast
hefur vegna þess að engin tón-
menntakennsla hefur farið fram í
þessum skóla. Á meðan Tónlist-
arskólinn í Keflavík getur ekki
lengur sinnt þeirri þörf sem skap-
azt hefur. Þá hefur engin tón-
menntakennsla verið starfrækt
við þennan skóla um árabil. Það
er ljóst, að skólinn býr við þröng
húsakynni, og er aðstaða því öll
mjög erfið til að skapa það and-
rúmsloft sem þarf til að laða til sín
tónmenntakennara. Hins vegar
veit ég að innan veggja hans finn-
ast kennarar sem kannski hefðu
áhuga á að sinna slíku starfi.
Einnig veit ég að unnið er að því að
við skólann verði ráðinn kennari
til að sinna slíkri kennslu eins og
gmnnskólalögin gera ráð fyrir.
Þegar er til staðar mjög gott
kennsluefni.
Til að sýna hug okkar félags til
starfseminnar, höfum við ákveðið
að verja þeim ágóða sem féll til á
sl. ári til að stuðla að frekari þró-
un tónmenntakennslu við Myllu-
bakkaskóla. Gjöf okkar er ekki
stór hvað verðgildi snertir, en hún
er afrakstur starfsemi okkar og
henni fýlgir hugur. Við erum því
stolt af því að geta fært skólanum
15.000 krónur til kaupa á
kennslugögnum til tónmennta-
kennslu og óskum af alhug að
hugur fylgi máli og félagsskapur
þessi geti e.t.v. frekar stuðlað að
þessu brýna verkefni.
Vil ég fýrir hönd Foreldra- og
kennarafélags Myllubakkaskóla
biðja Kristján A. Jónsson að veita
viðtöku ávísun með þessari upp-
hæð. Ég vil við þetta tækifæri
óska honum og öllum kennumm
við skólann farsældar á komandi
vetri og vona að tengsl skóians við
félagsskap okkar styrkist ennþá
meir.
Ég vil að lokum þakka sam-
starfsfólki mínu í stjórninni óeig-
ingjarnt starf og óska þessum fé-
lagsskap árs og friðar.
Þökk fýrir.
Konráð Lúðvíksson
formaður Foreldra- og kennara-
félags Myllubakkaskóla
INNRI-NJARÐVÍK í SVIÐSLJÓSINU
Vegna 100 ára afmælis fallegrar kirkju staðarins
Því verður varla andmælt að fjölskyldan í Tjarnarkoti hafi komið verulega við sögu kirkju og safnaðar í Innri-Njarð-
vík a.m.k. í hálfia öld, sennilega lengur.
Af því tilefhi taldi ég rétt að birta myndir er mér bárust af heiðurskonunni Þorkelínu Jónsdóttur í 'Ijarnarkoti ásamt
nokkrum af afkomendum hennar.
Gylfl Pálsson, Matthías Kjeld, Finnbogi Guðmundsson, Þorkelína Jóns-
dóttir amma þeirra, Steinunn Margrét Ragnarsdóttir, Svanur Vilhjálmsson
og Finnbogi Kjeld.
Ester, Helga og Guðflnna Finnbogadætur og systkinadætur þeirra Hanna
og María Kjeld og Stefánía Guðmundsdóttir.
256 FAXI