Faxi - 01.02.1989, Blaðsíða 39
Þorsteinn Hákonarson í Njarðvík,
hann frá æru og embætti og til að
missa fingur af hendi þeirri, er hann
ritaði með. Uppreisn á ærunni veitti
kóngur honum sama ár, en frá
prestskap og brauði var hann
dæmdur. Flutti hann sig þá að
Fuglavík á Miðnesi og bjó þar til
dauðadags.
Þann 8. ágúst þetta sama ár var
staður og kirkja úttekin af hendi
Þorgeirs af prófasti, síra Guðlaugi í
Görðum og ad interim í hendur lög-
réttumanni Kort Jónssyni á Kirkju-
bóli og bónda Bergþóri Jónssyni á
Rafnkelsstöðum. Úttektarmenn
voru þá lögréttumaðurinn, Jón
Gíslason á Flankastöðum, bróðir
Olafs biskups og Gróu, konu Korts,
og hreppstjóramir Bjami Jónsson
og Jón Þorsteinsson og bóndi
Hákon Thitsson.
Sama ár vom Útskálar veittir síra
Agli Eldjámssyni á Mosfelli, bróður
síra Hallgríms prófasts, og staður-
inn afhentur honum 26. nóvember.
1754 í júní visiterar biskup Ólafur
Gíslason Suðumes.
1755 vom prentaðir Iðrunarsálm-
ar, sem síra Þoigeir Markússon
hafði ort. Um fardaga þetta ár ferð-
uðust um öll Suðumes þeir náttúm-
fræðingamir Eggert Ólafsson og
Bjami Pálsson upp á konunglegan
kostnað.
1758. Þ. 17. febrúar á Góuþræln-
um urðu sex skipstapar á Suður-
nesjum. Dmkknuðu nálægt fjöm-
tíu menn. Þá hröktust níu skip af
Suðumesjum og eitt úr Höfnum, og
komust fjögur af. A einu skipanna
var Þorgeir. Eftir mikla hrakningar
náði hann lendingu í Gerðum, hvar
tengdaforeldrar hans bjuggu. Út af
sjóhrakningi þessum orti Þorgeir
sálm, sem prentaður er í ljóðmæla-
safni eftir hann. A meðal þeirra sem
fórust í þessu mannskaðaveðri, var
Guðmundur bóndi á Löndum, sem
var formaður á áttæring. Hann sást
reka til hafs. Jón sonur hans, bóndi
á Býjaskeijum og formaður, giftur
Þórdísi Pétursdóttur, sem seinna
átti Þórð á Býjaskerjum, Sighvats-
son föður Jóns stúdents. Með hon-
um dmkknaði Einar, faðir Sig-
mundar bónda á Krókskoti, langafi
Áma Einarssonar hreppstjóra í
Miðhúsum.
1759 gaf Jón Þorkelsson í Kaup-
mannahöfn jarðir sínar og eignir, er
töldust fjögra þúsunda virði: fátæk-
um bömum í Gullbringusýslu til
forsorgunar og menntunar, því að
hann var þaðan ættaður og fæddur
í Innri-Njarðvík, sonur Þorkels lög-
réttumanns og Ljótunnar Sigurðar-
dóttur.
1762 var skoðanagjörð haldin á Út-
skálastað.
FRAMH. í NÆSTA BLAÐI
VELDU
BETRI
KOSTINN
NONNI OG BUBBI
HRINGBRAUT 92
SÍMAR 11580-14188
FAXI 75