Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.10.1989, Qupperneq 27

Faxi - 01.10.1989, Qupperneq 27
Sjómaður drukknar í Njarðvíkurhöfn Hinn 27. mars 1974, drukknaði Sigtryggur Sigtryggsson mat- sveinn, á v.b. Ársæli frá Keflavík. Féll Sigtryggur á milli báts og bryggju í Njarðvík. Hann var fjörtíu og sex ára gamall, kvæntur og lét eftir sig tvær dætur. (Árbók SVFÍ 1974, bls. 100-102. Þar sem prentarar fóru í verkfall 25. mars, þetta ár, birtust engar fréttir um slysið i dagblöðum. Prentarar voru þá sex vikur í verkfalli). V.b. Hafrún ferst Um kl fjögur, aðfaranótt miðviku- dagsins 11. des. 1974, fór fimmtán lesta vélbátur, Hafrún BA-10, í róður frá Keflavík. Veður var gott, vindur hægur af suðaustri. Báturinn gerði tilkynningaskyldu aðvart um brott- för frá Keflavík. Hafrún hélt á vertíðarmiðin í Mið- nessjó og hugðist leggja línu sína, að ætlað var. Fram að hádegi mið- vikudagsins var austan og suðaust- an kaldi á þessum slóðum, en þá snerist vindur til suðurs og suð- vesturs. Hvessti mikið og gerði dimm él. Síðar um daginn gerði blindhríð. Þegar Hafrún gegndi ekki kalli tilkynningaskyldu um hádegið, var auglýst eftir bátnum I útvarpinu. Einnig voru skip á þessum slóðum kölluð upp og beðin að svipast um eftir bátnum. Síðdegis hófst skipu- leg leit á sjó og við land. Varðskip stjórnaði leitinni. Björgunarsveitir leituðu á fjörum frá Höfnum að Garðskaga, og þaðan inn til Kefla- víkur. Skammt utan við Litla-Hólm í Leiru, fannst lóðarbelgur, merktur Hafrúnu BA-10. í kjölfar þess leit- uðu margir bátar mjög vandlega undan Hólmsbergi á miðvikudags- kvöld, við Ijós frá varðskipi. Eftir að belgurinn fannst, var leit skipulögð að nýju, og hófst hún strax kl. átt á fimmtudagsmorgun. V/b Ægir GK lenti í hrakningum 1944. (Sjá frásögn í jólabladi Faxa 1985). Magnús B. Karlsson tók myndina, líklega 1941, í slippnum í Keflavík. Keflavík h.f. var eigandi Ægis. Flugvélar hættu leit, en fjörur voru gengnar áfram. Vélbáturinn Hafrún var smlðaður í Stykkishólmi 1974 og því nýr. Hann var fimmtán lestir, eins og áð- ur segir. Eigandi hans var Sævar Jónsson. Sævar fórst með bátnum. Hann var 33 ára, kvæntur, átti tvö börn. Auk hans drukknaöi Birgir Hjelm, 43 ára, kvæntur maður, sem átti fjögur börn. Mennirnir voru báðir búsettir I Keflavík. (Mbl. 13. des. 1974: „Fullvíst er talið að Hafrún hafi farist með 2 mönnum". Vísir 13. des. 1974: ,,Fundugúm- bát og brak á floti“. Tíminn 13. des. 1974: ,,Hafrún talin aP‘. Suðumesjatfðindi 13. des. 1974: ,;Hafrúnar BA-10 saknað“. Arbók SVFÍ 1974, bls. 100-102). FRAMHALD í NÆSTA BLAÐI Komu þá tuttugu og fimm bátar til leitar. Þyrlan TF-GNÁ leitaði með ströndinni. Önnur flugvél leitaði dýpra NV og N af Garðskaga. Um leið var gengið á fjörur. Fram eftir degi voru leitarskilyrði góð. Skömmu fyrir hádegi, tilkynnti Þorkell Árnason GK frá Garði, að hann hefði fundið lítið uppblásinn gúmmíbát um sex sjóm. V af Sand- gerði. Bátar tilkynntu einnig um mikinn reka á svipuðum slóðum. TF-GNÁ fann mikinn reka NNV af Sandgerði. Síðar sama dag fannst bauja, fimm sjóm. V af Sandgerði. Hún var merkt BA-10. Gúmmlbátur- inn var sendur til athugunar hjá SVFÍ I Fteykajvík. Þar var staöfest að hann væri af Hafrúnu. Báturinn var aldrei sjósettur af mannavöld- um. Hann var talsvert skemmdur og götóttur er hann fannst. Upp úr hádegi, fimmtudaginn 12. des., syrti í lofti og veður versnaöi. Um tvöleytið tíndust bátar til hafnar. ORION MYNDBANDSTÆKI VERÐ FRÁ 36.900 Hólmgarður 2, 230 Keflavík, Sími 15005 Holtsgata 26, 260 Njaróvík, Sími 12002 BÍLAKRINGLAN GRÓFIN 7og8 --- KEFLAVÍK - RAFLAGNIR-EFNISSALA ÞVOTTAVÉLAVIÐG ERÐIR Söluumboð fyrir Candy þvottavélar og ísskápa RAFVERKSTÆÐI IB SÍMI 92-15136 Ingólfur Bárðarson — Heima 15136 FAXI 247

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.