Faxi - 01.01.1989, Síða 32
„Friður fœrir okkur aukinn
þroska“
Alþjóðleg teiknimyndasamkeppni
Lionshreyfingarinnar um „friðarvegg-
spjald" fór fram s.l. haust. Kjörorö
keppninnar var: „Friður færir okkur
aukinn þroska". Rétt til þátttöku í sam-
keppni þessari höfðu grunnskólanem-
endur í 163 löndum á aldrinum 11-13
ára.
Úrslit keppnirinar hérá landi lágu fyrir
skömmu fyrir jól og er ánægjulegt að
geta sagt frá því að önnur verðlaun á ís-
landi féllu í hlut Vigdísar Jóhannsdótt-
ur, Norðurtúni 4 Keflavfk.
Vigdís, sem er 11 ára gömul, er nem-
andi í Myllubakkaskóla, en í þeim skóla
annaðist Lionsklúbbur Keflavíkur fram-
kvæmd keppninnar í samvinnu við
skólastjöra og kennara.
Sundmíðsíöð Keflavíkur og
Njarðvíkur?
Bæjarstjóm Kellavíkur hefur boðið
bæjarstjóm Njariivíkur til viðræðna um
þá hugmynd sem hvaö eftir annað hefur
skotið upp kollinum, að Njarðvík taki
þátt í byggingu og rekstri á hinni nýju
Sundmiðstöð sem er að rfsa í Keflavík.
Hér er á ferðinni dæmi um mjög óvenju-
lega samvinnu og verður fróðlegt að
fylgjast með framvindu þessa máls. Kefl-
vikingar stefna að því að taka fyrst í notkun
25 metra útilaug með nokkmm heitum
pottum. Einniger gert ráð fyrir 25 metra
innilaug. Kæmi hún í gagnið eftir nokk-
ur ár. Sundfólk í Njarðvík hefur látið í
ljós áhuga á að fá stærri laug, en þar er
geysimikill áhugi fyrir sundíþróttinni og
afreksfólkgott. Það væri heppileglausn,
að bæjarfélögin sameinuðust um Sund-
miðstöðina, því vissulega er hún nægi-
lega stór til að geta þjónað báðum byggð-
arlögunum. Með samvinnu mætti þá ef
til vill taka innilaugina fyrr í notkun en
ella hefði verið. Myndi það bæta alla
aðstöðu fyrir hið ágæta keppnisfólk, svo
og allan almenning sem fyrst og fremst
sækja sundstaði sem þennan.
Íþróttamaður
Grindavíkur 1988
Guömundur Bragason var kjörinn
íþróttamaöur Grindavíkur 1988 f kjöri
sem Kiwanisklúbburinn Boði gekkst
lyrir í samvinnu við sérdeildir UMFG.
Guðmundur er einn af allra sterkustu
körfuknattleiksmönnum landsins og
jafnframt með bestu golfleikurum í
Grindavík. Hann hlaut 250 stig, eða fullt
hús í kjörinu.
Landshöfn Keflavík-Njarðvík
Um nokkum tíma hefur það staðið til,
að ríkið afhendi I-andshöfnina í Kefla-
vík-Njarðvfk sveitarfélögunum til eign-
ar. Til þess eru komnar heimildir í lög-
um og hafa farið fram viðræður um
hugsanlega afhendingarskilmála. Hafa
veriö lagðar fram óskir um aö ákveönar
framkvæmdir fylgdu með í kaupunum.
Ekkert hefur enn verið ákveðið í málinu,
en bæjarstjómimar hafa þó gert með sér
ákveðið samkomulag, ef og þegar til
þessarar afhendingar kæmi. Af rfkisins
hálfu er gert ráð fyrir því í framtíöinni,
að það styrki samþykktar framkvæmdir
með 75% framlagi.
Það verður væntanlega mikil búbót
fyrir bæina að fá hafnimar í sinn hlut.
Þessar hafnir, svo og Helguvíkurhöfnin
mynda saman hafnarsvæði sem gæti
Rysjótt veðrátta
Veturinn fram undir þorra var heldur
tíðindalítill, hvað veðráttu snerti og hafa
menn almennt verið ánægðir með það.
Þegar leið að þorra um miöjan janúar, þá
gerði trekk í trekk hin verstu veður.
Þessum veðrum fylgdi bæði hvassviðri
og mikil snjókoma, meiri en hér hefur
sést um nokkurt árabil. Sem betur fer
bar versta veðrið upp á sunnudag þann
21. janúar, þannig að flestir gátu haldið
sig heima við. Hefur oft á síðustu vikum
verið erfitt að komast um og hafa vegir
lokast fyrirvaralaust um allt Suðvestur-
landið. Reykjanesbrautin hefur oft orðið
ófær og flug hefur tafist sökum óveðurs-
ins. Skólahaldi hefur einnig víða orðið
að fresta tímabundið. Ekki hefur þó
snjórinn staðið lengi við, því þíðukaflar
hafa komið á milli verstu hryðjanna. Er
líklegt að yngstu kynslóðinni sé eftirsjá
í snjónum, þó þeir sem fara allar ferðir
sína á bifreiðum séu ósköp fegnir að sjá
hann hverfa. En þannig er íslensk veðr-
átta- aldrei er að vita hvað hún býður
uppá.
1-
32 FAXI