Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1989, Síða 28

Faxi - 01.10.1989, Síða 28
_ BJÖRGUN Mariane Danielsen af strandstað við Grindavík föstudaginn 7. apríl 1989 Danska vöruflutningaskipið Mari- ane Danielsen 2700 brúttólestir að stærð strandaði við innsiglinguna í Grindavík, á útleið, að kvöldi 20. jan. 1989. Aðdragandi strandsins var í stuttu máli sá að eftir að hafnsögumaður hafði gefið fyrirmæli um stefnu og yfirgefið skipið var því beygt hart á bakborða og siglt í strand. Áhöfnin bjargaðist. Við sjdpróf kom fram að skipstjórinn hafi verið drukkinn og því fór sem fór. Lyngholt hf. kaupir Mariane Eftir strandið lét tryggingafélag skipsins hollenska sérfræðinga meta aðstæður og töldu þeir að kostnaður við að fjarlægja flakið yrði um 140 milljónir. Á þeirri for- Strandiö. sendu var eigendum greitt út 160 millj., en fyrir strandið var skipið metið á 90 millj. Síðan var það af- hent öðru tryggingafélagi sem átti að sjá um að eyða því (einskonar mengunareyðing). Tilboð um að fjarlægja skipið fyrir allt að 20 millj. bárust umboðsaðila hér frá ýmsum fyrirtækjum, s.s. Björgun hf., Hagvirki hf. o.fl. Lyngholt hf., lítið byggingarfyrir- tæki í Vogum, fylgdist með gangi mála og þegar leið á fóru tilboð lækkandi. Þ. 28. febr. gerði fyrirtæk- ið kauptilboð í skipið, 1.000,- DK = 7.000,- ísl. kr. og þ. 4. mars var kaup- samningur undirritaður. Þetta var eina tilboðið sem barst um kaup á skipinu. Lyngholtsmenn sáu fram á að hægt yrði að ná því út, án hjálpar stórvirkra vinnuvéla, með því að nýta eingöngu flot skipsins. 248 FAXI

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.