Faxi

Årgang

Faxi - 01.02.1989, Side 11

Faxi - 01.02.1989, Side 11
ákveðið. Loksins sá ég hurðina opn- ast og inn kom þessi danski piltur. Hann gekk að rúminu, virtist vilja segja eitthvað eins og íyrra skiptið. Ofurlítið var hann glaðlegri en áður. Ekkert skildi ég hvað hann vildi segja og hefir það ef til vill komið af því að ég var dálítið hrædd við þetta og var alltaf að hugsa um að vakna. Loksins fannst mér ég heima að vanka og þá fann ég að tekið var undir herðamar á mér og ég reist upp og hrist. Þegar ég vaknaði að fullu sat ég uppi. Máttlaus var ég talsvert og dálítið var mér þungt í höfðinu. Nú var ég orðinn ákaflega forvitin, en fann samt engin ráð til að fá neina betri vitneskju um þennan mann. Um þetta leyti var ung stúlka að nokkm leyti á heimili okkar og vor- um við mikið saman. Þá var það einu sinni í rökkri að við vorum einar saman heima hjá okkur. Mér datt þá í hug að reyna hvort við gætum ekki komið borði af stað. Ég hafði einu sinni áður verið við slíka tilraun en það hafði verið í gáska gert og ég hafði hugsað mér að vera ekki með þeim flokki aftur. En mig langaði til að vita hvað ég gæti sjálf og nú datt mér í hug að hafa stúlkuna með. Við sátum dá- litla stund. Þá fór borðið af stað; við spumm og fengum það með tölu- verðum erfiðleikum, að þama væri danski pilturinn kominn og vildi tala við mig. Ekkert gjörðist frekar það kvöld. Við reyndum aftur og þá datt mér í hug að reyna hvort stúlk- an gæti ekki skrifað. Það tókst og virtist vera vit í því sem kom. Ég fór svo að spyrja þennan vin minn um hagi hans. Hann sagðist vera dáinn. Mér skildist, að hann mundi hafa dáið í ágúst árið áður; annars var hann ekki vel viss um það, sagðist hafa lengi verið meðvitundarlaus að minnsta kosti myndi hann ekkert eftir sér, fyrr en nú nýlega. Hann sagðist hafa dáið heima mjög skyndilega. Ég spurði úr hvaða veiki hann hefði dáið. Það sagðist hann ekki vita vel, það væri ekki víst hvaða veiki það hefði verið. Ég spurði hann hvað hann hefði gjört; hann sagðist hafa verið stýrimaður lengi, en rétt um það leyti sem hann hefði dáið hefði hann átt að fá skip, sagðist nýlega hafa tekið skipstjóra- próf. Ég spurði, hvort hann hefði verið kvæntur; hann neitaði því. Við héldum þessum tilraunum áfram lengi frameftir vetrinum og æfinlega kom hann, þ.e.a.s. þegar við vorum einar. En kæmi það fyrir, að við leyfðum öðrum að vera með kom hann aldrei. Einu sinni talaði hann um mál sem okkur hafði farið á milli, þegar við þekktumst. Um það vissi enginn nema ég; en stúlk- an skrifaði um það. Ég var nú farin að verða æði forvit- in eftir áð fá einhveija vitneskju, en á því voru mestu örðugleikar. Sá eini sem ég vissi um að gæti frætt mig um piltinn, var danskur skip- stjóri, frændi hans. En ég vissi ekki heimili hans og um þetta leyti var enginn póstur fluttur milli Islands og Hafnar. Um vorið kom ég hingað til Reykjavíkur og af tilviljun frétti ég þá, að þessi danski skipstjóri sem mér þótti líklegur til að gefa mér vitneskju, væri staddur hér í Reykjavík. Ég fór því til manns sem ég vissi að var honum mikið kunn- ugur og bað hann að fara til skip- stjórans og fá fréttir af þessum frænda hans, bað hann að fá þær eins nákvæmar og hægt væri, en nefndi ekkert af hveiju ég spyrði. Maðurinn fór og kom með þær frétt- ir aftur að pilturinn væri dáinn; hann hafði dáið fyrir 4 árum, verið lengi stýrimaður en átt að fá skip um það leyti sem hann dó; hafði þá nýlega verið búinn að taka próf. Heima hafði hann dáið og mjög skyndilega hafði það borið að. Læknar höfðu ekki verið vissir um hvað að honum hafði gengið, þeim hafði ekki komið saman um það, höfðu helst haldið að það hefði verið óðatæring. Kvæntur hafði hann ver- ið. Það var það eina sem hafði verið alveg rangt hjá honum, því að um það, hvenær hann hefði dáið var aldrei fullyrt, enda finnst mér skilj- anlegt að honum hafi getað skjátlast þar ef hann hefir ekkert munað eftir sér fyrst eftir að hann kom yfir um. KEFIAVIKURKAIPSTAÐIR 40 ÁRA Kcflavíkurbæ og íbúum hans sendum við hamingjuóskir í tilefni af fjörutíu ára afmælinu þann 1. apríl 1989. Jafnframt þökkum við ánægjulegt samstarf á liðnum áratugum. Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarövík og Grindavík. Sýslumaóurinn í Gullbringusýslu. FAXI 47

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.