Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 20
.. .ööruvísi
b*te1cur...
í húsi Blindrafélags íslands að
Hamrahlíð 17 í Reykjavík er stað-
sett all sérstætt bókasafn. Þetta er
Blindrabókasafn íslands sem er
ríkisrekin stofnun og heyrir undir
Menntamálaráðuneytið. Safnið hóf
starfsemi sína í núverandi mynd
árið 1983. Safnið þjónar blindum,
sjónskertum og öðrum þeim sem
ekki geta fært sér í nyt hefð-
bundið letur, með útlánum á
hljóðbókum, blindraletursbókum
og ljósritunarþjónustu á stækkuðu
letri. Forstððumaður safnsins frá
upphafi þess, er Helga Ólafsdóttir
en hún hefur lokið meistaraprófi í
bókasafns- og upplýsingafræðum
frá bandarískum háskóla, þar sem
hún lagði sérstaka áherslu á þjón-
ustu við fatlaða. Alls starfa í
safninu 10 manns.
Safnið telur þrjár deildir, útláns-
og upplýsingadeild, námsbóka-
deild og tæknideild. Stærsti lán-
þegahópurinn er aldrað fólk, sem
af eðlilegum orsökum hefur
daprast sjón og á erfitt með lestur.
Þetta eru ákaflega þakklátir lán-
þegar og margir mjög iðnir við
,,lestur“ hljóðbóka. Reykvíkingar
fá sendar bækur heim, ef þeir
óska, en út á land eru bækumar
sendar í pósti í sérstaklega hönn-
uðum töskum. Auk þessa eru
bækur sendar í bókasöfn á lands-
byggðinni, sjúkrahús og dvalar-
heimili. Safnið leitast við að
byggja upp bókakost við flestra
hæfi, t.d. skáldverk eldri og yngri
höfunda, endurminningar, fræðirit
og bamaefni. í dag em um 2500
bókatitlar í safninu.
Til námsbókadeildar safnsins
leitar blindir og sjónskertir
nemendur sem stundar fram-
haldsnám. Þar fæst námsefnið
framleitt, ýmist á blindraletri,
sem hljóðbók eða með stækkuðu
letri. Einnig getur fólk í starfi,
sem ekki getur nýtt sér hefð-
bundið lesefni sem það þarf á að
halda vegna atvinnu sinnar, nýtt
sér þjónustu námsbókadeildar.
Við framleiðslu blindraleturs-
bóka er námsefnið skrifað inn á
tölvur safnsins en síðan þýðir
sérstakt umbreytingaforrit tölvu-
letrið yfir á blindraletur. í öðmm
tilfellum em bækur fengnar á
disklingum frá forlögunum og
prentsmiðjum og breytt með áður-
nefndri aðferð yfir á blindraletur.
í tæknideild er hljóðbókakostur
safnsins framleiddur, þ.e.
bækumar hljóðritaðar og fjölfald-
aðar yfir á snældur. Vegna samn-
inga við Rithöfundasambandið em
einungis 3 eintök framleidd af
þeim bókum sem höfundarréttur
hvílir á. Þetta veldur oft erfið-
leikum þegar margir vilja lesa
sömu bókina. Sjálfboðaliðar hafa
lesið bækumar inn og skilað
drjúgu starfi síðan þessi starfsemi
hófst en s.l. ár hafa launaðir
lesarar bæst í hópinn, oftast
leikarar, og hefur framleiðslan
þannig orðið skipulegri og af-
köstin aukist.
Öll starfsemi safnsins hefur
aukist jafnt og þétt frá stofnun
þess. M.a. hafa kennarar í vax-
andi mæli snúið sér til safnsins
vegna lestregðu nemenda sinna af
ýmsum orsökum, m.a. lesblindu.
í nútíma þjóðfélagi sem leggur
áherslu á jafnrétti til náms og
starfa hefur Blindrabókasafnið
miklu hlutverki að gegna og opnar
þeim leið til bóklestrar sem ella
þyrftu að lifa án bóka.
Ragnhildur Árnadóttir.
56 FAXI