Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 9

Faxi - 01.01.1990, Blaðsíða 9
Aðalhvatamaður að stofnun ^runnastaðaskóla var séra Stefán Thorarensen prestur á Kálfatjörn. Pærði hann hugmyndir sínar um skólabyggingu fyrst í tal við sóknar- hændur og sýndist sitt hverjum. heir voru þó flestir sem sýndu mál- 'nu skilning og studdu prest til fram- kvasmda með peningagjöfum og sjálfboðavinnu. Meðal þeirra sem gáfu fé til bygg- ^garinnar voru Egill Hallgrímsson hóndi í Austurkoti, sem gaf eitt hundrað ríkisdali og Guðmundur ív- arsson í Skjaldaholti, sem gaf fimm- hu ríkisdali. Auk þess var haldin hlutavelta og rann allur ágóðinn af henni til skólahalds. Þó talsvert fé hafi safnast til byggingarinnar n*gði það ekki alveg. Var þá brugð- á það ráð að taka lán sem sr. Stef- an útvegaði með mjög hagstæðum A SUÐURNESJUM Faxi heldur enn áfram umfjöllun sinni um bama- fræðslu á Suðumesjum og að þessu sinni hefjum við frá- sögn okkar f Brunnastaðaskóla á Vatnsleysuströnd. Þar hófst kennsla snemma haust árið 1872 í nýbyggðu skólahúsi f landi Suðurkots f Brunnastaðalandi. I frá- sögninni verður m.a. stuðst við ritgerð, er Faxi hefur góðfúslega fengið leyfi til að birta að meginefni. Ritgerð þessi var lokaritgerð við Kennaraháskóla íslands vorið 1984, og em höfundar hennar þeir Eyjólfur R. Braga- son, Magnús M. Jónsson og Steinarr Þór Þórðarson. Rétt er að vekja sérstaka athygli á þeim kafla ritgerðar- innar er fjallar um akstur skólabama, þvf slfkur akstur var á þeim tfma algjör nýlunda hér á landi. BRUNNASTAÐASKÓU skilmálum. Auk þess naut skólinn styrks úr Torcillisjóði, sem var stofn- aður 1759 eftir lát Jóns Þorkelsson- ar fyrrum Skálholtsrektors og hafði sjóðurinn það markmið að kosta fræðslu fátækra og munaðarlausra barna í átthögum Jóns. Skólabyggingunni var valinn stað- ur á Suðurkotslandi í Brunnastaða- hverfi. Tildrög þess voru þau að uppboð var haldið á Brunnastaða- torfu og voru kaupendur þrír, þeir Guðmundur ívarsson, sem keypti helming, og Egill Hallgrímsson og Jón Breiðfjörð, sem keyptu sinn fjórðung hvor. Gáfu þremenning- arnir síðan jörðina undir skólabygg- inguna. (Ekki er víst, að þessi frá- sögn um gjöf þeirra þremenninga á skólajörðinni sé rétt, eða þá að gjöf þeirra hafi átt annan aðdraganda. í bók sinni Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi bls. 372 segir Guðmundur B. Jónsson frá því, að Hafliði Þorsteinsson hafi selt barnaskóla Vatnsleysustrandar- hrepps hálft Suðurkotið fyrir 500 rikisdali. Lánaði Hafliði alla þessa fjárhæð á veðskuldabréfi. Innskot H.H.) Hafist var handa við skólabygg- inguna í júní 1872. Efnið í bygging- una var flutt með skonnortu frá Reykjavík suður í Voga og þaðan flutti Guðmundur ívarsson timbrið endurgjaldslaust í áraskipi sínu að Brunnastöðum. Stefán hét maður- inn sem aðallega sá um smíði húss- ins og hafði hann viðurnefnið snikk- ari. Vann hann frá klukkan 6 á morgnana fram til 10 á kvöldin og hafði hann í laun 2—3 krónur á dag. Hóf Stefán smíðina í júní, eins og áð- ur segir, og lauk við verkið í septem- ber 1872. Skólahúsið var hin my ndarlegasta bygging á þeirra tíma vísu. Það var byggt úr timbri, 16 álnir að lengd og 14 álnir að breidd, loftbyggt og var hver þilja, gluggar og hurðir hand- unnið. 1 norðurhlið hússins á neðri hæð þess var kennt í stórri stofu sem í var heljarmikill ofn, en á efri hæðinni bjuggu hjón sem sáu um skólann, kynntu ofninn og geröu ýmislegt sem til féll. Hjálpuðu þau meðal annars til við kennsluna. Fyrsta árið sem skólinn starfaði kom fyrir atvik sem leiddi til dauða tveggja manna. Þannig var mál með vexti að kolalaust varð í skólanum og fór sr. Stefán þess á leit við vel- unnara skólans að þeir sæktu kol til Hafnarfjarðar. Fimm menn réðust til fararinnar á skipi sem Guðmund- FAXI 9

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.