Faxi - 01.01.1989, Síða 16
BÆJAR- 0« HÉRABSBÓKASAFNIB
Mánagötu 7 í Keflavík
Sími: 15155
Við lánum út bækur, tímarit,
hljómplötur og myndbönd.
Safnið er opið sem hér segir:
Mánudaga og miðvikudaga
kl. 15.00-22.00
Priðjudaga — fimmtudaga
kl. 15.00-19.00
Föstudaga
kl. 15.00-20.00
Bygginganefnd IBK
Bygging Salar 2 viö íþróttahús
Keflavíkur gengur mjög vel og er
samkvœmt áœtlun.
Nú fer fram fjárfrekur lokafrágangur
og því eru framlög í fjársöfnun okkar
mjög vel þegin.
GJAFABRÉFIN eru afgreidd á
eftirtöldum stööum
ÍÞRÓTTAHÚSIKEFLAVÍKUR
FÉLAGSHEIMILIÍBK
UMBOÐSSKRIFSTOFU HELGA HÓLM
TAKID ÞÁTT í GEFANDISTARFI.
E/\KI
1. tölubloð
49. órgongur
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík.
Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 11114.
Blaðstjórn: Helgi Hólm, ritstjóri, Kristján A. Jónsson,
aðst.ritstj., Guðfinnur Sigurvinsson, Hilmar Pétursson og
Birgir Guðnason.
Hönnun, setning og umbrot: Leturval sf.
Filmu- og plötugerð: Myndróf.
Prentun: Prentstofa G. Benediktssonar.
HELGIHÓLM
MENNT ER
MÁTTUR
Hér í blaðinu er þess nú minnst, að um það bil ein öld er liðin frá
því almenn barnafræðsla hófst hér á Suðurnesjum. Árið 1888 var
stofnað til skólahalds í Grindavík og hélt Grindavíkurskóli upp á
aldarafmælið s.l. sumar. Miklar breytingar hafa átt sér stað í þjóðfé-
laginu á þessum tíma og hefur skólinn eðlilega fylgt því sem er að
gerast í samfélaginu á hverjum tíma. Sífellt bætast við nýir árgangar,
nú eru yngstu nemendurnir aðeins sex ára. Skólinn er ekki lengur
aðeins menntastofnun, heldur er hann nú einnig mikilvæg uppeld-
isstofnun. Skólarnir eru því sífellt að bæta á sig verkefnum.
Sá sem þessar línur ritar átti þess kost að eiga viðtal við mann sem
hefur víða komið við á lífsleiðinni. Hann kvað íslensku þjóðina geta
hrósað happi yfir ágætu æskufólki og þeim tækifærum sem það ætti
kost á í dag. Við lifum á þessum tímum við miklar og stöðugar breyt-
ingar. Ein mikilvægasta breytingin er aukin framhaldsmenntun sem
er ekki fyrir fáa útvalda, heldur eiga flestir kost á skólanámi eftir að
grunnskóla lýkur.
Gerum við of miklar kröfur til skólanna?
Samfara aukinni menntun hefur almenn þátttaka í atvinnulífinu
aukist. Það hefur aftur á móti skapað nýtt heimilismunstur. Minna
er nú um það en áður, að foreldrar séu heimavinnandi og börn dvelja
æ meir utan heimila sinna. Foreldrar ogskólar sinna nú sameiginlga
uppeldishlutverkinu. En það er rétt að benda á, að aðeins með góðri
samvinnu þessara aðila verður þetta hlutverk rækt sem skyldi.
Hér skal varað við þeirri þróun, sem æ virtist ágerast, að of mikilli
ábyrgð er varpað á skólana hvaö varðar uppeldt barna og
unglinga. Með sanni má segja, að þetta sjónarmið komi oft einnig
fram í málflutningi fjölmiöla og stjórnmálamanna. Undantekn-
ingalítið hefur það álit komið fram, að hér ríki almennt agaleysi,
og sé það fyrst og fremst skólunum að kenna. Fáir virðast álíta,
að heimilin geti átt hér hlut að máli.
Skólinn og heimilin verða að starfa meira saman. Foreldrar verða
að gera sér betur far um að fylgjast með skólastarfinu og skólarnir
að miðla meiri upplýsingum til heimilanna. Því það skal enn
áréttað, að með góðu samstarfi milli skóla og foreldra er hægt að
skapa börnunum betra félagslegt- og uppeldislegt öryggi en þau
virðast mörg hver búa við í dag.
16 FAXI