Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1989, Síða 3

Faxi - 01.02.1989, Síða 3
Forseti Islands heimsœkir Keflavík á 40 ára afmœlinu t’ann 1. apríl 1949 fékk Keflavík kaupstaðar- réttindi og nú fjörutíu árum seinna er bærinn einn af stærstu bæjum landsins. íbúatala Kefla- víkur er nú um 7.400. og fer vaxandi. Bæjar- stjóm ákvað á síðasta ári að halda hátíðlegt fjörutíu ára afmælið og voru eftirtaldir aöilar skipaöir í sérstaka afmælisnefnd: Stefán Jónsson, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Hermann Ragnarsson, Guðleifur Sigurjónsson, Björk Guðjónsdóttir og Hjördís Amadóttir. Hefur nefndin starfað ötullega frá síðasta hausti. Tíðindamaður Faxa hitti for- manninn að máli og leitaði frétta af þeirri dag- skrá sem undirbúin hefur verið. Stefán hóf mál sitt á því að segja, að forseti landsins, frú Vigdís Finnbogadóttir, hefði þegið boð bæjarstjómar um að koma í opinbera heim- sókn til bæjarins á afmælisdaginn. Mun það væntanlega setja sinn svip á hátíðarhöldin, því ekki hefði V igdís áður komið slíkra erinda hing- að. Væri bæjarbúum mikill heiður af slíkri heimsókn. Listaverkasýn ing Margir aðilar munu leggja hönd á plóginn í þeirri dagskrá sem verður í sambandi við af- mælið. Fyrsta atriði hátíðarinnar verður sýning, er Listasafnsnefnd bæjarins gengst fyrir í Fjöl- brautaskólanum dagana 19. mars til 1. apríl. Formaður nefndarinnar er Ásta Ámadóttir, listakona. Sýning þessi verður þríþætt. í fyrsta lagi verða sýnd verk listamanna úr Baðstofu- hópnum svonefnda, í öðru lagi verða til sýnis listaverk í eigu bæjarins og í þriðja lagi verður sýning á verkum nemenda úr Myllubakka- skóla. Hátíðarfnndur bœjarstjórnar Bæjarstjóm mun koma saman til hátíðarfund- ar á morgni afmælisdagsins kl. 10. Fer fundur- inn fram í fudnarsal bæjarstjómarinnar í húsi Iðnsveinafélagsins við Tjamargötu. Fundurinn verður opinn almenningi eins og aðrir fundir bæjarstjómar. Hátíðarsamkoma 1. aprfl Aðalhluti hátíðarhaldanna mun fara fram á afmælisdaginn, 1. apríl. Um klukkan 13:30 mun verða afhjúpaður skjöldur á stöpli lista- verks Erlings Jónssonar - Stjána-bláa, en stytta þessi var reist á síðasta ári við Hafnargötuna, beint upp af höfninni. Klukkan 15:00 hefst síðan hátíðarsamkoma í Iþróttahúsi Keflavíkur og þangað er bæjarbúum boðið til að hlýða á dagskrá og þiggja veitingar. Dagskráin verður með léttu sniði og veitingar verða síðan frambomar í hinum nýja sal sem IBK hefur byggt við hliðina á íþróttahúsinu. Dagskráin verður í megindráttum sem hér seg- ir: Stefán Jónsson, formaður afmœlisnefndar. 1. Ávarp forseta bœjarstjórnar. 2. Ávarp forseta íslands. 3. Leikþáttur barna tír Myllubakkaskóla. 4. Samsöngur Einars Júlíussonar og Ólafar Einarsdóttur. 5. Leikfélag Keflavíkur flytur leikþátt. 6. Sýning Fimleikafélags Keþavfkur. 7. Sýning Dansskóla Audar Haralds. 8. Karlakór Keflavikur syngur. 9. Veitingar í sal 2. Leiksýning í tilefni afmælisins hefur verið samin revía í gömlum og góðum stíl, þar sem á fjörlegan hátt verður fjallað um atburði og fólk úr bæjarlífinu á undanfömum fjómm áratugum. Höfundar verksins em Omar Jóhannsson o.fl. Leikfélag Keflavíkur mun flytja þetta verk og verður það fmmsýnt í Féalgsbíói þann 7. apríl kl. 21:00. Þá verður sérstök sýning fyrir aldraða bæjarbúa þann 13. apríl kl. 21:00. Er ekki að efa, að hér verður um áhugaverðan þátt í hátíðahöldunum að ræða. Tónlisí Tónlist mun skipa mikinn sess í þessum hátíð- arhöldum, enda er hér í bæ mikil tónlistarhefð. Tónlistafélag Keflavíkur verður með tónleika í Félagsbíói þann 5. aprfl kl. 20:30. Þar mun Hlíf Káradóttir syngja. Þann 8. aprfl verður Tónlistarhátíð í íþrótta- húsinu. Á dagskránni verða meðal annars eftir- talin atriði: Magnús Kjartansson og félagar. Gunnar Þórðarson. Rúnar Júlíusson. Nemendur og kennarar Tónlistaskóla Keflavíkur. Kórar og einsöngvarar. Brúðuleikhús o.fl. Efni sem sérstaklega verður sniðið við hæfi yngstu borgarana verður einnig að finna á há- tíðardagskránni. Brúðuleikhúsið í Reykjavík mun heimsækja bæinn þann 2. aprfl og setja upp sýningu í Félagsbíói. Mun það eflaust falla í góðan jarðveg. Þá mun Fimleikafélag Keflavík- ur verða með innanfélagsmót á því tímabili sem hátíðin stendur. Dagskrín verður svo að sjálf- sögðu auglýst rækilega. Afmœlisrit í máli og myndum Afmælisnefndin hefur falið Ragnari Karlssyni að ritstýra afmælisriti sem kalla mætti Kefiavík í 40 ár. Þar verður í frekar stuttu máli og með myndum rifjuð upp saga bæjarins og reynt m.a. að kynna bæinn frá ýmsum hliðum. Rit þetta kemur út á afmælisdaginn. Faxi þakkar Stefáni fyrir spjallið og hvetur bæjarbúa til að taka nú vel þátt í hátíðarhöldun- um. Blaðið mun fylgjast með því sem fram fer og gera því skil síðar. Til hamingju með afmælið, Keflvíkingar. ii mí ii i' m --------rzzz Byggöasafn Suðurnesja Opið á laugardögum kl. 14-16. Aðrir tímar eftir samkomulagi. Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769. FAXI 39

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.