Faxi - 01.10.1989, Blaðsíða 17
viötaliö
Viö spurðum Teit fyrst aö því, hve-
nær og hvar hann væri fæddur og
hverra manna hann væri.
,,Ég er fæddur í Njarðvík 9. janúar
1967 og uppalinn þar og foreldrar
mínir eru Orlygur Þorvaldsson og
Erna Agnarsdóttir. Ég á sex alsyst-
kyni og einn hálfbróður.” Bræður
Teits eru Sturla, sem er einnig vel
þekktur sem körfuknattleiksmaður,
Gunnar og Stefán, en systur hans
heita Halla, Margrét og Kristín. Hálf-
bróðir Teits heitir Svavar.
Hvenær fórstu fyrst að stunda
körfuna?
,,Ég hef alltaf búið í Njarðvík og
komst þar fljótt í kynni við margar
íþróttagreinar, því hér er mikið
íþróttalíf, sérstaklega eftir að
íþróttahúsið komst í gagnið. Mig
minnir að ég hafi verið um níu ára
þá. Við vorum í körfu, handbolta og
fótbolta svo eitthvað sé nefnt."
Hverjir voru með þér í iþróttun-
um í þá daga?
,,í körfunni voru það fyrst og
fremst Eðvarð sundkappi, ísak,
Hreiðar og Kiddi Einars."
UMFN hefur lengi átt mjög góða
yngri flokka sem sést best á því, að
hin síðari ár hafa það fyrst og fremst
verið innfæddir Njarðvíkingar sem
hafa leikið með meistaraflokki. Teit-
ur lék með yngri flokkunum og
vann til margra meistaratitla. Hann
hóf síðan að leika með meistara-
flokki árið 1984, þá 16 ára gamall.
V'ið spyrjum að því, hverjir hafi
verið í meistaraflokknum á þeim
tíma og hvernig liðinu hafi þá geng-
ið.
,,Fyrst verður að nefna Val Ingi-
mundar — hann var sá besti. Einnig
voru það Sturla bróðir, Árni Lárus-
son, ísak, Hreiðar, Kristinn, Jói
Kristbjörns o.fl. Liðinu gekk mjög
vel, því við urðum íslandsmeistarar
þetta árið og næstu þrjú árin einn-
'g“
Margir frábærir leikmenn hafa
leikið með Teiti, bæði í UMFN og
einnig í landsliðinu, en með því hef-
ur hann leikið fjölmörgum sinnum.
Við biðjum Teit að nefna þá leik-
menn sem hafa orðið honum hvað
minnisstæðastir.
,,Ef ég nefni þá leikmenn sem mér
hefur fundist mest gaman að leika
með, þá eru það fyrst og fremst þeir
Jóhann Kristbjörnsson og Hreiðar
Hreiðarsson sem ég vil nefna. Jói les
leikinn ákaflega vel hverju sinni og
því getur maður leyft sér svo margt
með hann við hlið sér. Hreiðar er
aftur á móti svo drífandi, að aðrir
leikmenn smitast af honum. Af mót-
herjum vil ég nú nefna Sturlu. Það
er mjög erfitt fyrir mig að leika á
móti honum, því hann þekkir mig
vel og með sínum mikla styrk held-
ur hann mér betur niðri en flestir
aðrir. Þá vil ég einnig nefna Guðjón
Skúlason. Hann má aldrei sleppa
laus, þá skorar hann. Enda leggja nú
flest liðin áherslu á að gæta hans.“
Spyrjandinn man eftir mörgum
leikjum með UMFN sem hafa verið
mjög skemmtilegir og þrælspenn-
andi. Mér leikur forvitni á að vita,
hvaða leikjum Teitur man helst eftir
og við innum hann eftir því.
„Minnisstæðastir eru tveir leikir á
móti Haukum sem báðir réðu úrslit-
um um, hvar meistaratitillinn lenti.
í fyrri leiknum var leikið í Hafnar-
firði og var það eins og oft áður
mjög jafn leikur. Það var síðan á síð-
ustu sekúndu leiksins að Valur blak-
aði knettinum í körfuna og við urð-
um meistarar. Síðari leikurinn fór
fram í Njarðvík, úrslitaleikurinn vet-
urinn 1988. Ég hef aldrei lent í öðru
eins. Tvisvar þurfti að framlengja
leikinn og Haukar unnu loks. Það
eru einmitt svona leikir sem gera
körfuna svo skemmtilega. Sjaldan
er hægt að bóka úrslit fyrirfram."
Hvað finnst þér um að leika með
landsliðinu?
„Það er að sjálfsögðu skemmti-
legt. Samt er það erfitt, þegar allir
þeir bestu gefa ekki kost á sér. Mér
líst vel á ferðina sem við erum að
fara, til Bandaríkjanna. Þar munum
við leika níu leiki á ellefu dögum.
Það verður örugglega góð æfing
fyrir liðið."
Nú hefur erlendum leikmönnum
aftur verið leyft að leika hér á landi.
Hvernig líst þér á það?
„Ég er mjög hlynntur þessu.
Margir leikmennirnir eru mjög góð-
ir og við getum lært mikið af þeim.
Þá hafa líka komið góðir þjálfarar,
t.d. sá sem var með UMFN í fyrra.
Það má strax sjá það á aðsókninni í
vetur að áhorfendur vilja hafa þessa
erlendu leikmenn með.“
Hvernig leggst íslandsmótið í þig?
„Bara nokkuð vel. Okkur hefur
gengið mjög vel fram að þessu, höf-
um unnið alla okkar leiki. Mér finnst
nú samt ólíklegt annað en að við
töpum einhverjum leikjum. Við eig-
um t.d. mjög erfiða leiki framundan
— Hauka, KR og Tindastól. Ég
reikna með að Haukar fari með okk-
ur í úrslitakeppnina, en IBK og
Grindavík úr hinum riðlinum."
Að lokum spyrjum við Teit aðeins
út í framtíðina. Hvað er framundan?
Hefur þú hugsað eitthvað um að
leika erlendis?
„Framtíðin er óráðin. Ég hef mik-
inn áhuga á að fara í íþróttanám og
ef mér tekst að láta nám og leikinn
haldast i hendu*-, þá er aldrei að vita,
nema maður leiki erlendis, við skul-
um láta framtíðina skera úr því."
Við þökkum Teiti fyrir spjallið og
óskum honum og liði hans áfram-
haldandi góðs gengis.
H.H.