Faxi

Årgang

Faxi - 01.10.1989, Side 31

Faxi - 01.10.1989, Side 31
EFTIRLEIT Eitt haustið fórum við Jón bróð- ir í eftirleit. Það hefir sennilega verið um mánaðamótin október- nóvember. Meira held ég nú að þetta væri farið til að þykjast en í von um að finna fé. Mig minnir að við gengj- um fyrst upp í Stekkjarskál og síð- an fram hlíðina. Riffillinn var með í ferðinni, höf- um máske vonast eftir að rekast á tófu. Það var annars merkilegt með tófurnar. Væri maður vopn- laus voru þær oft að flækjast ná- lægt manni, en væri byssan með létu þær ekki sjá sig. Svo fór eins í þetta skipti. Við gengum fram Barðshlíðina í átt að Kverkhólagili. Jón gekk of- ar en ég neðar í hlíðinni. Þegar komið var að gilinu sáum við lambhrút í klettunum og bar Jón að, þar sem hrúturinn var undir. Ég öskraði af öllum kröftum og bað hann að bíða eftir mér. Þaðan sem ég var sýndist með öllu ófært niður klettana og datt mér það eitt ráð í hug, að skjóta hrútinn þar sem hann stóð. En Jón var ekki á þeim hosunum að fara að neins manns ráðum og mér til ógurlegr- ar skelfingar sá ég hann fara úr skónum og byrja að príla niður klettana. Ég flýtti mér upp allt hvað af tók en það var bratt og þæfing, ég hálfmáttlaus af hræðslu og geysi- lega móður. Það stóð á endum að þegar ég komst loks upp var Jón búinn að klifra niður sýlaða klett- LJÖÐ Lífsgœdanna hái hóll hefir margan bugad, þó ad hœgur heimastóll hefdi kannski dugaö. Þad sem gott er glatast ei gœfan þetta sannar, enda vaggar fúid fley frjálst á öldum hrannar. Uppi í heiöar helgum lund haustsins litir loga. Aldan fœr sér blídan blund blœktir nótt um voga. 15. okt. 1989 Jón Sœmundsson. ana góma hrútinn og koma hon- um upp á brúnina. Mig minnir að þessi hrútur væri ekki úr Flókadal, heldur ofan af Höfðaströnd, hvernig sem því vék nú við. Hann hafði ekki verið í svelti, var vel á sig kominn og hlýtur að hafa verið all þungur. Enn þann dag í dag er mér óskiljanlegt hvernig Jóni tókst að ná skepnunni við þessar aðstæð- ur. Við vorum ekki gamlir og hann þrem árum yngri en ég. Þetta er ekki í eina skiptið sem Jón bróðir hefir gert hluti sem teljast mega óframkvæmanlegir. Karl Sœmundsson MUNIÐ ORKU- REIKNINGANA Eindagi orkureikninga er 15. hvers mánaðar. Látið orkureikninginn hafa forgang Hitaveita Suðurnesja ^ VERSLUNIN FMBÚÐ Matvörur í góðu úrvali Ávalltglœnýjar flatkökur OPNUNARTÍMI virka daga: 09:00—20:45 um helgar: 10:00—20:45 ^ VERSLUNIN FMBÚÐ

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.