Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.02.1989, Qupperneq 35

Faxi - 01.02.1989, Qupperneq 35
SKÓLAR Á SUÐUR- NESJUM Nýtt skólahús 1911. Það var árið 1907 að Alþingi sam- þykkti ný lög um bamafræðslu í landinu. Þessi lög mörkuðu tíma- mót í menntunar- og fræðslumál- um, en fram að því höfðu þessi mál verið mjög á reiki. Skólaskyldan er þá lögfest fyrir böm á aldrinum 10—14 ára. í þessum lögum var ríkið einnig skuldbundið til að greiða að vemlegum hluta kostnað við skóla- hald og byggingu skólahúsnæðis. Með hliðsjón af þessum nýju ákvæðum laganna, þá ákvað hreppsnefnd og skólanefnd að ráð- ast í byggingu nýs skólahúss. Skól- anum var nú valinn staður á melum nokkmm upp frá Gerðum. Ekki er mér kunnugt um, hver stjómaði byggingu hans, en myndarlegt var það hús á þeirra tíma mælikvarða. Þar vom tvær kennslustofur, lítið áhaldaherbergi og góður gangur. Skólinn flutti frá Utskálum árið 1911. Heldur þótti umhverfi hússins berangurslegt í fyrstu, enda höfðu nemendur notið góðs af nábýlinu viðprestsbústaðinn á Útskálum. En þama á melana var skólinn kominn og þaðan varð ekki aftur snúið og hefur skólinn starfað þar síðan. I dag er staðsetning hans mjög góð og í fullu samræmi við byggðarþróun í hreppnum. Viðbygging 1943, íþróttahús o.Q. Árið 1936 em sett ný lög varðandi skólaskylduna. Nú skyldu öll böm á aldrinum 7-14 ára ganga í skóla. Með vaxandi nemendafjölda og auknum kröfum til skólans, s.s. varðandi íþróttakennslu o.fl. var ráðist í það árið 1943 að byggja við skólann. Var þá byggð álma við austurenda hússins til norðurs. Þar var byggður íþróttasalur, sá fyrsti á Suðumesjum, einnig ein kennslu- stofa, snyrting og kyndiklefi. A efri hæð var byggð lítil kennaraíbúð, handavinnustofa fyrir drengi og á hanabjálkalofti var lítil geymsla. Var húsnæðið tekið í notkun þetta ár, en íþróttasalurinn árið eftir. Viðbygging 1969. Árið 1967 er enn hafist handa, því enn fjölgar í skólanum og er nú byggt við vesturgafl gamla skólans. Vom nú byggðar þijár kennslustof- ur og smíða- og raungreinastofur. Einnig snyrtiherbergi, skrifstofa fyrir skólastjóra og rúmgóður gang- ur. Var þá um leið gerður nýr aðal- inngangur í skólann. Var þessi við- bót tekin í notkun 1969. Viðbygging 1982. Og enn fjölgar nemendum og vom nú aðeins liðin þrettán ár frá því síðast var byggt við skólann. Árið 1982 er enn byggt við skólann og nú að norðanverðu. Þar vom byggðar tvær kennslustofur og að auki hús- næði fyrir bókasafn. Þar er nú til húsa bókasafn hreppsins og er það jafnframt notað sem skólabókasafn. Skólastjóratal. Það er eins með skóla og önnur fyrirtæki, að það er ávallt mikið undir stjómendum komið, hvemig til tekst með árangur. Það hefur áð- ur komið fram, hversu mikinn áhuga prestamir í Garðinum höfðu á öllu skólastarfi og eflaust hefur það örvað áhuga þeirra kennara sem við skólann störfuðu. Gerða- skóli hefur í tímans rás haft úr- valsfólki á að skipa sem hefur margt notið mikils álits í þjóðfélaginu. Hér á eftir fer listi yftr nöfn allra þeirra sem stjómað hafa skólanum í þessi hartnær 120 ár. 1872—1880 l’orgrímur Guðmundscn 1880— 1882 Eiríkur Gíslason 1881— 1882 Jón Jónsson 1882— 1883 Þorgrímur Gudmundscn 1886— 1887 Jóhann Bjarnason 1887— 1891 Ögmundur Sigurðsson 1891- 1892 Kristján G. Jónsson 1892— 1896 Ögmundur Sigurdsson 1896—1901 Bjami Jónsson 1901— 1902 Matthildur Finnsdóttir 1902— 1943 Einar Magnússon 1943-1949 Sveinbjöm Ámason 1949-1953 Sveinn Halldórsson 1953—1960 Þorsteinn Gíslason 1960—1968 Jón Ólafsson 1968— 1969 Halldóra lngibjömsdóttir 1969— 1971 Jdn Ólafsson 1971— 1972 Halldóra Ingibjömsdóttir 1972— 1984 Jón Ólafsson 1984— 1985 Bragi Melax 1985— 1986 Betgsveinn Audunsson 1986— Eiríkur Hcrmannsson Eru að hugsa um 9. bekkinn. Þrátt fyrir mikinn húsnæðisskort, þá em skólamenn í Garði að velta fyrir sér, að hefja kennslu fyrir 9. bekk gmnnskólans, en í dag sækir hann nám í Holtaskóla í Keflavík. Má á því sjá, að ekki láta menn deig- an síga. Sundkennsla fer fram f Sandgerði og einnig hluti af íþrótta- kennslunni. Við skólann starfa í dag 11 kennarar, þar af 8 í fullu starfi. Bekkjardeildir em ellefu og fer kennsla fram í 7 stofum. TVær af þessum stofum eru mjög litlar. Ein sérkennslustofa er til staðar og einn leikfimisalur, lítill. í vetur em nem- endur alls 191 og hefur þeim fækk- að lítillega, en flestir hafa þeir verið 209, árið 1985. Ekki er foreldrafélag starfandi við skólann, en formaður skólanefndar er nú Jón Hjálmars- son. Skólastjóri er eins og áður sagði, Eiríkur Hermannsson, og yf- irkennari er Halldóra Ingibjöms- dóttir, er starfað hefur við Gerða- skóla síðan á árinu 1944. Hefur hún sýnt skólanum og nemendum sín- um ótrúlega tryggð með sínu langa og mikla starfi. Faxi óskar Gerðaskóla, nemend- um hans og starfsfólki heilla í fram- tíðinni. HH. Bygginganefnd IBK GJAFABRÉFIN eru afgreidd á eftirtöldum stöðum ÍÞRÓTTAHÚSIKEFLAVÍKUR FÉLAGSHEIMIU ÍBK UMBOÐSSKRIFSTOFU HELGA HÓLM TAKIÐ ÞÁTT í GEFANDISTARFI. Samvinnubanki r Islands hf. Hafnargötu 59, Keflavík Vid höfum nýlega flutt okkur um set og erum nú í nýju og góöu húsnœdi úsamt hinu glœsilega Flughóteli. Lítid við hjá okkur og reynið viöskiptin FAXI 71

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.