Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.01.1989, Qupperneq 21

Faxi - 01.01.1989, Qupperneq 21
tegu alúd, úhuga ogidni vid kennsl- Unu, eíns kom það og fram við próf- 'ð, að hörnunum hafði farið frum, °g nokkur tekið sérlegum framfor- Unh og hcfur kennslan íþetta skipti borið meiri ávöxt heldur en búist var við, sem ég þakka eingöngu hcefileikum, úhuga og lagi kennar- Clns, þvi við margt var að stríða. Foreldrar og vandamenn barn- °nna hafa látið í Ijós únœgju sínu yfir framförum harnanna og óska ny'ög að skóla verði árlega haldið ófram úr þessu, sem ég og vona að verða muni, þótt vertíðarafli hafi brugðist í vetur svo að ekki eru til- (ök að leita samskota, einkum þar búist er við, að hinirsömu einstakl- >ngar og úður leiði sig hjá að styðja °ð uppfrœðingunni. bað ber þessvegna brýna nauð- •syn til að þessi kennslustofhun fái ficmn styrk af opinberu fé, sem bcegt er, bceði til þess að eignast ýmislegt er að kennslunni lýtur Fa.m. hnött, landabréf, myndir óýra og fugla ogm.fi., og sér í lagi Ólþessaðgeta haldiðgóðum kenn- ara." Stað 3. maí 1889 Oddur V. Gíslason I skýrslu Péturs sem fylgdi þessari greinargerð Odds kemur fram að kennslan stóð frá 2. okt. til 25. feb. að frádregnu stuttu jólafríi. Kennt var á þrem stöðum í hreppnum Stc/úníu Ola/sddltir yprkcnnuri. dunnlaugur Dan Ólufsson skölustjöri. Hrauni, Garðhúsum og Stað, viku á hverjum staö, 5 stundir daglega. Nemendur voru 25 á mjög misjöfn- um aldri. Einnig kemur fram í skýrslu þessari hve mikið börnin Murgrcl (íísladóttir /orm. skölancfndar. Svava Hjullalin förmaður /órcldra og kcnnarafélagsins. hafi lært. Pétur líkur skýrslu sinni með þessum orðum: „Kennslan gat engan veginn borið þá ávexti sem hún hefði átt að gjöra veldur því mjög, hversu tátæk kennslustofnun ií' 1 ítj H 1 : , j L l f P*f]| 118 í ■ jF‘. i 1 " | 1 | 8kóluhúsiö aö Vikurbraut 16 scm bvggt var i tid Tómasar Snorrusonar. I’ar vur kcnnt frú 1912—1947. SKÓLAR Á SUÐUR- NESJUM þessi er af öllum nauðsynlegum áhöldum. Það má segja að hún eigi ekkert af því sem skólar þurfa að eiga til þess aö kennslan geti orðið að notum í þeim.“ Pétur Guðmundsson kenndi hér í Grindavík í aðeins tvo vetur. Haust- ið 1890 var hann ráðinn skólastjóri bamaskólans á Eyrarbakka. Eftir að Pétur lét af störfum var Erlendur Oddsson ráðinn kennari hér og kenndi hann til ársins 1907. Erlendur var ættaður frá Þúfu í Landi. Hafði áður kennt í Hvalsnes- sókn. Móðir hans var Elín Hjartar- dóttir frá Hópi í Grindavík. í kenn- aratíð Erlendar gerðist það helst markvert að farkennslu lauk 1894, en þá var í fyrsta skipti veitt úr Landssjóði til barnaskóla í Grinda- vík. Árið 1904 byggði hreppurinn skólahús í félagi við templara og eft- ir það er skólinn í eigin húsnæði. Skólahús þetta stendur enn og er þar sem nú er Víkurbraut 11. Skólaárið 1907—1908 kenndi hér Jón Hafliðason bóndi að Hrauni. Árin 1908-1914 stjómar Tómas Snorrason hér bamafræðslu. Hann var ættaður frá Hörgsholti í Hmna- mannahreppi. Útskrifaðist frá Elensborg 1895 og kenndi í Keflavík 1905-1907. Mun Tómas hafa verið málamaður góður og stundaði leið- sögn með útlendinga um landið mörg sumur. Kona Tómasar var Jórunn Tómasdóttir frá Jámgerð- arstöðum. í tíð Tómasar var byggt hér nýtt skólahús úr steini, sem nú hefur verið brotið niður, þetta hús stóð við Víkurbraut 16. Kennsla hófst í þessu húsi um áramót 1912—1913 og var þar kennt til 1947. Við skólastjóm af Tómasi tekur Ingibjörg Jónsdóttir ættuð frá Unn- arholti í Hrunamannahreppi og starfaði hún til ársins 1925, er hún lét af störfum vegna heilsubrests. Fyrir utan störf sín að skólamál- um vann Ingibjörg öturlega að ýms- um félagsmálum. Hún sat um tíma í hreppsnefnd og átti þátt í stofnun Kvenfélags Grindavíkur og var for- maður þess félags áratugum saman. Þegar Ingibjörg varð sextug stofnaði Kvenfélag Grindavíkur sjóð henni til heiðurs og setti henni í sjálfsvald, hvemig varið yrði. Varði hún sjóðn- um til skógræktar í Grindavík. Hvort tveggja, að henni hefur mnn- ið til rifja gróðurleysi Skagans og hitt að henni var í blóð borið að hlúa að öllum gróðri enda lét hún sér FAXI 21

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.