Faxi

Årgang

Faxi - 01.02.1989, Side 27

Faxi - 01.02.1989, Side 27
SKÓLAR Á SUÐUR- NESJUM urn, af fríviljugum samskotum." Auk aðalhússins var baðstofa með þrjú rúm hvoru megin, upphaflega ®tluð bömum lengra að. Afast við baðstofuna var eldhús handa skól- anum. Fyrir ofan loftið var hana- bjálki. Þó mikið hafi verið lagt í þetta hús, fengnir frægir smiðir, þá var þetta hús misheppnað. ,,Hér fór sem oft vill verða, þegar næga þekkingu vantar á hlutunum, að þetta dýra hús, sem byggt var fyrir skólann, reyndist mjög óhent- ugt: Staðurinn var hinn versti þar sem húsið stóð; sjór féll upp að því og rann allt í kringum það í stórflóð- um, svo ekkert leiksvið varð fyrir bömin úti við. Herbergin vom mjög óhentug, bæði vegna þess hvað birt- an var slæm og svo vom þau þröng.“ Einnig segir síðar: ,,Allt sem til skólans þurfti að leggja, var í mjög ófullkomnu lagi, ofnar vom stund- um engir stundum var þar hróflað upp eldavélum, sem lítið hituðu, og eigi vom reykheldar. Kennarar og nemendur kvörtuðu oft bæði um feyk og kulda. Borð og bekkir vom 1 mjög vondu lagi; það fór illa um bömin og stundum vantaði þau sæti í skriftartímum.“ Það má með sanni segja að margt hafi batnað síðan í þá daga, en yfir- leitt var búnaður í skólum þessa tíma mjög lélegur og ekki sniðinn að þörfum nemenda og kennara. Það má til gamans geta þess að þaö er ekkert nýtt að skólahús geti lekið. Svo segir um skólahúsið sem kennt var í á Suðumesinu um 1886-1887. ,,í hverri skúr lekur þetta hús mest öllu, sem á það rignir, loftið heldur eigi vatninu, svo bömin urðu að flytja sig til í herberginu eft- ir því úr hvaða átt rigndi." ..Veggimir á þessu fyrsta húsi skólans vom þannig gerðir að grót- veggir vom hlaðnir upp með sand á milli, en vatn komst í þá og spmngu þeir í frostum, þetta gerðist strax fyrsta veturinn." Það er svo ekki fyrr en 1878 að gert er við bamaskólahúsið. „Rifnir voru undan því allir veggir og hlaðn- ir upp aftur af grjóti eintómu með kalki. Var það verk kostnaðar- samt.“ í þessu fyrsta húsi bamaskólans var kennt til 1887. Þá tók séra Jens Pálsson við stjóm skólans og fjár- ráðum um áramótin 1887-88, af S.B. Sívertsen. ,,Þá var afráðið að selja skólahús- ið í Gerðum og flytja skólann heim að Útskálum, en vissra orsaka Merki Gerdaskóla. vegna gat þessu ekki orðið fram- gengt." Skólanefrtdin tók því á leigu tvö herbergi hjá bónda einum í Garðin- um, nánar tiltekið í Miðhúsum, og starfaði skólinn þar í næstu þrjú ár. Fyrstu heimildir um bókakost skólans er að finna sem viðbót aftast í 1. dagbók bamaskólans í Gerðum. Líklega er hún frá 1884, en þangað nær bókin: „Biblían 1 exempel N. Téstamenti 4 expl. Lestrarbók handa alþýðu á íslandi Þ.B 1 expl. Agrip af mannkynssögunni (P.M.) 3 expl. Ágrip af mannkynssögunni handa bamaskólum (Rvík 1882) 9 expl. Ágrip af landafræðinni (Ed Erslev) 3 expl. Dönsk lestrarbók handa byrjend- um (Rvík 1880) 2 expl. Landaatlas 1 exemplar." Húsinu sem skólanefndin tók á leigu 1887 er lýst þannig;, ,Þetta var hlýtt og súglaust hús með ágætum ofhum, stærðin nægileg, hið stærra var 11x5x4, enhið minna5^x6x4, birta var eigi sem haganlegust. Skólinn hefur fengið ný borð og bekki, veggtöflur og ýmisleg áhöld, svo sem tellúríum, veggkort og myndir.“ Að þessum þrem ámm liðnum, sem skólinn starfaði í þessu hús- næði, flytur hann í eigið húsnæði að Útskálum, sem var uppgert hús. Segir svo í dagbók skólans við þetta tilefhi; „Ár 1890 miðvikudaginn 1. októ- ber, var bamaskóli Rosmhvalaness- hrepps settur að Útskálum í hinu nýviðgerða skólahúsi," og svo seinna. „Sökum þess skólahúsið var eigi fullgert gat regluleg kennsla eigi byijað fyrr en laugardaginn 4. október." Ekki er að finna neina lýsingu á skólahúsinu aðra en þá sem skrifuð er 1896 og kemur sú lýsing síðar. í þessu húsnæði starfar skólinn svo til 1911, en þá stendur hreppurinn að byggingu skólahúss, sem er fyrsti vísir að núverandi húsnæði skólans. Eftir þau þijú ár sem skólinn starfaði í þessu leiguhúsnæði þá hafði hann fengið eftirfarandi af áhöldum: „Auk húss, borða og bekkja: 18 exempel af Pilti og stúlku, 18 expl. af samtíningi, tellúríum með tungli og kertapípu, talnakúlur, veggkort af Evrópu „til klasseundervisning." Uppdráttur ísl. hinn stóri eftir B.G. „Georgraffisk Auskuelsesbillede“ fyrir byijendur í landafræði: Þessi öll í stokkum, 12 litmyndir af mann- legum líkama (Menneskets Ana- tomi) límd á pappa og léreft, mynd af mannflokkunum (5 Racehoved- er) á einni mynd, auk þessa 6 vegg- myndir aðrar: íshafsland, silki- ormur og silkifluga á mórbergjatré, pyramydar frá Egiptalandi, Konst- Samþykkt vidbygging vid skólann sem Valdimar Harðarson, Ámi Fridriksson og Pdll Gunnlaugsson hafa hannad. FAXI 63

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.