Faxi - 01.01.1990, Page 18
virtust ókleifir með öllu. En öll kom-
ust þið upp á ykkar tind og vonandi
finnið þið fyrir þeirri ánægju að
hafa sigrað, náð ykkar takmarki.
En jafnfram geri ég ráð fyrir að
þið sjáið öll fjöllin framundan. Sum
nálægt önnur í blámóðu fjarlægðar-
innar. Jafnvel á þessari stundu eruð
þið farin að pæla í því á hver þeirra
þið eigið að ganga næst. Ég vona að
sú tilsögn sem við hér í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja höfum veitt ykkur
í bjargklifi dugi til þess að þið sigrist
á þeim tindum sem framundan eru.
Bæði þeim sem þið sjáið og svo hin-
um sem óvænt koma út úr þokunni.
Þegar hópar skilja verður oftast
vart nokkurs saknaðar. Samvist
okkar kennara og ykkar sem hafið
höndlað skírteinin hefur verið æði
misjöfn bæði í tíma og rúmi. Þeir
sem styst hafa verið hafa aðeins
dvalið hér í eina önn og eiga flestir
eftir að vera hér lengur. Aðrir hafa
verið hér í mun fleiri annir og tengj-
ast okkur nánar. Við höfum fylgst
með þroska ykkar frá því þið komuð
hér sem busar og til dagsins í dag.
Öll hafið þið þroskast á líkama og
sál. Samstarfið hefur ekki alltaf ver-
ið dans á rósum. Oft hefur ykkur
þótt lærifeður og mæður ansi
ósanngjörn og allt upp undir það að
vera leiðinleg. Mörg ykkar hafa að
okkar dómi verið hyskin og löt.
Við höfum gengið í sameiningu í
gegnum vinnudeilur og verkföll. En
þrátt fyrir allt munum við sakna
ykkar og rifja upp sérkenni ykkar á
góðum stundum líkt og þið eigið eft-
ir að tala um einkenni og sérvisku
okkar.
Að lokum langar mig til að lesa
aðeins úr einu af uppáhöldunum
mínum.
Þeir sem hafa lært frönsku þekkja
bókina vel, þett er sagan af litla
prinsinum frá smástirninu B 612.
Prinsinn hafði lagst í ferðalög m.a.
vegna þess að rósin hans var orðin
svo kröfuhörð á athygli hans, að
hann jafnvel vanrækti að hreinsa
eldfjöllin sín. Ég gríp niður þar sem
litli prinsinn er að gera sögumanni
grein fyrir samskiptum sínum við
rósina.
„Ég skildi þá ekki neitt! Ég hefði
átt að dæma það af verkum sínum,
en ekki orðum. Það fyllti mig Ijósi
og angan. Ég hefði aldrei átt að flýja
burt!
Mig hefði átt að gruna ástúðina á
bak við vesöl brögð þess. Blóm eru
svo mótsagnakennd! Ég var of ung-
ur til að elska það.“
En litli prinsinn fór víða m.a. til
jarðarinnar þar sem hann kynntist
ref. Þeir tóku tal saman og vildi litli
prinsinn leika sér við refinn en hann
sagði að það væri ekki hægt því að
hann væri ekki taminn.
Einn af kostum prinsins var að
hann spurði spurninga og hélt því
áfram þar til hann fékk svör. Nokk-
uð sem nemendur mættu af læra.
Refurinn spurði prinsinn hvort
hann væri að leita að hænum en
það var aðal áhugamál hans:
„Nei, sagði litli prinsinn, ég er að
leita að vinum. Hvað táknar tam-
inn?
Það er hlutur sem farinn er að
gleymast um of.
„Temja táknar að binda bönd.“
Já, sagði refurinn. Fyrir mér ert
þú aðeins lítill drengur. Líkur þús-
undum annarra lítilla drengja. Og
ég þarfnast þín ekki. Og þú þarfnast
mín heldur ekki. Fyrir mér er ég að-
eins refur eins og þúsundir annarra
refa en ef þú temur mig munum við
þarfnast hvors annars. Þú verður
mér eitthvað einstakt í heiminum
og ég verð þér eitthvað einstakt...
Ég er að byrja að skilja, sagði
prinsinn. Það er blóm . . .
Ég held að það hafi tamið mig . . .
Þetta verða lokaorð til ykkar fyrr-
verandi útskriftaraðall.
Ég þakka ykkur samveruna megi
ykkur farnast vel á ógengnum stíg-
um.
