Faxi

Volume

Faxi - 01.01.1990, Page 31

Faxi - 01.01.1990, Page 31
um hana, og er ekkert athugavert við það. Einasti leikarinn, sem borið hefur á góma í þessu blaði, er hirð- fífl Tíma-Tóta, Valtýr Guðjónsson, en hann er, svo sem kunnugt er, engin stjarna." Þegar þetta var skrifað höfðu Framsóknarmenn tiltölulega lítið fylgi í Keflavík. Lengi var Sjálfstæð- isflokkurinn stærsta pólitíska aflið í hreppnum. Næst kom svo Alþýðu- flokkurinn. En með vaxandi byggð breyttust hlutföllin, svo að við sveit- arstjórnarkosningar 1966 náðu Framsóknarmenn hæstu atkvæða- tölu sem nokkur flokkur hafði feng- ið fram að því í Keflavík. Kosið var til sveitarstjórna 27. jan- úar 1946 og var mikil harka af beggja hálfu. Gefin voru út tvö tölu- blöð af Reykjanesinu og notaði blaðið tækifærið og hnýtti þessari klausu í Faxa-menn: „Faxi kom út um jólaleytið og var nú allur blár að þessu sinni. Áttu margir bágt með að skilja, hvers vegna gengið var framhjá rauða litnum, fyrst á annað borð farið var að skipta um lit. Eftir forsíðu jólablaðs Faxa að dæma, var þetta nóvemberblað, — 9. tölublað 1945, — en hefir auðsjáanlega verið geymt til jólanna. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. — Desemberblaðið kemur þá að öllum líkindum ein- hvern tíma í janúar — fyrir kosning- ar — og þá að sjálfsögðu með rauðu letri — í stíl við pólitískan anda rit- stjóranna." I seinna blaðinu sem út kom vegna kosninganna fær Danival Danívalsson kaupmaður þennan tón: „Daníval Danívalsson hefur að undanförnu haldið uppi harðvítug- um áróðri gegn sjálfstæðismönn- um. Hefur áróður þessi aðallega átt sér stað í búðarholu hans, ennfrem- ur á götum og í skúmaskotum. En Keflvíkingar Ijá ekki þessum Fram- sóknarkurfi eyra — þeir eru farnir að kannast við hann!" Daníval var mjög áhugasamur Framsóknarmaður og var oft marg- menni í verslun hans við Hafnar- götu þar sem fram fóru pólitískar umræður. Svipaði þeim saman, honum og Þórði Einarssyni sem rak Blönduna, hér í bæ enda samflokks- menn. í apríl 1947 var tekinn upp fastur lesendadálkur í Reykjanesinu fyrir lesendabréf, sem bar fyrirsögnina: Geirfuglinn. Útgáfa Reykjanessins lá niðri næstu tvö árin eða þar til í maímán- uði 1949. Hófst útgáfa þá að nýju, enda kosningar í vændum. Var blað- ið gefið út af fulltrúaráði Sjálfstæðis- félaganna í Keflavík. Ritstjóri var Helgi S. Jónsson, en Prentsmiðja Hafnarfjarðar vann blaðið. Að þessu sinni komu út 12 tölublöð fram í maí 1952. Enn sem fyrr birti Reykjanes- ið ýmsar fregnir og yfirlitsgreinar, en mest var það skrifað af Helga S„ sem einnig var fréttaritari Morgun- blaðsins í Keflavík. í fyrsta tölublaði 1949 er t.d. þessi frétt á baksíðu: „ Byggðasafn Keflavíkur lét gera kvikmynd af óveðrinu mikla sem var hér þann 29. nóv., sl. Myndin var tekin við höfnina en þá voru í höfninni milli 30 og 40 bátar, það má segja að þá var öll okkar lífsaf- koma — allur vertíðarflotinn — í bráðri hættu. Kvikmynd þessa hefur hafnarstjórinn notað til áróðurs fyr- ir sínum málum, og sýndi hafnar- stjóri, Þórhallur Vilhjálmsson, myndina inni í Alþingi, nú fyrir skömmu og er það í fyrsta sinn sem kvikmynd er sýnd á þeim stað til að kynna málavexti fyrir þingmönn- um. Fyrir nokkrum dögum var myndin svo sýnd Fjárhagsráði og öðrum valdamönnum í þeim til- gangi að opna augu fyrir þeim lé- legu skilyrðum, sem fiskifloti okkar á hér við að búa." Lá útgáfa Reyknanessins niðri næstu fimm árin, eða þar til í nóv- ember 1958. Hófust Sjálfstæðis- menn þá hand á ný og gáfu út 17 tölublöð fram í desember 1960. Síð- an hefur útgáfa blaðsins legið niðri nema fyrir kosningar. Enn sem fyrr var Helgi S. Jónsson ritstjóri, en honum til aðstoðar voru: Jóhann Pétursson klæðskeri, Sigurður Eyjólfsson bæjargjaldkeri, og Einar Ólafsson. Seinna hætti Ein- ar, en í hans stað kom Kristján Guð- laugsson. Blaðið flutti töluvert af fréttum úr bæjarlífinu, ásamt viðtölum og ýms- um greinum. Er mikill fróðleikur saman kominn í Reykjanesinu um málefni Suðurkjálkans, sérstaklega Keflavíkur. Eru heimildir þessar ómetanlegar þegar skrifa þarf um tímabil þau sem blaðið nær yfir. Tvisvar voru gefin út sérstök há- tíðarblöð af Reykjanesinu, í tilefni af lýðveldisstofnun 17. júní 1944, og á 10 ára kaupstaðarafmæli Keflavíkur 1959. Prentsmiðjan Leiftur hf. í Reykja- vík prentaði Reykjanesið á árunum 1958-1960. Þess skal getið að fyrir alþingis- kosningarnar 1967 gáfu Sjálfstæðis- menn að venju út nokkur blöð af Reykjanesinu. Fyrsta tölublaðið var prentað að öllu leyti í Grágás sf„ sem þá var nýstofnað. Segir í blað- inu að þetta sé fyrsta blaðið sem unnið sé að öllu leyti í Keflavík. En það er ekki rétt, því tæpum átta ár- um áður hafði fyrsta blaðið verið prentað í Keflavík. Það var desem- ber-blað Keflavíkurtíðinda frá árinu 1959, sem prentað var í nýstofnaðri Prentsmiðju Suðurnesja við mjög frumstæð skilyrði. Reykjanesið er nú orðið torgætt í heilu lagi og sum blöð seldust alveg upp. Þó eiga nokkrir einstaklingar innbundna fyrstu árgangana, og lík- lega meginpart blaðsins. Erfiðast er vitanlega að ná í kosningablöðin, en þeim halda fáir saman, sem vonlegt er. Njarðvíkingar Að gefnu tilefni vill bygginganefnd Njarðvíkur minna á reglur nr. 3.1.1. í gildandi byggingarreglugerð, er kveða á um að sækja skuli skriflega um byggingarleyfi til bygginga- nefndar fyrir öllum mannvirkjum, þ.m.t. sólstofum og gróðurhúsum, er íbúar hyggjast reisa á lóðum sín- um. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu byggingafulltrúa í Njarð- vík. Byggingafulltrúi Verklýðs- og sjómanna- félag Keflavíkur og nágrennis Verkakvennafélag Keflavíkur og Njarðvíkur Skrifstofur félagsins eru að Hafnargötu 80 Síminn er 15777. Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 9—17. Föstudaga kl. 9—3. FAXI 31

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.