Faxi

Årgang

Faxi - 01.10.1989, Side 24

Faxi - 01.10.1989, Side 24
Við bjóðum upp á mikið vöruúrval HAGKAUP FITJUM SÍMI 13655 Bókabúð Keflavíkur við að ryðja rústirnar og bera dótið saman, fram á þennan dag, þó ekki sé enn hægt að segja um allan kostnaðinn. Einnig um skaðann, er kaupmaöur mun bíöa í sumar út af þessu . . . KAUPMAÐURINN SÍÐASTI Á BÁSENDUM Hinrik Hansen kaupmaður mun fæddur ytra 1747—1748, en dó hér 1802. Thlið er, að hér á landi væri hann fyrst verzlunarmaður í Hólm- inum (Reykjavik). Sennilega komið sem búðarsveinn 1764, 16 ára. Hef- ur síðan kynnzt stúlku þeirri, er varð kona hans, Sigríði yngri, dótt- ur Sigurðar Erlendssonar í Götu- húsum. Sigurður Erlendsson var merkur bóndi og riðinn við opinber störf. Meðhjálpari er hann í dóm- kirkjunni 1792, og skipaður sama ár (með Guðmundir Jónssyni for- stjóra við tóvélamar) til að mæla og lýsa landi jarðarinnar Reykjavíkur og landeign (lóð) kaupstaðarins, ásamt blettum og húsum hvers bú- anda þar. Hansen kaupmaður og Sigríður áttu 9 böm, og komust til aldurs að minnsta kosti 3 synir þeirra: 1. Han Símon Hansen, verzlunar- stjóri (f. 1778). Tók að sér verslun og skuldaskil eftir föður sinn. Átti Maríu Einarsdóttur smiðs Hannes- sonar af Eyrarbakka. — Þau skildu. 2. Símon Hansen (f. 1782, d. 1847). Var fyrr (1812-1816) verzl- unarstjóri í Reykjavík hjá Bjama riddara Sfvertsen, er síðar kaup- maður sjálfur. Byggði hann þá - fyrir nálægt 100 ámm - sem íbúð- arhús sitt, litla húsið, er enn stend- ur skammt austur frá kórgafli dóm- kirkjunnar. Hann átti Kristínu Stef- ánsdóttur frá Káranesi í Kjós. — Eina dóttur þeirra, Sigríði Kristínu, átti Hannes kaupmaður, sonur Steingríms biskups; en ein dóttir þeirra, Soffía Kristjana, varð kona Áma Thorsteinsson landfógeta og móðir Hannesar bankastjóra Thor- steinsson og þeirra systkina (S.æfir IV, 147). 3. Pétur Hansen beykir (f. 1785), átti systur konu Hans S. Hansen, Vilborgu Elísabet Einarsdóttur, og böm. (Safn V. 2, 76). Úr sveinsstöðunni hefur Hinrik Hansen kaupmaður unnið sig áfram með dugnaði. Hann er orðinn kaupmaður í Grindavík 1786 (27. marz). En að Básendum kemur hann sem kaupmaður með nýári 1788, og er þar til aldarloka flest sumrin og suma vetuma að minnsta kosti. Frá nýári 1788 verður hann eig- andi, með 5 öðmm, að verzluninni á Básendum og Vopnafirði til sam- ans. Átti 1/6 hver. Síðar losaði H. Hansen sig við hlutann í Vopna- fjarðarverzluninni, og náði í orði kveðnu eignarráðum einn á Bás- endaverzluninni. Hinrik kaupmaður er ekki sízt minnisverður fyrir þá skuld, aö hann átti íbúðarhús á Básendum, haföi þar vetursetur, dó hér og lét eftir sig afkomendur með íslenzkri konu. Hann er þvf einn hinn allra fyrsti útlendi kaupmaður, sem - eftir einokun - verður innlendur og samlagar sig þjóðinni. En þetta er fágætt um útlenda kaupmenn; þeir hafa oftast — eða ekkjur og börn þeirra — fram á vora daga fleytt rjómann yfir pollinn af verzlun sinni við íslendinga. H. Hansen var orðinn fjáður vel, en missti á einni nóttu meginhluta eigna sinna: hús og búshluti, báta, vöm og matvæli, fatnað og bækur. Og ekki sést annað en að allt þetta hafi verið óvátryggt. Eftir hefur kaupmaður þó að sjálfsögðu átt eitt- hvað fyrir seldar gjaldeyrisvörur ytra, sennilega innifalið í vömfarmi þeim, er hann þá hefur verið búinn að panta til sín á næsta vori. Búfénaður er ekki nefndur í bréf- unum og ekki í skýrslu kaupmanns eða skoðunarmanna. Fjósið og hlaðan bendir þó á, að þar hafi veriö 1 eða 2 kýr. Er því tvennt til: að grip- ir hafi bjargazt, eða þeir hafi ekki verið til, og heyið, sem nefnt er, hafi verið ætlað ferðamönnum. Af skýrslunni sést það, að kaup- maðurinn var í !4 mánuð eftir fióöið með fólkið sitt í Loddu, þó ekki væru kaupmannleg húsakynni þar í litlu baðstofukytrunni. Þaðan flutti hann að Stafnesi, í aðra baðstofu- holu þar, sem þá var í eyði (senni- lega vegna eyðilagðra haga og sand- foks á túnið). Var hann svo á Staf- nesi, og skrifar sig þar í hálft annað ár, til haustsins 1800. Mun hann þá hafa flutt til Keflavíkur, og verið bú- inn að byggja sér íbúðarhús þar. En aldrei sigldi hann eftir flóðið. Þrátt fyrir þetta mikla áfelli hélt H. H. kaupmaður áfram verzlun sinni til dauðadags. Þegar um vorið gerði hann við búðarræfilinn á Básend- um og fékk þangað vömskip bæði sumurin 1799 og 1800. Ekki er nú kunnugt, hvenær síð- ustu hús voru rifin niður á Básend- um. Fyrir haustið 18(X) hefur það ekki verið, og máske ekki fyrr en 1802 eða síðar. Þó er líklegt, að kaupmaðurinn hafi fiutt mikinn og gagnlegan húsavið, allt er missast mátti, þaðan til Keflavíkur, í hús sitt (og sölubúð) þar. En með lokum 18. aldar, árið 1800, má telja lokið staö- fastri verzlun á Básendum. Þó má vel vera, að H.H., eða aðrir kaup- menn síðar á 19. öldinni, hafi sent þangað skip til að taka fisk og af- henda þungar vörur, eins og á Þórs- höfn hefur lengi verið gert. FRAMHALD í NÆSTA BLAÐI 244 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.