Skólaslit haustönn 1989
Þá er komið að lokum þessarar at-
hafnar. Þó verður ekki skilið við
þessa önn án þess að geta veigamik-
illa breytinga í rekstri framhalds-
skóla. Ný lög um framhaldsskóla
voru samþykkt á Alþingi vorið 1988
og í vor sem leið voru samþykktar
veigamiklar lagabreytingar. Það
helsta sem breytist er eftirfarandi:
Á næsta ári tekur ríkið við öllum
rekstri framhaldsskólanna. En hing-
að til hafa sveitarfélögin/ríkið rekið
framhaldsskólana í sameiningu. Þó
er það svo að velviljuð sveitarfélög
hafa greitt nokkra þætti í rekstrin-
um sem ríkið hefur ekki viljað taka
þátt í. Hér mætti t.d. nefna þann
hluta kostnaðar við akstur nem-
enda, til og frá skóla, sem þeir eiga
að greiða svonefnt strætógjald.
Einnig hafa sveitarfélögin greitt
laun matráðskonu í mötuneyti nem-
enda, en í öðrum skólum eru þau
laun greidd af rekstrinum en ríkið
leggur til húsnæði, ljós og hita
ásamt nauðsynlegum áhöldum.
Frá og með næstu áramótum
verða nemendur að greiða strætó-
gjaldið sjálfir og hækka verður þjón-
ustu mötuneytisins verulega til að
endar nái saman. Búast má við að
þessi aukni kostnaður komi fyrst og
fremst niður á þeim nemendum
sem búa utan Keflavíkur/Njarðvík-
ur svæðisins. Þó ríkið hafi tekið við
rekstri skólans mega sveitarfélögin
aldrei gleyma því að Fjölbrautaskóli
Suðurnesja er þeirra skóli og þeim
fjármunum sem til hans er varið er
fjárfesting í framtíðinni.
í nýju lögunum er kveðið á um
aukið sjálfstæði skólanna. Fjöl-
brautaskóli Suðurnesja hefur frá
stofnun haft meira sjálfstæði í fjár-
málum en flestir aðrir framhalds-
skólar í landinu. En nú um áramótin
bendir allt til þess að verulegur hluti
rekstursins verði færður beint undir
launaskrifstofu ríkisins. Má þar
nefna að allar greiðslur og útreikn-
ingar á kaupi færast til launaskrif-
stofu en hingað tii höfum við séð um
þessa þætti fyrir annað starfsfólk en
kennara. Hvort fleira fylgir á eftir er
ekki vitað á þessari stundu. í lögun-
um og í þeirri umræðu sem á undan
þeim fór var alltaf gert ráð fyrir því
að skólarnir fengju sjálfstæði til þess
að annast reksturinn sjálfir. Rekstr-
arframlagið átti að greiða inn á
reikninga skólanna með allt að
þriggja mánaða fyrirframgreiðslu.
En svo virðist sem stóri bróðir í
Reykjavík treysti okkur ekki til að
annast okkar innkaup, mannaráðn-
ingar og kaupgreiðslur sjálfir. Aug-
Ijóst er að þeir sem standa í hinum
daglega rekstri hljóta að nýta fjár-
munina betur og fá meira fyrir hinar
allt of fáu krónur en þeir sem eru
fjarri vettvangi. Hjá starfsfólki
launaskrifstofunnar eru þetta tölur
á blaði en hjá okkur erum við að fást
við raunveruleg verkefni, tæki og
tól ásamt lifandi fólki.
Um áramótin fáum við vonandi
nýja skólanefnd sem kosin verður
eftir hinum nýju lögum. Skipan
hennar er all breytt frá því sem ver-
ið hefur. En í henni eiga sæti tveir
fulltrúar kennara, einn fulltrúi nem-
enda, þrír fulltrúar sveitarfélaga og
einn sem skipaður er án tilnefning-
ar af menntamálaráðherra. Fulltrú-
ar kennara og nemenda eru fullgild-
ir meðlimir nefndarinnar en hingað
til hafa þeir aðeins haft áheyrnar- og
tillögurétt. Með lögunum eykst sjálf-
stæði skólanna einnig hvað varðar
mannaráðningar og fleiri innri mál-
efni skólans.
Eins og fram kom hér fyrr við
þessa athöfn er framhaldsskólinn í
mótun. Nýjar brautir og nýir áfang-
ar koma stöðugt fram. Framundan
er átaka tímabil bæði hvað varðar
rekstur skólans og innra starf. Ef all-
ir sem að rekstri skólans standa, svo
og velunnarar hans taka höndum
saman þá er ég viss um að okkur
beri gæfa til að halda því þróunar-
starfi áfram sem hafið er.
Að lokum vil ég þakka nemend-
um, kennurum og starfsfólki fyrir
ánægjulega önn. Einnig færi ég Tón-
listarskóla Keflavíkur og Ullarbörk-
unum þakkir fyrir framlag í þessari
brautskráningarathöfn.
Ég segi hér með 29. starfsönn
skólans slitið.
Öll starfsemin á ný
undir eitt þak!
Sú starfsemi bæjarfógeta- og sýslumannsembættisins, sem
var til bráðabirgða að Hafnargötu 62, Keflavík, er nú á ný
flutt á sinn gamla stað að Vatnsnesvegi 33, Keflavík. Síma-
númerið er
14411
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Grindavík og Njarðvík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.