Faxi - 01.01.1989, Page 7
MINNING
Magnús Axelsson, forstjóri
Fæddur 11. nóvember 1927
Dáinn 19. desember 1988
í dag, fimmtudaginn 29. desem-
ber veróur magur minn, Magnús
Axelsson, forstjóri, kvaddur
hinstu kveðju í Keflavíkurkirkju
en hann lést um aldur fram að-
laranótt 19. desember sl. eftir
stutta en snarpa baráttu.
Magnús fæddist í Króki í Garði
11. nóvember 1927, elsti sonur
hjónanna Axels Pálssonar, skip-
stjóra, sem látinn er fyrir nokkr-
um árum og Sesselja Magnúsdótt-
ur sem lifir son sinn.
Æsku- og unglingsár sín átti
Magnús í Keflavík, en hleypti
ungur heimdraganum og lauk
gagnfræðaprófi í Reykholti. lin
sjórinn og sjómennska hafði þá
þegar fangað hug hans og hann
settist í Sjómannaskólann þar sem
hann lauk farmannaprófi.
Um það leyti lágu leiðir okkar
Magnúsar saman, fyrir hart nær
fjörutíu árum. Eg var þá enn ung-
ur drengstauli í móðurgarði þegar
Magnús varð tíður gestur á heirn-
ilinu, gerandi hosur sínar grænar
fyrir eldri systur minni.
Frá þessum árum stendur
Magnús mér enn l'yrir hugskots-
sjónum. Hann var glæsimenni á
velli ogrammuraðafli, sviphreinn
og glaðlegur. Það var því að vonum
að hann vann ástir systur minnar
og þau gengu í hjónaband 3.
febrúar 1951.
Fyrstu árin var Magnús farmað-
ur í millilandasiglingum auk þess
sem hann var um skeið stýrimað-
ur á skipum Landhelgisgæslunn-
ar þar til hann f'yrir atbeina
Agnars Kofoed Hansen þáverandi
flugmálastjóra, réðst til Flugmála-
stjórnar. A vegum þeirrar stofn-
unar sótti Magnús námskeið og
skóla bæði í Iinglandi og Banda-
rfkjunum og starfaði við flugum-
sjón á Keflavíkurflugvelli þar til
breytingar urðu þar á verkaskipt-
ingu Flugmálastjórnar og Loft-
leiða 1962. Skömmu síðar réðst
hann í að yfirftaka rekstur Drátt-
arbrautar Keflavíkur hf. sem hann
rak til dauðadags, en auk þess rak
hann síðustu misserin útgerðar-
fyrirtækið Vör hf., sem gerir út
aflaskipið Fönix KE 111.
Magnús og Kristín fóru vel með
árin sem þau áttu saman. bau
voru hvort öðru allt í gagnkvæmri
ást og virðingu. líg veit líka fyrir
víst að þau vor hvort öðru þakklát
fyrir þennan tíma og fyrir þær
gjafir sem þeim hlotnuðust í fjór-
um heilbrigðum og mannvænleg-
um börnum og síðar tengdabörn-
um og barnabörnum.
Börn þeirra eru: bórður Krist-
inn, fæddur 21 desember 1951,
kvæntur Guðnýju Húnbogadótl-
ur, þau eiga fimm börn. Margrét
fædd 28. janúar 1956, gift Olafi
Jóni Briem, þau eiga þrjú börn.
Auður Guðlaug, fædd 31. október
1959, var gift Sigurði Hróarssyni
og á eina dóttur. Magnús Axel,
fæddur 17. júlí 1967.
Um hópinn sinn og heimilið
stóðu þau Magnús og Kristín sam-
hent dyggan vörð. Það var þeirra
vé og dýrasti tjársjóður.
Ég drap áður á bemskukynni
mín af Magnúsi. í tímans rás urðu
kynni okkar nánari og fyllri, urðu
að vináttu sem aldrei bar skugga
á. Hann var heilsteyptur maður og
vandaður sem ekki mátti vamm
sitt vita. Hann fór vel með mikið
skap sitt var nokkuð einrænn og
bar ekki tilfinningar sínar á torg.
Fannst sumum hann hrjúfur í
fyrstu en við nánari kynni kom í
ljós að í brjósti hans sló stórt
hjarta, enda var hann í eðli sfnu
tillitssamur og hlýr. Glaölyndur
var hann líka og létt um spaugs-
yrði í vinahópi.
Nú er kveðjustundin runnin
upp, fyrr en nokkum óraði fyrir,
þar til fyrir örfáum vikum. Þessi
hrausti maður varð líka að falla
fyrir ofurvaldi sláttumannsins
slynga, þrátt fyrir sína miklu
burði til andans og líkamans og
ríkan lífsvilja.
A þeirri stundu er mér ljúft og
skylt að þakka mági mínum um-
hyggju hans fyrir móður minni frá
fyrstu kynnum þeirra og meðan
bæði lifðu.
Við Erla og fjölskyldur okkar
þökkum Magnúsi samfylgdina og
vináttu hans og biðjum góðum
Guð að styrkja alla ástvini hans.
Blessuð sé minning Magnúsar
Axelssonar.
Valur Páll Þóráarson.
A þessari hátíð ljóss og friðar,
sem nú er í garð gengin varpar frá-
fall tengdaföður míns, Magnúsar
Axelssonar, djúpum skugga á hug
og hjarta. Magnús lést eltir stutta
sjúkrahúslegu aðfaranótt mánu-
dagsins 19. desember sl., 61 árs
að aldri. Fráfall hans er þeim okk-
ar, sem lengum að kynnast hon-
um og njóta návistar hans mikill
harmur.
Magnús var sérstaklega alúðleg-
ur, hlýr og ástríkur fjölskyldufað-
ir. Hann var konu sinni, Kristínu
bórðardóttur, traust og dygg stoð
og þau saman nutu þess að eiga
samverustundir með (jölskyld-
unni og treysta fjölskylduböndin.
l>á var Magnús mjög traustur og
tryggur vinur vina sinna og þeirra
starfsmanna sem hjá honum störf-
uðu.
Að loknu námi við Sjómanna-
skólann í Reykjavík stundaði
Magnús siglingar hjá Jöklum hf.
um nokkurra ára skeið. Síðar gafs
honum kostur á að fara utan til að
sækja nám í flugumsjón. Starfs-
ferill hans við ílugumsjón var þó
skammur, því árið 1963 festi
Magnús kaup á Dráttarbraut
Keflavíkur hf. Hugur hans stóð þó
ætíð til sjósóknar og siglinga og
því fór svo að Magnús hóf árið
1985 jafnframt útgerð togskipsins
Fönix, sem reynst hefur mikið og
gott skip.
Þrátt l'yrir ýmsan andbyr rak
Magnús fyrirtæki sín af festu,
þrautseigju og meö trú á sjálfum
sér. Það var þó hið gagnkvæma
traust og virðing öðru fremur sem
einkenndi viömót og samskipti
hans og þeirra starfsmanna sem
hjá honum störfuðu. Svo mikil var
ábyrgöartilfmning Magnúsar
gagnvart starfsmönnum sínum að
hann lét sækja sig á sjúkrahúsið 4
dögum fyrir andlátið svo að hann
mætti sjá svo um að allir fengju
greidd laun í lok vikunnar.
Við þökkum Magnúsi allar okk-
ar samverustundir. Minning hans
mun fylgja okkur í huganum um
ókomna tíð. Friður sé með Magga
alla daga. Olafur Jón Briem.
—I
FAXl 7