Faxi - 01.10.1989, Blaðsíða 29
Finnbogi Kjeld, eigandi Víkur-
skipa, var fenginn sem ráðgjafi
vegna áralangrar reynslu af skipum
og skipaútgerð og þ. 4. mars gerðu
Lyngholt hf. og Finnbogi með sér
samning um helmingaskipti á út-
gjöldum eða gróða vegna kaup-
anna.
Ef björgun mistækist var áætlað
tap um 3 millj. en ef hún heppnaðist
yrði útlagður kostnaður við björg-
unina sjálfa um 7 milij. Ætlunin var
að semja við suðumenn og aðra um
áhættuhlut, þ.e.a.s. lágmarkslaun ef
tilraunin misheppnaðist en góðan
hlut annars. Hafnargjöld hér og
dráttur til Póllands um 5 millj.,
áætlaður viðgerðarkostnaður um
48 millj. = heildarkostnaður um 60
millj. Söluverð eftir viðgerð var tal-
ið um 100 millj. þannig að ef allt
gengi upp yrði beinn hagnaður um
40 millj.
Undirbúningur
björgunarinnar
Byrjað var á því að kanna aðstæð-
ur á strandstað, legu skipsins í fjör-
unni og sjávarstöðu á hinum mis-
munandi tímum framundan. Frá
upphafi var vitað að botn skipsins
var ónýtur og því mikill leki í botn-
tönkum, lest og vélarrúmi, sérstak-
lega aftast í skipinu, enda hafði það
velkst um í grjótinu í u.þ.b. l'Á mán-
uð.
Björgunarmenn gerðu áætlanir
um flotgetu skipsins með tilliti til
mestu flóðhæðar og fengu verk-
fræðinga til þess að gera nákvæma
útreikninga til öryggis.
Allar áætlanir byggðust mjög
fljótt á því að nýta til fullnustu flot
skipsins með hjálp frá loftdælingu.
Það lögmál hlaut að gilda að hlutur
léttist til jafns við það vatnsmagn
sem hann ryður frá sér í rúmmetr-
um.
Byrjað var á því að þétta lestina
eins og hægt var með því að sjóða
plötur yfir stærstu götin og settir
voru upp styrktarbitar. Ekki tókst að
þétta vélarrúmið því sá hlutur skips-
ins lá alltaf í sjó á fjörum.
í upphafi stóð til að gera fyrstu til-
raun á stórstraumsflóðinu 7.-11.
mars. Þegar leið að þeim tíma var
fyrirséð að ekki yrði unnt að ljúka
þéttingu og öðrum undirbúningi í
tíma og var aðgerðum því frestað til
næsta stórstraums 6.-8. apríl.
Dagana 7.-11 mars var flóðhæð
mikil og fylgdi henni hvöss suðvest-
anátt. Þessa daga slóst skipið tölu-
vert til í fjörunni, færðist til hliðar
um 150 m og jafnframt hærra upp í
grjótið. Áður hafði hæðarmunur á
stefni og skut verið um 0.90 m en
eftir hreyfinguna um 4.50 m. Þessu
fylgdu bæði kostir og gallar. Nú lá
skipið betur hvað varðaði sker og
dýpi en á hinn bóginn hafði tapast
um 500-600 tonna flot.
Var þá brugðiö á það ráð að loka
millidekki svo hægt yrði að dæla
lofti í vélarrúmið. Unnið var nótt og
dag, á fjörum, við þéttingu því tím-
inn var naumur. „Öndunarstútar"
sem lágu niður í botntankana voru
Fyrslu björgunartilra unir. Áhorfendur á strandstaö þann 6. apríl sl.
brenndir af, nýir stútar settir á og
þeir tengdir loftslöngum.
í áætlunum var reiknað með að
skipið skemmdist meira ef veður
yrðu slæm á síðustu dögum og 4 öfl-
ugar vatnsdælur voru því fluttar um
borð.
Vinna við þéttingu o.fl. tók um 3
vikur og unnu allt að 20 menn við
undirbúning síðutu dagana. Allir
lögðust á eitt og var samheldnin
mikil. Margir utanaðkomandi gáfu
góð ráð og auðvelt var að fá lánuð
tæki til björgunarinnar.
Fyrsta tilraun
Lestinni var endanlega lokað
morguninn, 6. apríl, fimmtudag, en
áður hafði verið látið falla inn í hana
Á flot 7. apríl.
*
A aö mála fyrir jólin?
Þá er rétt aö velja litinn af smekkvísi.
Beckers
Litaval telur sig standa undir nafni og nú er litabyltingin í algleymingi.
Við bendum ykkur því á m.a. sœnsku málninguna BECKERS ásamt
þeirri sænsk-íslensku - BETT. Viö eigum alla liti og öll gljástig.
Við erum nú einnig með flísar frá FLÍSABÚÐINNI.
Líttu við og fáðu faglega ráðgjöf.
Litaval
Baldursgötu 14
FAXI 249