Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1989, Blaðsíða 4

Faxi - 01.10.1989, Blaðsíða 4
Karlakór Keflavíkur tekur stakkaskiptum Varaformaður Karlakórs Keflavík- ur, Olafur Erlingsson, bauð ritstjóra Faxa að koma á æfingu hjá kórnum. Ég hugsaði með mér. Er nú komið að því, verð ég nú loksins uppgötv- aður sem stórsöngvari. Ég sat við sjónvarpið eitt kvöldið að horfa á fréttirnar, þegar Óli hringdi og minnti mig á æfinguna. Ég dreif mig í skyndi á staðinn og þegar ég nálg- aðist KK húsið þá bárust þaðan þýð- ir tónar jólalags. Ég var ekki viðbú- inn þeirri sjón sem mætti mér, þegar ég gekk inn í æfingasalinn. I stað þess að þar væru 20—30 karlmenn að æfa sig, þá var þar 50—60 manna hópur karla og kvenna á sameigin- legri æfingu. Ekki þekkti ég stjórn- andann, en komst að því fljótt, að þar var kominn nýr stjórnandi kórs- ins, Sigvaldi Snær Kaldalóns frá Reykjavík. Ég var ekki einn fréttamanna á ferðinni, því með mér var mættur hann Elli af Bæjarblaðinu. Við kró- uðum Ólaf af inn í setustofu kór- manna og báðum hann að segja okkur hvað hér væri eiginlega á seyði. Kórstarfið hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar að undanförnu, þrátt fyr- ir þrotlaust starf undanfarandi stjórna. Ég vona að ég móðgi ekki neinn þótt ég nefni hér til þá Jóhann Líndal, Jósef Borgarson og Hauk Þórðarson. Því kom upp sú hug- mynd, að við fengjum konur í lið með okkur til að mynda n.k. bland- aðan kór sem starfaði við hlið karla- kórsins. Það varð úr og nú erum við búin að setja upp dagskrá fyrir vet- urinn. Hún er í stuttu máli þannig: Þann 10. desember n.k. fer fram að- ventukpnsert með kór Keflavíkur- kirkju. í byrjun mars verður sameig- inlegur konsert karlakórsins og blandaða kórsins. í maí tekur síðan karlakórinn þátt í móti sunnlenskra kóra og fer það fram í Mosfellssveit. Hvernig ganga æfingarnar og hvernig líkar körlunum þessi breyt- ing? „Æfingar ganga mjög vel. Við æf- um tvisvar í viku og söngstjórinn er að gera mjög góða hluti, fær fólkið til að leggja mjög hart að sér. Körl- unum líkar þessi breyting vel. Það er góður andi í hópnum og margir þessara nýju félga hafa góð tök á söngnum, það er greinilegt að sum þeirra hafa lært söng, það hjálpar mikið." Hvað telur þú að valdi þessum mikla áhuga á kórstarfinu? Stjórnandi kórsins, Sigualdi Snœr Kaldalóns. Oryggisbók -Trorapbók Tværí örnogura vexh SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK Suðurgötu 6, sími 92-15800 Njarðvík, Grundarvegi 23, sími 92-14800 224 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.